Vikan


Vikan - 23.08.1990, Síða 46

Vikan - 23.08.1990, Síða 46
TEXTI OG MYNDIR; RAGNAR LÁR KOMIÐ VIÐ HJÁ SIGLINGAKLÚBBNUM SIGURFARA Á SELTJARNARNESI Þeir sem leið eiga um Suðurströnd á Seltjarn- arnesi taka eftir nokkr- um hafnarframkvæmdum sem þar hafa staðið yfir að undan- förnu. Á sjávarkambinum húka nokkrir skúrar og standa bátar hjá. Fram i sjóinn liggur mynd- arlegur grjótgarður og skýlir fyrir austanáttinni. Einn af skúrunum er í eigu björgunar- sveitarinnar Alberts á Seltjarn- arnesi og geymir sveitin tæki A Jón Teitur kemur á fullri ferð að hafnar- garðinum... bátnum... A ... og réttir hann við að nýju. og tól í skúrnum. Einn skúrinn er hins vegar í eigu Seltjarn- arnesbæjar og hefur tóm- stundaráð bæjarins aöstöðu í þeim híbýlum. Enn er þarna skúr sem sjósleðamenn hafa umráða yfir og leigja þeir út þessi nýtilkomnu tómstunda- tæki. Úti á voginum má líta þessa sleða sem þeysast um hafflötinn með fretum og skellum. Þar gefur einnig að líta litla báta undir seglum og enn eru þar bátar sem knúðir eru með árum. Það er sem sagt mikið um að vera þarna á voginum og við hann og eru flestir sem tækjunum stjórna ungir að árum. UNGUR LEIÐBEINANDI Þegar okkur ber að garði stendur yfir fyrirlestur í húsa- kynnum tómstundaráðsins. Við veitum því strax athygli að fyrirlesarinn er kornungur og skýrir fyrir enn yngri nemend- um galdur siglinganna. Máli sínu til skýringar teiknar hann bát með hvítri krít á græna töflu og dregur síðan örvar sem eiga að tákna vindáttina. Þá spyr hann einn nemandann hvernig hann ætli að sigla í stefnu á bauju sem hann teiknar einnig á töfluna. Kenn- arinn lætur ekki nægja að bera upp spurninguna heldur segir hann nemandanum að koma Leiðbeinandinn Ólafur Finnbogason kennir ungum nemendum galdur- inn að sigla móti vindi. V Þeir Ólafur Finnbogason og Jón Teitur Sigmundsson eru leiðbein- endur hjá Siglingaklúbbnum Sigurfara á Seltjarnarnesi. upp að töflunni og teikna þá leið sem hann mundi sigla til að komast fyrir baujuna. Nem- andinn gengur að töflunni og teiknar leiðina sem hann mundi velja. Kennarinn er ekki ánægður með útkomuna, þurrkar út strikin sem nemand- inn hefur gert og teiknar síðan þá leið sem best væri að fara. Þannig gengur þetta fyrir sig um stund. Kennarinn býr til nýjar aðstæður á töfluna og skýrir út með strikum hvernig best væri að leysa hinar ýmsu aðstæður hvað siglinguna varðar. TÍU DAGA NÁMSKEIÐ Okkur leikur forvitni á að vita nánari deili á kennaranum og þeirri starfsemi sem fram fer þarna við Suðurströnd. Við náum tali af honum að kennslustund lokinni og spyrj- um hann að nafni. Hann kveðst heita Ólafur Finnboga- son og hafa byrjað í siglingum þegar hann var tíu ára. Það séu nú um níu ár síðan Sigl- ingaklúbburinn Sigurfari var stofnaður en það sé tóm- stundaráð Seltjarnarnesbæjar sem sjái um rekstur klúbbsins. Ólafur segir klúbbinn hafa til umráða litla seglbáta og ára- báta. Ólafur segir seglbátana vera af tegundunum Topper, Laser og Optimist. Hvert námskeið standi í tíu daga og sé þátttaka mjög góö. Ölafur segir að siglingakeppnir séu haldnar með vissu millibili og fari þær flestar fram í Naut- hólsvík. Námið er bæði verk- legt og bóklegt, segir Ólafur. Hann segir ennfremur að áhugi þátttakenda sé mjög mikill og félagsandinn sé með afbrigöum góður. HVAÐ UNGUR NEMUR „UNGUR“ TEMUR Að gefnum þessum upplýsing- um gengur Ólafur með okkur niöur að naustinu. Þar eru bát- ar af ýmsum stærðum og gerðum eins og áður er getið. Þar er fjöldi barna og unglinga og eru margir í flotbúningum og allir í björgunarvestum. Ólafur segir nemendur venjast því fljótt að blotna og þyki flestum hið mesta sport að koma rennandi blautir heim. Niðri við naustið er félagi Ólafs, Jón Teitur Sigmunds- son, en þeir tveir annast nám- skeiðin. Við fáum þá félagana til að stilla sér upp fyrir mynda- Frh. á bls. 61 46 VIKAN 17. TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.