Vikan - 17.12.1942, Blaðsíða 48
48
JÓLABLAÐ VIKUNNAR 1942
Samvinnumenn vilja samkeppni í
verzlun. — En samkeppnin á a9
tryggja lágt vöruverð.
KRON hefst handa um nýja afgreiðslutilhögun, sem dregur úr dreifingarkostnaði.
SjáúfsldptL.
Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um
að gera kostnað sinn sem minnstan í hlutfalli við söluna. Það
á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó fær
slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli
einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlana neytenda
hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju
neytendanna. Séu einkafyrirtækin ein um verzlunina, sýnir
reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök.
KRON hefir haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka dreif-
ingarkostnaðinn, t. d. með því að koma á pöntunarfyrirkomu-
laginu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl sparist, og nota
ýmiss konar áhöld, sem bæði spara vinnu og draga úr vöru-
rýrnun. Nú síðast hefir KRON opnað nýja búð í tilrauna-
skyni, þar sem ætlast er til, að viðskiptamennirnir afgreiði
sig að mestu leyti sjálfir. Er þá ætlað að spara talsvert mikið
launagreiðslur og lækka þannig dreifingarkostnaðinn. Slíkar
húðir eru nú orðnar algengar í Bandaríkjunum, þar sem sam-
keppni er mjög hörð.
KRON vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni, þannig
að þeir taki nýjunginni vel. Neytendum er hér með gerður
kostur á að efla eiginn hag, með því að í sjálfskiptabúðinni
eiga þeir aldrei að þurfa að bíða eftir afgreiðslu, og allur
sparnaður af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til
þeirra sjálfrá.