Vikan


Vikan - 17.12.1942, Qupperneq 32

Vikan - 17.12.1942, Qupperneq 32
32 JÓLABLAÐ VTKUNNAR 1942 Söngflokkur K.F.U.M. og K.F.U.K. Stofnaður árið 1900. (Myndin tekin 1902). Stjómandi kórsins var Brynjólfur Þorláksson. Kvenfólkið: Fremsta röð (í sætum), talið frá vinstri: Margrét Benediktsdóttir, Marta Indriðadóttir, Sigríður Björnsdóttir, Guðrún Bergsdóttir. Önnur röð: Guðríður Þórðardóttir, Steinunn Guðmundsdóttir, Benediktma Benediktsdóttir, Eygló Gísladóttir, Þorbjörg Sighvatsdóttir, Doróthea Ólafs- dóttir. Þriðja röð (standandi): Gróa Bjamadóttir, Hedvig Bartels Blöndal, Sigríður Jónsdóttir, Guðrún Þorkelsdóttir, Emilía Sighvatsdóttir, Elín Guð- mundsdóttir, Amdis Bartels Ámason, Ólöf Bjömsdóttir, María Sigurðardóttir, Anna Bergsdóttir, Þóra Jónsdóttir, Ólöf Sveinsdóttir. Efsta röð: Ragn- heiður Jónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Sigríður Gunnlaugsdóttir. Karlmennirnir, talið frá vinstri: Séra Friðrik Friðriksson, Gísli Guðnason, Brynjólfur Þorláksson, söngstjóri, Vigfús Guðbrandsson, Jóhann Erlendsson (fyrir aftan), Magnús Magnússon (með stráhatt), Herbert Sigmundsson, Magnús Erlendsson, Björn Sveinsson (aftast), Pétur Halldórsson, (fyrir aftan hann hálft andlit) Hallgrímur Benediktsson, Vilhelm Jónsson, Sigurður Þorsteinsson (við gluggapóstinn), Jón Hermannsson, Haraldur Árna- aon, (fyrir aftan hann sér á hálft andlit) Hjörtur Hansson, Þorkell Guðmundsson, Karl F. Bartels, Jón Hj. Kristinsson, Stefán Guðnason. Maðurinn lengst til hægri er C. Fermaö, fulltrúi frá alþjóðaskrifstofu K.F.U.M. í Sviss. fyrsti dómkirkju-organleikari, hafði tekið að sér söngkennslu við skólann þrem ár- um fyrr og gegndi hann því starfi til dauðadags 1877. Má þá með sanni segja, að lærði skólinn í Reykjavík sé vagga hins íslenzka karlakórssöngs. Guðjohnsen var hinn mesti brautryðjandi á söngsins sviði, var lærður vel og ágætis kennari. Eftir Guðjohnsen tók við söngkennslu skólans Steingrímur Johnsen, cand. theol.; var hann framúrskarandi raddmaður og smekkmaður. Steingrímur lét sér annt um að halda ötullega fram á þeim grundvelli, sem Guðjohnsen þegar hafði lagt, stjórn- aði utan skóla oftsinnis ,,blönduðum“ kór- um á kirkjuhljómleikum í dómkirkjunni, en þeir hljómleikar voru um langt skeið einhver mesta nautn bæjarbúa og þar gaf að heyra margt fagurt úr söngverkum Bachs, Haydn’s, Hándels, Beethovens og Mosart’s. Steingrímur stofnaði karlakór- inn „Söngfélagið af 14. janúar“, sem við mikinn og góðan orðstír hélt marga sam- söngva hér í bæ; um nokkurra ára skeið starfaði flokkurinn og voru í honum flestir beztu söngmennirnir, sem þá voru á íífi. Steingríinur var sjálfur hinn mesti og bezti raddmaður, lærður vel og mikill smekk- maður. Þótti öllum hin mesta unun að heyra hann syngja einan, hann var lífið og sáhn í sönglífi bæjarins um 30 ára skeið og átti því afarmikinn þátt í þróun söng- menntar vorrar allt fram að aldamótum. Fyrsti samsöngur á Islandi hefir að líkindum verið sá, sem skólapiltar héldu 2. apríl 1854, undir stjórn Guðjohnsens í langa svefnloftinu í skólanum. Var bæjar- Pétur Guðjohnsen organisti (1812—1878). Jónas Helgason organisti (1839—1903). búum boðið þangað, og „þótti takast vel“ (sbr. Bjami Þorsteinsson: „Islenzk þjóð- lög4', bls. 60). Frá lærða skólanum bárust þessir menn- ingarstraumar, karlakórssöngurinn og skipulagður söngur ósamkynja radda, víðsvegar út um land, svo sem eðlilegt var, Söngfélagið af 14. janúar 1892 (myndin tekin 1895). Söngstjóri var Steingrímur Johnsen. Fremsta röð frá yinstri: Sigurður Magnússon, kennari, frá Flankastöðum, Þorbjöm Þórðarson, læknir, Guðmundur Olsen, kaupmaður, Steingrímur Johnsen, söngstjóri, Sigurður Waage, verzlunarstjóri, Jón Brandsson, prófastur. önnur röð: Sigfús Einarsson, tónskáld, Þórður Guðmundsson, frá Hól, Jón Laxdal, tónskáld, Sigurður Péturss, cand. phil., Þorsteinn Jónsson, jámsmíðameistari, Páll Vídalín Bjamason, sýslumaður, Benedikt Þ. Gröndal, skáld. Þriðja röð: Jón Ámason, kaup- maður, Halldór Jónsson, prófastur, Reynivöllum, Ólafur Briem, prófastur, Steingrimur Matthíasson, iæknir, Brynjólfur Þorláksson, dómkirkjuorganleikari, Þorkell Þorláksson, stjómarráðsritarí, Siggeir Torfason, kaupmaður, Gísli Guðmundsson, bókbandsmeistari. 1 r \
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.