Vikan - 31.10.1991, Blaðsíða 37
< Ánægðir feðgar.
Hérgeturaðlítahluta
þeírra verðlaunagripa
sem Jón hefur unnið
til á ferli sinum, þeir
skipta hundruðum.
Fjölskyldan samankomin daginn eftir að Jón og félagar komu heim með heimsmeistaratitilinn. Börnin
eru að vonum stolt af honum og bræðurnir Jón Bjarni og Magni Rafn geta ekki á sér setið og setja
upp sigurmerkið. Systkini Jóns tóku á móti honum með þessum skemmtilega borða sem strengdur
var þvert yfir stofuna.
stöð um nóttina. Þegar heim kom hafði íbúðin
verið skreytt rækilega með borðum, blöðrum
og blómum. Á borðinu trónaði vegleg terta
með súkkulaðiáletrun í tilefni dagsins. Skeyta-
bunki lá á borðinu og einhver hafði verið svo
hugulsamur að færa heimsmeistaranum kon-
íaksflösku.
Þegar Vikumenn höfðu fengið að bragða á
tertunni góðu var tekið til við spjallið. Beinast lá
við að spyrja hvort þau hjónakornin hefðu ein-
hvern tíma spilað saman - bæði á kafi í
briddsinu en hvort á sinn hátt!
„Ég spila nú eiginlega aldrei," segir Elín.
„Ég hef ekki spilað síðan í menntaskóla - jú,
reyndar, við Jón spiluðum saman í parakeppni
árið 1984. Við vorum einhvers staðar í miðj-
unni þegar keppninni lauk en ég man samt
ekki eftir að Jón hafi skammað mig nema einu
sinni fyrir slæma spilamennsku. Þá fékk ég að-
eins að heyra það.“
- Hefur þig aldrei langað til að ná góðum
tökum á þessari íþrótt?
„Ég á svo mikið ólært og ég nenni bara ekki
að byrja á því núna. Mér finnst aftur á móti
miklu skemmtilegra að vasast í kringum þetta
og stjórna þegar svo ber undir. Það eru svo
margar hliðar á briddsinu og mér þykir sþenn-
andi að fylgjast með öllu því sem er að gerast,
eins og á mótum þegar sálfræðihliðin kemur
inn í spilamennskuna. Sem framkvæmdastjóri
sambandsins hef ég í mörg horn að lita, til
dæmis fyrir mót. Undirbúningurinn er kapítuli
út af fyrir sig. Spilararnir þurfa að vera viðbúnir
bæði aö tapa og vinna, ekki kannski síður að
tapa.“
ÁHUGINN KOM MEÐ JÓNI
- Hvernig stóð á því að þú fórst að fá áhuga á
þessu. Einhver hefði haldið að það væri frum-
skilyrði að kunna að spila til þess að hafa
áhuga á bridds?
„Nei, nei, það þarf ekki endilega að vera
þannig," segir Elín og brosir skilningsrík yfir
þessari fávisku í blaðamanninum. „Hjá mér
var það þannig að áhuginn kom smám saman
eftir að ég kynntist Jóni, þá fór ég að lifa mig
meira inn í þetta.“
- Framkvæmdastjóri Bridgesambandsins
og heimsmeistari í bridds undir einu þaki. Er
þetta ekki nokkuð mikið lagt á eitt heimili?
„Heimilið er ekki undirlagt af briddsinu nema
óbeint því við spilum aldrei heima. Aftur á móti
verða fjarvistirnar frá heimilinu miklar. Þegartil
dæmis stórmót er innan seilingar eða stendur
yfir sjá börnin lítið af okkur. Ég er þá að vinna
við mótið og undirbúa þaö en Jón er á æfing-
22. TBL.1991 VIKAN