Vikan - 17.12.1942, Qupperneq 43
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1942
43
Anaerískur sendiherra á íslandi. Mynd
þessi er af Leland B. Morris sendiherra
Ameríku á Islandi. Hann kom í stað
Lincoln Mac Veagh, sem var gerður að
sendiherra í Suður-Afríku. Staða Morris á
íslandi er þýðingarmikil vegna þess, að
mikið er nú af amerískum hersveitum þar,
segir í fregninni, sem myndinni fylgdi að
vestan.
Fræg kýr. Mynd þessi sýnir kúna Elsie, sem vann rnörg verðlaun á heimssýningunni í New York,
ásamt syni sínum ,,Victory“ (sigur).
Sofandi barn. Mynd þessi sýnir
litla, sofandi stúlku, Daniellu de
Prume, flóttabarn frá Evrópu, sem
leitað hefir hælis í Ameríku. Á
flóttabarnaheimili því, sem hún er
á, eru börn frá um tuttugu og
sjö þjóðum.
Tíu ára gantiall prédikari. Mynd
þessi sýnir tiu ára gamla stúlku,
Hazel Leighton, sem þegar hefir
prédikað í tvö ár. Hún segir, að
nótt eina, er hún hafi legið í rúmi
sinu, hafi guð sagt henni, að hún
ætti að predika sannleikann fyrir
mönnunum.
Stalin og i nui'cmn intiast. Mynd þessi sýnir Winston Churchill
forsætisráðherra Bretlands og Joseph Stalin, er þeir ræddust við
í Kreml í sumar. Virðist samkomulagið gott hjá þeim eftir svipn-
um að dæma.
/
Sjálfboðaiiðar við niðursuðu ávaxta. Mynd þessi sýnir amerískar konur
vera að búa grænmeti undir niöursuðu. Eru bæði ávextirnir og vinnan
gefin, og á ekki að nota hina niðursoðnu ávexti fyrr en nauðsyn krefur.
Borðaði dósalykil. Mynd þessi sýnir litla ameriska telpu, Sharon Bell, sem
lá lengi fyrir dauðanum, vegna þess, að hún hafði borðað dósalykil, og
stóð hann fastur í hálsi hennar. Voru gerðir á henni fjórir uppskurðir.