Vikan


Vikan - 04.04.1991, Page 52

Vikan - 04.04.1991, Page 52
tuttugu og sex árin eöa þar til hann haföi full- gert myndina Einræðisherrann (áriö 1940) sem var ádeila á Hitler og öfgastefnu hans, en Chaplin var gyðingur. Hann lék í tólf stuttum myndum þar til hann fékk loksins tækifæri til að semja og stjórna þrettándu myndinni sjálfur. Hún hét Caught in Þannig leit hann i rauninni út um þrítugt - þegar gervinu var sleppt. mistök. Myndin hlaut litla aösókn því fólk vildi sjá hann sjálfan. Tvö ár liðu þar til næsta mynd hans var frumsýnd. Þaö var Gullæðið. Sú mynd er af mörgum kvikmyndafræðingum talin besta mynd hans. Hún var líka sú mynd sem honum þótti best á öllum ferli sínum. Tveim árum seinna komu óskarsverðlaunin til sögunnar og við það fékk hann sérstök verðlaun fyrir fram- lag sitt til kvikmyndanna. Hins vegar fékk hann aldrei á ævinni verðlaun fyrir neina eina mynd. Um svipað leyti gerði hann myndina Sirkusinn. Hún varð auðvitað gífurlega vinsæl eins og allt sem hann hafði gert - en þá kom ný tæknibylt- ing til sögunnar sem margir héldu að myndi binda enda á frama hans. Talmyndirnar komu til sögunnar. Þegar hér var komið sögu var Chaplin orð- inn svo vinsæll að leikarar um víða veröld voru farnir að stæla hann, þótt engum tækist það nema að litlu leyti. Hann hafði þann einstæða hæfileika að geta látið fólk veltast um úr hlátri og gráta hljóðum tárum sömu mínútuna. Hann var fjaðurmagnaðri en bestu ballettdansarar og enginn látbragðsleikari var honum fremri. Hann þurfti blátt áfram ekki að tala því að hann gat sagt allt sem segja þurfti með látbragðinu einu saman. En nú var fólk farið að fúlsa við þöglum myndum og vildi bara talmyndir. Þetta gekk svo langt að myndir þar sem fólk gerði lítið annað en að tala saman urðu vinsælar. Chaplin beið til ársins 1931 en þá frumsýndi hann nýjustu mynd sína, Borgarljós. Hún var þögul; ein mynda innan um allar talmyndirnar. Að vísu var tónlist í henni, sem Chaplin hafði sjálfur samið og stjórnað, en það var ekki sagt eitt aukatekið orð í henni. En viti menn. Myndin sló í gegn og fór sigurför um heiminn. Fimm ár liöu þar til næsta mynd leit dagsins Ijós. Hún the Rain og hann var aðeins 23 ára. Það var líka fyrsta myndin þar sem flækingurinn frægi með harðkúluhattinn og stutta yfirskeggiö fékk verulega að njóta sín. Tæpu ári seinna gerði hann þá mynd sem talin er fyrsta meistaraverk hans: The Tramp (Flakkarinn). GÍFURLEGAR VINSÆLDIR Hann haföi þegar leikið í á fjórða tug mynda svo að nú fór hann að hægja á ferðinni. Á næstu árum gerði hann meðal annars mynd- irnar Skautasvellið, Easy Street, Innflytjandinn og Ævintýramaðurinn. Hann var nú orðinn frægur um víða veröld. Árið 1918, þegar hann var 27 ára, gerði hann fyrstu löngu myndina sína, Shoulder Arms. Tveim árum seinna kom fyrsta stórmynd hans, The Kid (Drengurinn). I millitíðinni, árið 1919, stofnaði hann kvikmynd- afyrirtækið United Artists ásamt Douglas Fair- banks, Mary Pickford og D.W. Griffith. Þrítugur að aldri fór hann í heimsókn til Evrópu. Þar gerði hann sér í fyrsta sinn á ævinni Ijóst hversu gífurlega vinsæll hann var orðinn. Hann var kallaður Scharlie í Þýska- landi, Charlot í Frakklandi og hefði hann komið til íslands hefði hann heyrt að minnsta kosti eitt nafnið í viðbót, Sjapplín. Þegar hann sneri aft- ur til Bandaríkjanna samdi hann og leikstýrði mynd sem hét A Woman of Paris en lék aðeins stutt aukahlutverk í henni sjálfur. Þaö voru Friðarsinninn Charlie Chaplin fór snemma að gera grín að hernaðarbrölti. Hér er hann í myndinni Shoulder Arms frá árinu 1918. ________________________________________________ Chaplin, á gamals aldri, að herma eftir stíl yngri leikara eins og James Bean í Giant og Jon Voight í Midnight Cowboy. hét Nútíminn og var einnig þögul og svart/hvít þar að auki þótt litmyndir væru komnar til sögunnar. Hvað er maðurinn að meina? spurði fólk. Talmyndir höfðu verið við lýði í átta ár eða jafnlengi og Bítlarnir voru í sviðsljósinu um það bil þrjátíu árum seinna. Að vísu var myndin ekki alveg þögul. Chaplin söng eitt frumsamið lag í henni með bulltexta sem var eins konar hrærigrautur úr hinum og þessum tungumál- um, tilbúnum og raunverulegum. Hann samdi líka tónlistina og stjórnaði henni. En myndin sló í gegn. CHAPLIN OG HITLER Síðari heimsstyrjöldin skall á og hataðasti maður heimsins var Adolf Hitler, Austurríkis- maður sem var aðeins fimm dögum yngri en Chaplin. Yfirskeggið á Hitler fór í taugarnar á þessum meistara kvikmyndanna því að það var nauðalíkt yfirskeggi Chaþlins. Að vísu klippt beint niður en ekki örlítið á ská, samt nauðalíkt. Þetta fór í taugarnar á Chaplin og sömuleiðis allt sem maðurinn stóð fyrir. Chapl- in var gyðingur, Hitler gyðingahatari. Chaplin var friðarsinni, Hitler stríðsæsingamaður. Chaplin var hjartahlýr húmoristi og kvenna- maður, Hitler kaldrifjaður, húmorslaus pipar- sveinn. Chaplin vildi sýna heiminum hverslags við- rini og hallærisfyrirbæri þessi Hitler væri og gerði myndina Einræðisherrann árið 1940. Það var fyrsta talmyndin hans og eina myndin sem hann leikur tvö hlutverk í; nettan hárskera sem er gyðingur og ófyrirleitinn einræðisherra sem er laus við allar mannlegar tilfinningar. Nú var loksins komin talmynd með meistaranum og um leið og hann gaf frá sér fyrsta hljóðið í myndinni lá salurinn úr hlátri. í því atriði er hár- skerinn kominn í stríðið og hefur villst í þoku, rétt við víglínuna. Hann veit ekki hvorum meg- 52 VIKAN 7. TBL. 1991

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.