Vikan


Vikan - 23.08.1990, Page 22

Vikan - 23.08.1990, Page 22
JILSANDER Frh. af bls. 21 garöurinn umhverfis Grace- land er það stór að þar var hægt að fara í góðan reiðtúr í garðinum, þó þetta sé inni í miðri borg! Ég hef alltaf verið aðdáandi Elvis þó það hafi gengið f bylgjum og mér fannst alveg sérstaklega gam- an að koma þarna og sjá þetta. Hann hafði gengið í lög- reglu staðarins ails staðar þar sem hann hafði komið. Hann var með stjörnu og staðfest- ingu um inngöngu í lögreglulið borgarinnar frá hverri einustu borg sem hann hafði skemmt í. Einn heill stór veggur ámóta og í Laugardalshöllinni var þakinn borgarlyklum sem hon- um höfðu verið afhentir. Að- dáunin hefur verið hreint yfir- gengileg. Þegar maður svo fer að skoða þetta betur þá kemst maður að því að öll úr og allir skartgripir eru munir sem hon- um voru gefnir. Eitt beltið er fyrir að hafa sett aðsóknarmet f Las Vegas, risastór dem- antshringur fyrir að hafa slegið met f annarri borg, plötusölu- met þarna, gimsteinar frá hljómplötufyrirtækinu sem gaf I Nashville virðist allt snúast í kringum skemmtanaiðnaðinn. Söfn þar að lútandi eru á hverju strái og allir kántrítónlistarmenn, sem vilja vera menn með mönnum, eiga sina búð eða veitingastað sem heitir í höfuðið á þeim. hann út í Noregi og það var at- hyglisvert að sjá að á stórum vegg voru ekkert nema gull- plötur og verðlaun frá Norður- löndunum. Ég vil gjarnan hvetja fólk til að koma við í Graceland ef það á leið um Memphis þó maöur verði að leggja það á sig að standa í biðröð fyrir utan. En ég sakn- aði þess að sjá ekkert frá Is- landi. Að vísu hitti ég á eitt fiskveitingahús sem bauð upp á íslenskan fisk og hann var helmingi dýrari en allur annar fiskur. Ýsuflak kostaði þar 19.95 dollara og það er mjög dýr á amerískan mælikvarða, þar sem hægt er að fá ham- borgara og franskar fyrir tvo dollara eða fína T-bone steik fyrir tíu dollara. Svo sáum við þarna Eldur/ís vodka af og til.“ Hvernig líst Magnúsi á að endurtaka þetta ævintýri? „Þessi ferð verður áreiðan- lega til þess að maður fer aftur til Nashville. Upptökumennirn- ir vilja fara út ( að taka upp rokk líka og Nashville er að færa út kvíarnar ef svo má segja. Þangað er Tina Turner að koma til að taka upp sína næstu plötu, Stevie Winwood er fluttur þangað niðureftir og þeir segja að Eric Clapton sé á leiðinni. Ég tók lika eftir því í sambandi við tískuna að hún hefur greinilega mikið vægi f Nashville og þá sérstaklega þessi svokölluðu „perform- ance“ föt. Ég heyrði sagt að sá sem hannar á Madonnu og Michael Jackson byggi í Nashville og fannst það ákaf- lega eftirtektarvert. Þarna eru tvö hundruð stúdíó, þar af 150 með digital-upptökutækjum en ef maður ætlaði aö setja upp slíkt stúdíó hérna heima myndi það kosta eitthvað rúm- ar 300 milljónir. Það er sér- kennilegt að aka þarna eftir götum sem stóru höfðingja- setrin standa við í röðum og heyra þaö að í hverju einasta húsi séu stúdíó og útgáfufyrir- tæki." Það er sannarlega stórhug- ur og sköpunargleði sem ligg- ur að baki þessari plötu og um leið og við þökkum Magnúsi fyrir skemmtilegt spjall leyfir Vikan sér að fylgja plötunni úr hlaði með frómum óskum um velgengni og góðar viðtökur þegar hún kemur í hillurnar þann fimmta september. □ 22 VIKAN 17. TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.