Vikan


Vikan - 23.08.1990, Síða 36

Vikan - 23.08.1990, Síða 36
TEXTI: GUÐRÚN G, BERGMANN VIKAN HÆÐIR VIÐ DAVID CARSON, BANDARÍSKAN RITHÖFUND OG SHAMAN, UM LÍFINDÍÁNA, MEDICINE CARDS, GHOST SHIRT DANSINN OG FLEIRA Hann er alls ekki indíánaleg- ur, ekki ef við ákveðum að allir indíánar séu með sítt svart hár og fléttur. Blandan af írska blóðinu, sem er í honum, kemur berlega í gegn. Hann hefur rauðleita freknótta húð, hárið er farið að grána en yfir skeggi hans er rauðlitur blær. En þegar farið er að ræða við hann kemur indíánaupprun- inn í gegn. Hann er fæddur í Okla- homa City í Oklahoma. Á sínum tíma var það fylki talið verðlaust að mestu og því álitið í lagi að gefa indíánunum það. Þar var hinum ýmsu ættflokkum, sem höfðu verið reknir frá löndum sínum, safnað saman og sjálfur á hann land um tvær mílur frá þeim stað þar sem Táraleið (Trail of Tears) Choctaw-indíánanna, ættflokks hans, endaði í Oklahoma. Okiahoma var eins og stór fanganýlenda indíána og mamma hans, sem hét Swan, fæddist meðan indíánar sem þar bjuggu höfðu ennþá sérstakt skráningarnúmer, líkt og fanganúmer. Maðurinn, sem þessi lýsing á við, heitir David Carson, bandarískur rithöfundur og shaman sem var hér á ferðinni í byrjun ágúst til að vinna á Snæfellsásmótinu og halda námskeið í shamanisma. VIKAN átti við hann viðtal daginn áður en hann kvaddi ísland. INDÍÁNAR ERU HERMENN Hvernig var að alast upp í Oklahoma og til- heyra að hluta þeim hvítu og að hluta indíán- unum? „Það var erfitt vegna þess að þessir menn- ingarhættir eru svo gerólíkir. Hvorugur hafði og hefur varla ennþá skilning á hinum. Það má segja að ég hafi alist upp í tveimur aðskildum raunveruleikum. í uppvextinum lærði ég af báðum en það komu líka tímar þar sem mér fannst ég utangátta hjá báðum. Grunnhug- myndin í hefðum indíána er að karlmaðurinn er alltaf veiðimaður. Hann fer út og veiðir eða berst til að sjá fjölskyldunni farborða. Sem strákur fór ég út og veiddi snáka og hengdi þá síðan á girðinguna heima til að sýna hversu mikill karlmaður ég var. Það er slæmt „medicine" að drepa dýrin þegar maður þarf ekki á þeim að halda til matar. Þegar ég varð eldri fékk ég veiki í lungun, sem ég kalla snákaveiki. Ég fór því í hugleiðslu upp í efri heima í Andahúsið og bað afa snák, stóran mikinn snák, um að fyrirgefa mér að hafa drepið börnin hans. Eftir það hvarf snákaveikin. Ekki alls fyrir löngu lenti ég síðan í návígi við skröltorm sem var nývaknaður af vetrardvalanum. Það var eins og ég hefði leit- að hann uppi því ég var á göngu með vinum mínum en vék allt í einu út af gangstígnum og fór aðra leið en þeir. Ég var ekki lengra en hálf- an metra frá skröltorminum. Það lak eitur út tönnum hans og hann var virkilega ógnvekj- andi en ég var ekki hræddur við hann. Ég leit á návígi okkar sem tákn um styrk, sem tákn frá afa snák sem ég hafði sýnt virðingu með því að biðjast fyrirgefningar á bernskubrekum mínum. Eftir hefðbundna skólagöngu lá beinast við að ég gengi í herinn þegar ég hafði aldur til en það eru einmitt margir indíánar sem gera það. Ég gekk í landgöngulið flotans og man enn hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar þjálfun okkar hófst á því að kenna okkur að stoppa í sokka, strauja skyrtur, elda mat og bursta skó. Ég sem vildi fara út og berjast. En þetta var gert til að við gætum séð fyrir okkur og virt búning okkar, hvar sem við værum staddir. Eftir að herþjónustu lauk vann ég hin ýmsu störf en skrifaði alltaf með. Hin seinni ár hafa skriftir verið aðalstarf mitt. Sennilega má rekja sögumanninn í mértil írska upprunans en það er líka talin list hjá indíánunum að segja sögur. Menning okkar er öll í sögusögnum." MEDICINE CARDS Sú bók sem er ef til vill þekktust eftir þig hér á landi, svo og í heimalandi þínu þar sem hún hefur selst i milljónum eintaka, er Medicine Cards. Hvernig varð sú bók til? „Hjá indíánunum til forna voru ekki til nein vísindi og því voru dýrin notuð sem tákn fyrir ójafnvægi í líkamsstarfseminni. Þeim fylgdi „góður andi“ ef þau unnu með einstaklingnum og „slæmur andi“ ef einstaklingurinn varð veikur. Til að lækna veikindin voru síðan „medicine" menn og konur. Hvert og eitt þeirra hafði vissa sérgrein og læknuðu frá þetta ein- um og upp í þrjá til fjóra mismunandi sjúk- dóma. Menn gátu til dæmis fengið veiki amer- íska sléttuúlfsins (coyote) með því að snerta dauðan líkama hans en það var einnig hægt að fá „eldstæðisveiki" með því að byggja ekki eldstæðið á réttan máta. Það þótti til dæmis slæmt „medicine" að nota of mikinn grænan við á eldinn, að byggja upp eld með vanvirðingu eða að virða ekki anda eldsins en með því að virða eldinn virð- um við eldsorkuna sem er í okkur öllum. „Eld- stæðisveikin" hefur tekið á sig nýtt form með tækninni og er nú í raun útgeislunarveiki, tengd röntgengeislum og annarri geislameng- un í umhverfinu og kemur fram sem krabba- mein. Hér áður fyrr voru hjá mörgum þjóðflokk- um sérstakir aðilar sem pössuðu eldinn. Hann hefur alltaf verið mikilvægur og það voru til höfðingjar meðal indiánanna sem gátu sett ímynd þess sem átti að gerast inn í eldinn og hún kom fram. 36 VIKAN 17. TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.