Vikan


Vikan - 17.12.1942, Side 48

Vikan - 17.12.1942, Side 48
48 JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1942 Samvinnumenn vilja samkeppni í verzlun. — En samkeppnin á a9 tryggja lágt vöruverð. KRON hefst handa um nýja afgreiðslutilhögun, sem dregur úr dreifingarkostnaði. SjáúfsldptL. Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um að gera kostnað sinn sem minnstan í hlutfalli við söluna. Það á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó fær slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlana neytenda hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju neytendanna. Séu einkafyrirtækin ein um verzlunina, sýnir reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök. KRON hefir haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreif- ingarkostnaðinn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrirkomu- laginu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl sparist, og nota ýmiss konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr vöru- rýrnun. Nú síðast hefir KRON opnað nýja búð í tilrauna- skyni, þar sem ætlast er til, að viðskiptamennirnir afgreiði sig að mestu leyti sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið launagreiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slíkar húðir eru nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar sem sam- keppni er mjög hörð. KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig að þeir taki nýjunginni vel. Neytendum er hér með gerður kostur á að efla eiginn hag, með því að í sjálfskiptabúðinni eiga þeir aldrei að þurfa að bíða eftir afgreiðslu, og allur sparnaður af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til þeirra sjálfrá.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.