Vikan


Vikan - 31.10.1991, Blaðsíða 27

Vikan - 31.10.1991, Blaðsíða 27
og komst ég ekki yfir nærri allt sem til stóö í upphafi. Ég kom víða fram í útvarpi og sjón- varpi, sem var alveg nýtilkomið á þessum tíma. Þá söng ég fyrrgreint lag mitt meðal annars. Ég á þessar upptökur á bandi en þær hafa aldrei verið gefnar út. Mér var boðið að dvelja lengur vestra og syngja en ég gat ekki hugsað mér annað en að drífa mig heim þegar fríið var á enda. Ég hugsaði sem svo að ég gæti alltaf farið aftur en ég mátti aldrei vera að því.“ í 39 ÁR HJÁ ÚTVARPINU Forlögin höguðu því þannig að Ingibjörg gat unnið i tengslum við helsta áhugamál sitt, tón- listina, í hartnær fjörutíu ár. Þannig var að Skúli bróðir hennar hóf störf hjá útvarpinu á sínum tíma. Jónasi Þorbergssyni útvarpsstjóra líkaði svo vel við hann að hann falaðist einnig eftir systur hans til starfa - þar eð góðan starfskraft vantaði á innheimtuskrifstofuna. „Ég hóf störf hjá útvarpinu 1946. Fyrst í stað ætlaði ég bara að prófa þetta en það fór á aðra leið. Fyrstu þrjú árin var ég á innheimtuskrif- stofunni en síðan í þrjátíu og tvö ár á tónlistar- deildinni. Síðustu fjögur árin vann ég á dag- skrárdeildinni, þrjú ár sem aðstoðardagskrár- stjóri og eitt ár sem dagskrárstjóri á meðan Hjörtur Pálsson var í leyfi. Um tíma starfaði ég líka sem þulur í afleysingum. Vilhjálmur Þ. Gíslason, þáverandi útvarpsstjóri, vildi fá mig í fast starf sem þul en ég hafði ekki áhuga á því. Ástæðan var sú að þularstarfið er unnið á vökt- um og ég hefði þá þurft aö hætta í Þjóðleik- húskórnum sem æfði og kom fram aðallega á kvöldin. Á þeim tíma þáðum við laun fyrir að vera í kórnum - en það var auðvitað sjálfur söngurinn og kórstarfið sem var svo heillandi. Þetta var einkar skemmtilegur tími og oft var mikið að gera hjá okkur bæöi í söngieikjum og óperusýningum. Mér telst til að ég hafi verið í kórnum í ein tuttugu og fimm ár.“ STJÓRNAÐI ÓSKALAGAÞÆHI SJÚKLINGA OG FLETTI NÓTNABLÖÐUM „Fljótlega fór ég að stjórna Óskalagaþætti sjúklinga sem var sendur út á hverjum laugar- degi. Björn R. Einarsson var fyrsti stjórnandi hans og hafði verið með hann í um eitt ár þeg- ar ég tók við. Ég stjórnaði honum í fjögur og hálft ár og nennti þessu þá ekki lengur. Ég var búin að fá ofnæmi fyrir bréfum sem bárust þættinum í hundraðatali í viku hverri. Hann var óhemju vinsæll - enda ekki margir óskalaga- þættir á dagskránni á þeim árum - og af þessu tilefni var ég vinsælt umfjöllunar- og viðtalsefni í dagblöðum og tímaritum. I þættinum voru nýjustu dægurlögin kynnt og því náði hann til eyrna allra þeirra sem höfðu gaman af slíku. Á tónlistardeildinni starfaði ég við ýmislegt, meðal annars að velja tónlist í hádegis- og síð- degisútvarp, en segja má að einn hluti starfs- ins hafi verið svolítið sérstakur. Algengt var að ég væri beðin um að hlaupa fram í útvarpssal til þess að fletta nótnablöðum fyrir hina ýmsu hljóðfæraleikara sem þar voru að spila inn, bæði innlenda og erlenda. Ég var alltaf hálf- taugaóstyrk meðan á þessu stóð. Á þessum árum var Páll ísólfsson tónlistarstjóri. Oft var ég fengin til að fara út í Dómkirkju, þar sem hann var organisti, til þess að fletta nótum fyrir hann, ef hann var að leika inn á upptökur fyrir útvarp. Einu sinni sem oftar sat Páll við hljóðfærið og til stóð að taka upp leik hans. Verkið var það rólegt að hann gat flett nótnablöðunum sjálfur þangað til alveg undir lokin. Hann haföi því ekki kallað á neinn sérstakan sér til aðstoð- ar og ætlaði að biðja tæknimanninn um að fletta þessum síðustu síðum. Tæknimaðurinn átti sem sé að fletta þegar Páll væri langt kom- inn með verkið og kinkaði kolli til hans. Sá fyrr- nefndi var mjög taugaóstyrkur því ekkert mátti fara úrskeiðis. Þegar Páll loks gaf tækni- manninum bendingu var fumið svo mikið á honum að allar nóturnar duttu á gólfið - og upptakan var þar með ónýt. Þá var brugðið á það ráð að hringja í mig. Það var ekki langt að hlaupa úr Landssímahúsinu og yfir í Dómkirkju og því kom ég að vörmu spori. Páll hóf að leika verkið á nýjan leik og allt gekk bærilega. Þegar langt var liðið á flutninginn og ég var byrjuð að fletta flaug flugvél í aðflugi yfir kirkjuna og þar með var upptakan aftur ónýt. Þaö var farin að þyngjast brúnin á meistaranum þegar hér var komið sögu. Hann lót sig samt ekki muna um að spila verkið einu sinni enn - og í þriðju til- raun tókst það.“ STÓRMENNI Á ÚTVARPINU Ingibjörg hóf störf á útvarpinu þegar stofnunin var enn að slíta barnsskónum. Aðstæður þá voru allt aðrar en við þekkjum nú og samsetn- ing starfsliðsins með sérstökum hætti. Þarna unnu nefnilega nokkrir helstu menningarfröm- uðir landsins hver á sínu sviði og þau stór- menni sem ekki beinlínis störfuðu þarna voru daglegir gestir. Það dugði ekkert minna þegar sjálf menningin átti í hlut. „Ég var svo lánsöm að kynnast flestum brautryðjendunum hjá Ríkisútvarpinu, fyrsta útvarpsstjóranum, Jónasi Þorbergssyni, Páli ísólfssyni tónlistarstjóra og Helga Hjörvar dag- skrárstjóra, svo aðeins fá nöfn séu nefnd. Þetta voru miklir snillingar. Jónas var einstak- lega elskulegur maður, skilningsríkur og úr- ræðagóður. Ég hafði auðvitað mest saman að sælda við fólkið á tónlistardeildinni en þar var Páll ísólfsson minn fyrsti yfirmaður. Hann var geysilega vel að sér en þar fyrir utan var hann mjög skemmtilegur. Hann hafði til dæmis gam- an af aö segja frá og var fyrirtaks sögumaður. Samstarfskonur mínar á þessum árum voru líka mjög góðir og skemmtilegir félagar, þær Guðrún Reykholt og Sigrún Gísladóttir. Það var ákaflega þröngt um tónlistardeildina í Landssímahúsinu, eins og reyndar um stofn- unina alla. En þessi tími þar er mér enn f fersku minni. Til okkar inn á deild kom alltaf margt gott fólk í heimsókn og þetta var eins og tónlistarakademía. Þarna var tónlistin rædd fram og aftur og allir viðburðir á því sviði í land- inu og heimsmálin ekki síður og pólitfk Ifðandi stundar. Fyrir unga stúlku, sem hugsaði ekki um annað en tónlist, var það stórkostleg upp- lifun að hlusta á samræður allra helstu menn- ingarfrömuða landsins og spekinga á tónlistar- sviðinu." AÐ NJÓTA LÍFSINS Ingibjörg Þorbergs er greinilega upptekin kona þótt hún þurfi ekki lengur að stunda vinnu sína f útvarpinu allan daginn. Þegar blaðamaður hringdi f hana var hún lengi að finna þann dag sem hún gæti hugsanlega hitt hann. Dagurinn var ákveðinn en næsta morgun hringdi hún og kvaðst því miður þurfa að fresta fundinum um eina viku. Hvernig fannst þér að fara á eftirlaun aðeins 57 ára gömul og þurfa ekki lengur að mæta til vinnu? „Alveg stórkostlegt, ég hef notið þess frá fyrsta degi. Að vakna einn góðan veðurdag og þurfa ekki að flýta sér í vinnuna og stimpla sig inn er sérstök og ógleymanleg tilfinning. Fyrsta sumarið dvöldum við í heilar sjö vikur á frönsku Rivierunni og síðan í París á leiðinni heim. Það varalveg yndislegurtími. Mikiðværi gaman að geta eytt ellinni þar. Ég hef haft meira en nóg við tímann að gera. [ raun finnst mér ég núna hafa minni tíma til að gera ýmislegt heldur en á meðan ég stundaði fasta vinnu. Ég hef aldrei verið afkastameiri en á þeim tíma sem ég hef haft allra mest að gera. Það er eins og afköstin minnki þegar tfmi manns rýmkast. Við Guðmundur höfum reynt að ferðast mikið og við syndum á hverjum degi. (tvo vetur vorum við í spænskutímum og við erum að læra á tölvu um þessar mundir, svo fátt eitt sé nefnt.“ Ertu enn að semja lög? „Ég sem öðru hverju eitthvað, þegar andinn kemur yfir mig. Það síðasta sem ég gerði var fólgið í því að ég tók fyrir stuttan kafla úr bók Thors Vilhjálmssonar, Grámosinn glóir, og samdi tónlist við hann. Texti Thors er ákaflega Ijóðrænn og því datt mér þetta allt í einu í hug. Nýlega samdi ég lag við Maríuljóð Ragnhildar Ófeigsdóttur, sem hún orti í tilefni af komu Jó- hannesar Páls páfa til (slands fyrir tveimur árum. Ég hef nóg að gera og við Guðmundur erum mjög hamingjusöm saman og njótum hverrar stundar." 22. TBL1991 VIKAN 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.