Vikan


Vikan - 31.10.1991, Qupperneq 6

Vikan - 31.10.1991, Qupperneq 6
leikritið Farðu ekki." Ásdís hefur auk þess leik- stýrt og leikið sjálf í útvarpsleikritum og hefur alltaf verið tengslum við leikhús, alit frá barna- skólaárum sínum á Eskifirði. En auk leik- og kennaranáms hefur Ásdis háskólapróf í stjórn- málafræðum, nokkuð sem hún vill kalla félags- fræði vegna þess að annars vill fólk meina að hún viti allt um pólitík. „Stundum sé ég mér hag í þvi að segjast vera stjórnmálafræðingur, til dæmis til að styrkja það að skoðun mín á einhverju tilteknu máli sé rétt og á rökum reist." Þá hefur Ásdís starfað við félagsráðgjöf og með frístundahópnum Hananú í Kópavogi, hvaðan hún segist hafa fengið mikla reynslu sem reynist henni vel í leikstjórninni. Hún seg- ist hafa fengið snert af menningaráfalli við reynslu sína af félagsráðgjöf þvi kennaradótt- irin frá Eskifirði hafi enga grein gert sér fyrir því hörmungarástandi sem margir búa viö í okkar „allsnægtaþjóðfélagi". Og hér heimtaði Ásdís gæsalapþir utan um allsnægtaþjóðfélag, hefur greinilega séö á því fleiri hliðar, sem ekki eru öllum sýnilegar. DÁGOn SÝNISHORN Ásdís vill vera frjáls á vinnumarkaði og þvi lýsir hún með eftirfarandi orðum: „Ég vil deyja á annan hátt en að vera inni á einhverri skrif- stofu. Ef til vill er þessi „óheþþni" mín að hafa aldrei fengið fastráðningu í leikhúsi bara gæfa mín. Kennara- og leikaramenntunin hefur gert mér kleift að lifa af þeim störfum auk þess sem ég hef verið töluvert í dagskrárgerð i útvarpi." Þar var hún til dæmis með umdeilda þætti, ABC með Ingu Huld Hákonardóttur, sem þóttu nokkuð róttækir enda segist Ásdís vera mikil rauðsokka. Hún segir Jón Múla hafa ort vísu um þær stöllur sem hljóöaði þannig: Eigin- mennirnir úti púla / eiga sína refsinorn. / Inga Huld og Ásdís Skúla / eru dágott sýnishorn. Einhvern veginn æxlaðist það svo að leik- stjórinn náði yfirhöndinni yfir leikkonunni. „Þegar ég fór með vinum minum á leiksýning- ar var ég minnst að skoða leikinn heldur var ég að velta fyrir mér hvernig til dæmis lýsingin var, tónlistin, litirnir og svo framvegis. Þetta er kannski bara stjórnandinn í mér sem lætur svona enda er ég alltaf meira og minna i þvi hlutverki hvað sem ég tek mér fyrir hendur, ég er alltaf að stjórna einhverjum eða einhverju." STJÓRNANDI AF LÍFI OG SÁL Ásdis segir það vera hina skemmtilegustu reynslu að stýra fólkinu sem bæöi hefur kennt henni og leikstýrt. Hún segist reyndar vera laus við allan ótta þar sem allt þetta fólk hafi reynst henni einstaklega vel. En hvernig geng- ur leikstjóra á tuttugustu öld að leikstýra verki sem á aö gerast fyrir tvö hundruð árum? „Fyrir tvö hundruð árum voru uppi manneskjur eins og við. Tilfinningar eins og ástir og sársauka hefur manneskjan alltaf haft. Þó okkur finnist tiðin fyrir tvö hundruð árum vera sautján hundruð og súrkál þá er þetta ekki lengra en svo í tíma að ef við hittum mann, fæddan um aldamótin síöustu, þá getur amma hans hafa verið uppi á þeim tíma sem þetta leikrit gerist," segir Ásdís og finnst þetta greinilega ekki lang- ur tími. HIN HLÉDRÆGA HLÍN Á meðan Ásdís lætur móðan mása situr Hlin, hönnuður sviðsmyndar og búninga, hin róleg- asta og virðist ekkert frekar vera að bíða eftir Hér eru þær Ásdis og Hlin komnar upp á svíö til áríðandi fundar við þá Sigurð Karlsson og Guðmund Olafsson. VIÐ ERUM ÓLÍKAR EN SAMSTÍGA ÞÓ Eftir að Ljón i síðbuxum hefur runnið í gegn skal gripið til þolinmæöi því leikstjórinn hefur í mörg horn að líta. Þegar öllu er lokið skipta þær stöllur Ásdís og Hlín um borð og setjast hjá mér þolinmóðum. Og svona rétt til að viö vitum eitthvað um þær byrjum við á smábak- grunni. Ásdís er fædd á Eskifirði fyrir 48 árum. „Ég er fædd undir því fagra fjalli, Hólmatindi," segir Ásdís og styður hönd undir kinn, eins og hún hafi verið að segja: pabbi minn eru miklu sterkari en pabbi þinn! STÝRIR LÆRIMEISTURUM SÍNUM Eftir stúdentspróf úr MR fór Ásdis í Leiklistar- skóla Leikfélags Reykjavíkur og lauk jafnframt því prófi frá Kennaraskólanum. „Þaö er reynd- ar svo um þessa leiksýningu að hér er ég ann- ars vegar að leikstýra nýútskrifuðum leikurum og fólki sem ég lék sjálf með á árum áður og hins vegar lærimeisturum mínum. Jón Sigur- björnsson, Steindór Hjörleifsson og Guðrún Ásmundsdóttir voru einmitt meöal kennara minna." Á leikárum sinum lék Ásdís til dæmis í Saumastofunni og Skáld- Rósu en fyrsta leik- stjórnarverk hennar var á Sauðárkróki þar sem hún leikstýrði Týndu teskeiöinni eftir Kjartan Ragnarsson. „Nú ætla ég aðeins að monta mig," segir Ásdís en þó ekki að tilefnislausu, „því þetta verk fékk verðlaun sem besta verk áhugamannaleikhúss þaö ár og okkur var boö- ið til Finnlands þar sem leikritið var sýnt viö miklar vinsældir." Þannig hófst ferill Ásdisar á mjög farsælan hátt og síöan hefur hún leikstýrt i áhugamannaleikhúsum mjög viða, til dæmis á Selfossi, í Keflavík, Kopavogi, Klakksvik og Þórshöfn í Færeyjum. STUNDUM STJÓRN- MÁLAFRÆÐINGUR „Þetta er i annað sinn sem ég leikstýri i at- vinnuleikhúsi þar sem fyrsta sýningin var Ferð- in á heimsenda. Að vísu stofnsetti ég ásamt nokkrum öörum Ás-leikhusið og setti þar upp Helstu aðalhlutverkin eru í höndum Helga Björnssonar og Margrétar Helgu Jöhannsdottur. Hér hetur ekkjan ríka gefið girndum sínum og ástum lausan tauminn í garð glæpamannsins sem i raun gat alls ekki vitað að blöðskömm fælist í fjöruferðum sínum við fullorðna konu. VIÐ ERUM ÓLÍKAR EN SAMSTÍGA PÓ 6 VIKAN 22 TBL IWI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.