Vikan


Vikan - 17.12.1942, Síða 51

Vikan - 17.12.1942, Síða 51
JÓLABLÁÐ VIKUNNAR 1942 51 IH ÞORSTEINN ERLINGSSON EGAR ég var smádrengur, fluttist til Seyðisf jarðar merkur maður, sem ég kynntist fljótt, þótt smár væri. — Ekkert vissi ég um það, hvers vegna hann var talinn merkur maður, en einhverja hugmynd hafði ég þó um það, að einmitt þess vegna væri hann kominn í okkar pláss, — því að oft var minnst á hann heima, þennan mann. Eg gerði mér hins vegar sjálfur mínar hugmyndir um það, hvers vegna hann væri merkur maður: hann var svo fríður sýnum og góðlegur, þó að hann væri með alskegg, — en al- skegg var mér þá illa við á mönnum — og njálrómur hans var svo þýðlegur, —. og hann var svo góður við mig, — og hann var svo góður við grátittlingana. Það var ýmislegt fleira, sem undrun mína vakti í fari þessa manns og lotningu fyrir honum: Hann hafði meira af bókum í kringum sig en ég hafði áður séð á einum stað, — ég vissi það ekki þá, að ég hafði séð svo und- ur lítið af þessum heimi, — og í öllum þessum kynstrum af bókum voru bækur með myndum, og ein þeirra 'stærri en nokkur myndabók, sem ég hafði séð, með myndum af fuglum og alls konar dýrum, — það var gaman að fá að sitja flötum beinum á gólfinu hjá honum, þessum merka manni, og mega blaða í þessari bók: •— hreinn um hendurnar? — ekki að rífa blöðin! — önnur voru skilyrðin ekki, — og svo að fá að heyra sögur um dýrin og fuglana, ef hann hafði tóm til að sinna mér. Og hann gaf sér oft tóm til þess. Annars var hann alltaf að lesa eða skrifa, þessi maður. Og þá var það eitt undrunar- efnið: hann sat aldrei við skrifborðið sitt, þó að hann væri að skrifa, — pabbi sat alltaf við borðið, þegar hann skrifaði, og hann var alltaf eitthvað að skrifa, í tóm- stundum sínum á kvöldin. Nei, þessi maður sat allan daginn í völtustól á miðju gólfi í skrifstofukytrunni sinni, hvort heldur hann var að lesa eða skrifa. Það var ákaf- lega merkilegt, fannst mér, að geta skrif- að, og skrifað svona fallega skrift, sitjandi aftur á bak og ,,rugga“ sér á meðan, með smákver í annarri hendinni, undir pappírs- örkinni, sem hann skrifaði á. Og þegar snjó lagði á jörð, var hann alltaf að standa upp öðru hvoru og líta út um gluggana, — þeir voru tveir og vissi sinn í hvora áttina, — og svipast um. „Þarna eruð þið þá komnir, vesalingarnir!“ sagði hann svo. Og ég komst brátt að því, hverjir þessir vesalingar voru, sem hann hafði verið að skyggnast eftir, það voru grátittlingarnir! Hann lét gera hlera neð- an við gluggana sína, úti fyrir, og á þessa hlera fleygði hann ýmsu ætilegu, sem hann vissi, að þessum litlu vinum hans kom vel í harðindunum. Og þeir vissu strax til hvers þessir hlerar voru, þó að fullorðna fólkið skildi það ekki jafnfljótt, — og smiðirnir, sem smíðuðu þá og komu þeim upp fyrir hann, héldu, að hann væri ekki með öllum mjalla. Grátittlingarnir þyrpt- ust að úr öllum áttum í tuga og hundraða tali, og tíndu upp brauðmolana og kornin, sem borið var þarna á borð fyrir þá. Og merki maðurinn stóð við gluggana á víxl og hjalaði við vinina sína, eins og lítil börn, sem ættu ósköp bágt. Og ég bað pabba að gefa mér hlera fyrir utan „minn glugga“ — hinu megin í húsinu — og þar eignaðist ég líka mína vini. Hvergi var eins mikið af grátittlingunum, eða umhverfis nokkurt hús á Seyðisfirði, og hjá „Bjarka“, — en svo var húsið nefnt, eftir blaðinu, sem þar var gefið út og prentað, — og mér hefir síðan dottið í hug, að óvíða á landinu muni grátittlingum hafa verið sint jafn vel og á Seyðisfirði á þessum árum. Því að margir tóku upp sið merka manns- ins, ritstjórans og ljóðskáldsins góða, Þor- steins Erlingssonar. Þetta var hann, þessi merki maður, og hann var þar hjá okkur nokkur ár. Og ég á margar Ijúfar minn- ingar um Þorstein frá þeim árum og marg- ar þeirra broslegar líka. Hér skal nú sagt frá einni slíkri. Eitt var það mitt skyldustarf, þegar ég var drengur, að hirða um fáein hænsn, sem móðir mín átti. All-fús var ég að sinna þessu, því að mér fannst mér vera sýnt nokkurt traust með því. Það var auðvitað brýnt fyrir mér, að mjög væri áríðandi, að þetta væri sam- vizkusamlega af hendi leyst, hænsnunum gefið reglulega, hænsnahúsinu haldið þrifa- legu, hafðar gætur á því, að ekki væri súgur á hænsnunum og að ekki rigndi inn á þau. En þetta gaf mér oft kærkomið til- efni til að nota nagla og hamar, — ég hafði ákaflega gaman af að „smíða“, eins og títt er um drengi, og alltaf var eitt- hvað hægt að klambra við þennan hænsna- kofa. Þetta gekk allt saman prýðilega, þó að fyrir kæmu mistök. En þau voru þá helzt þau, að egg vildu stundum ónýtast hjá mér, með dálítið leiðum hætti. Ég leit venjulega inn í kofann, þegar ég átti leið fram hjá honum, og tók þá eggin, ef nokk- ur voru. Það gat þá viljað til, að ég ræk- ist á einhvern leikbróður minn á leiðinni heim að húsinu, gæfi mér ekki tíma til að skila eggjunum, ef þau voru fá, t. d. tvö eða þrjú. Stakk ég þeim í buxnavasana, ef ég þóttist þurfa að nota hendumar til annars. Kom það þá fyrir, að ég gleymdi þeim alveg og hugsaði ekki um þau fyrri en ég rankaði við mér við það, að ég var farinn að vökna innan klæða, — eggin þá orðin að óþrifnaði í vösum mínum! Alltaf má búast við því, að einhverjar áhyggjur fylgi ábyrgðarmiklum störfum. Og það var ekki örgrant um það, að ég hefði nokkrar áhyggjur út af hænsnunum hennar móður minnar. Einkum var það ein hænan, ljótt, gult og geðvont hænurægsni, sem oft gerði mér lífið leitt. Hún sóttist eftir að liggja á eggjunum sínum, en henni var ekki leyft það nema stöku sinnum, því að hún var engin hæna til þess að hirða um unga sína, þegar hún var búin að koma þeim úr eggjunum. En hún tók þá bara til sinna ráða, og verpti alls ekki heima hjá sér, þegar þessi gállinn var á henni. Hún fann sér fylgsni á hinum ólíklegustu stöð- um, þar sem hún bjó um sig, verpti og ,,lá á“, og svo var hún slungin, að ég var oft í marga daga og jafnvel vikur, að leita þessa staði uppi. Það kom fyrir, að ég fann þá aldrei, en hún kom þá ef til vill spás- sérandi heim, einn góðan veðurdag, með heila hersingu af ungum á eftir sér. En þegar hún var búin að velja sér stað, var hún svo slóttug, að ég hafði ekki roð við henni. Hún sat þá um færi að ,,hverfa“ einhvern veginn, t. d. ofan í skurði eða moldarflög og híma þar tímunum saman, þangað til hún þóttist vera viss um, að ég væri búinn að gleyma henni, — eða þá að hún vissi, að ég var hvergr nærri, og og Ijóta, gula hœnan skauzt þá til sinna eggja, til þess að bæta við sig — og svo týndist hún alveg dög- um saman, lá á eggjunum og bjargaði sér einhvern veginn upp á sínar eigin spýtur. En ég fékk skömm í hattinn á hverju kvöldi fyrir ódugnaðinn, að finna ekki hreiðrið hennar. Og það var sannarlega öðru nær, en að mér þætti vænt um ljótu, gulu hænuna. Einu sinni sem oftar var á henni þessi gáll, — hún búin að vera að heiman í marga daga og ég búinn að leita mig þreyttan. En einn daginn, er ég var að koma heim úr sendiferð fyrir móður mína, sá ég henni bregða fyrir — og tókst þá allur á loft. Hún var að skjótast inn í anddyri prent- smiðjunnar, sem var í öðrum enda húss- ins okkar. Ég hafði verið spölkorn í burtu, en brá á sprett. En þegar ég kom inn í forstofuna, var hænan horfin. Allar hurðir í forstofunni voru lokaðar, svo að hænan hlaut að hafa farið upp á loftið, því að stiginn var þarna, gegnt útidyrunum. Ég fór upp á loftið, en það var óinnréttað, að öðru leyti en því að þar var eitt herbergi, sem Þorsteinn notaði þá sem svefnher- bergi, en annars var loftið eitt gímald og notað til geymslu á pappír og alls konar skrani, — og engir gluggar á. Þarna var auðvelt fyrir hænuna að fela sig, enda fann ég hana ekki. Leitaði þó aðeins laus- lega á loftinu þá, og gægðist inn í svefnher- bergi Þorsteins, því að hurðin stóð í hálfa gátt. En nú þóttist ég þurfa að fá leyfi Þor- steins til að leita rækilega á loftinu, fór niður aftur og knúði að dyrunum á skrif- stofu hans. Spurði ég hann, hvort hann hefði ekki orðið var við ljótu, gulu hæn- una mína undanfarna daga, — hún myndi halda til einhvers staðar á loftinu. Hann svaraði þeirri spurningu ekki, en fór að brosa, og sagði: „Er hún nú að angra þig enn þá einu sinni, ótætist ljóta, gula hæn- an?“ Ég hélt það nú, og kvaðst hafa séð til hennar fara inn í forstofuna, — hún væri eflaust einhvers staðar á loftinu, — hvort ég mætti ekki gera rækilega leit að henni þar? ,,Já,“ sagði Þorsteinn og var enn bros- andi, „líklega er hún einhvers staðar á loft- inu, hænu-tetrið, og þú mátt leita, og leit- aðu nú vel!“ — en svo bætti hann við: „Þú hallar aftur hurðinni á svefnherberg- Framhald á bls. 52.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.