Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 43
Sem sagt, elskuleg, eins og
þú bendir sjálf svo skynsam-
lega á, þá hefur þú margt aö
þakka fyrir og af þeim ástæð-
um hefur þú ennþá meiri
möguleika á að auka líklega
farsæld þína, meö því að líta
fremur á það sem þú ert að
takast á við í eigin fari sem
tímabundið ástand, sem þarf
að vinna sig frá, en einhver
óyfirstíganleg vandamál sem
engin leið er að finna leið út úr.
Með tilliti til þess sem þú átt
og hefur er þér vorkunnarlaust
að hefja rólega og elskulega
þitt eigið uppbyggingarstarf og
Ifta með tilhlökkun til framtíð-
arinnar. Hún getur vissulega
orðið bæði farsæl og happa-
drjúg ef þú óskar þess sjálf og
nennir að vinna til þess.
eru minnimáttar á einhvern
hátt og þú gætir með þessum
augljósu eiginleikum stutt. Þú
hefur frekar kraftmikla skap-
höfn og engu líkara en þú hafir
um langan tíma safnað upp
reiði og vonbrigðum sem
verða að ganga út. Annars er
sennilegt að lífsleiði grípi þig
eins og þú reyndar finnur í
augnablikinu.
Líkur á sjálfstæði og fersk-
um hugmyndum eru miklar. Þú
ert útsjónarsöm, skipulögð og
framtakssöm ef áhugi þinn fer
saman við framkvæmdir. Tillit-
semi er þér í blóð borin og af
þeim ástæðum hættir þér við
að setja eigin þarfir til hliðar
við þarfir þeirra sem eru
framhleypnari og grófar and-
lega en þú.
MANNGERÐ OG
MÖGULEIKAR
GÓÐ MARKMIÐ
NAUÐSYNLEG
Þú ert greinilega mjög við-
kvæm og alltof sjálfsmeðvituð,
fyrir utan að þú hugsar mun
meira en þú framkvæmir
ennþá. Það er reyndar töluvert
í þig varið og hæfileikar þínir
margþættir.
Þú ert með upplag sem er
mannlegt og milt og þess
vegna færi vel á því að afla sér
reynslu sem tengist þeim sem
Þú ert íhaldssöm og heima-
kær og þarft þar af leiðandi að
eignast eigin fjölskyldu. Þann-
ig hyrfi líka þessi mikla og lam-
andi sjálfsmeðvitund sem lík-
leg er til að fjötra þig og gera
þig óörugga ef ekkert er að
gert. Þú ert forvitin um lífið og
mögulegan tilgang þess og
ættir því að efla andann og
auka við viðsýni þína með því
aö umgangast ólíkt en áhuga-
vert fólk á mismunandi sviðum
mannlífsins.
Þér er nauðsynlegt að hafa
stefnu og markmið í lífinu, auk
þess sem þú þarft að sjá
árangur erfiöis þíns og mark-
miða. Þú gætir verið að fara
inn í mjög jákvætt fimm til sjö
ára tímabil, þar sem flest verð-
ur jákvæðar og öflugra í því
sem þú tekur þér fyrir hendur,
miðað við til dæmis síðustu
þrjú árin í lífi þínu.
Flestir eiginleikar þínir og
hæfileikar eru huglægir og til-
finningalegir. Þeir eru ekki
beint verklegir þó vissulega
getir þú verið liðtæk þar ef þú
nennir. Samt sem áður, eins
og áður sagði, er í þér mikil til-
finningaleg mannúð og vei
byggðir huglægir eiginleikar.
Hvort tveggja vísar á að þú átt
að axla ábyrgð I lífi og störfum
og þér mun farast h' ort
tveggja vel.
Mér sýnist á þessari skoðun
og umsögn um manngerð
þína og hugsanlega mögu-
leika hennar að það standi
einungis á trú þinni og vilja til
framkvæmda, frekar en að um
sé að ræða einhverja augljósa
vöntun á möguleikum eða
getu til framkvæmda.
Eða eins og spælda unga
konan sagði eitt sinn að vel
heppnuðu verki loknu:
„Elskurnar mínar, síðan ég
hætti að efast um eigið
ágæti og tók eftir að ég var
bæði sæt og greind er engu
líkara en ég dragi að mér
einmitt það sem hugur minn
stendur til, þó fátt benti til
þess í fyrstu. Auk þess
gengur allt betur þegar kem-
ur að lausnum hvers kyns
mála.“
Guð efli með þér aukinn
áhuga á eigin ágæti og gefi
þér þrótt og þor til að hefja
uppbyggingarstarfið.
Með vinsemd,
Jóna Rúna.
Vinsamlega handskrifið bréf til Jónu Rúnu og látið fylgja fullt nafn
og kennitölu, ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi Jónu
Rúnu og rithandarlestri og því miður er alls ekki hægt að fá þau
í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104 Reykjavík.