Vikan - 31.10.1991, Blaðsíða 12
finningum í eigin brjósti sem
tengjast hverju hlutverki fyrir
sig. Og þá er rétt að það komi
fram að hlutverkin eru öll
jafnstór; það reynir mikið á alla
leikarana. En þú spyrð um
vinsældirnar; ég býst við að
Stálblóm njóti svona mikilla
vinsælda vegna þess hve
snilldarlega er tekið á því að
vera mannvera - frá mörgum
sjónarhornum en alltaf af
næmi og skilningi."
- Er þetta ef til vill dæmi-
gert kvennaleikrit?
Þórunn Magnea lítur undr-
andi á spyrilinn. „Nehei, svo
sannarlega ekki! Karlmenn
njóta þessa verks ekki síður
en konur; þetta segir svo
margt um mannleg samskipti.
Og konurnar koma allar með
mennina sína, hver á sinn
hátt, í farteskinu á hárgreiðslu-
stofuna og við kynnumst þeim í
gegnum samræðurnar."
- En flytja Stálblómin
okkur boðskap?
„Ja, hér er fjallað um aö
vera manneskja á ýmsum
aldri, með tilfinningar og lífs-
baráttu, en boðskapurinn er á
fleiri en einu sviði eða tveimur
og það má líka búast við að
leikhúsgestir finni hver og einn
„sína“ persónu á sviðinu,
þannig að út úr leikhúsinu
gætu í sýningarlok farið að
minnsta kosti sex ólíkir hópar.
sex hópar hver með sína
sérstöku upplifun af verkinu, ef
ekki fleiri."
- Nafnið Stálblóm, hvað-
an kemur það?
„Robert Harling, höfundur-
inn, fann þetta nafn þegar
hann var viðstaddur jarðarför
á heimaslóðum í Suðurríkjum
Bandaríkjanna. Karlmennirnir
lega dauður maður sem ekki
gæti fundið til samsvörunar við
eitthvað sem fram fer á sviðinu
og jafnframt skemmt sér yfir
kostulegum tilsvörum og
uppákomum. Að minnsta kosti
sat hann til skiptis með tárin í
augunum og kitlandi hláturfiðr-
ing í maganum, þessa stund á
hárgreiðslustofunni með þeim
stallsystrum.
Það er Þórunn Magnea
Magnúsdóttir sem leikstýrir
verkinu og er auðséð að þar er
stjórnin í hlýjum og næmum
höndum, sem kunna til verka,
enda hefur Þórunn Magnea
víða komið við á þrjátiu ára
ferli sínum sem leikhúsmaður,
þó þetta sé í fyrsta skipti sem
hún leikstýrir atvinnuleikurum.
En hvað finnst henni um Stál-
blómin?
„Fyrir mér er þetta fyrst og
fremst verk um afar mannleg
ar manneskjur, hlýjar og
góðar, þó hver sé vissulega
með sínu sniði. Ég býst við að
allir geti fundið eitthvað sem
þeir þekkja í þeim. Þarna sjá-
um við Shelby (Vilborg Hall-
dórsdóttir) sem berst við að
vera sjálfstæð og lifa eðlilegu
lífi þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm,
Klöru (Bryndís Pétursdóttir)
sem reynir að halda áfram að
taka þátt í lífinu og vera
ánægð þrátt fyrir missi manns-
ins sem hún var mjög tengd og
Lynn, móður Shelby (Þórey
Aðalsteinsdóttir), praktíska,
skynsama konu með stálvilja,
þó ekki fari hún offari. Og svo
er það blessunin hún Annella
(Þórdis Arnljótsdóttir), örygg-
islaus og svolítið klaufsk
stúlka sem á sína einka-
tragediu en lendir undir vernd-
arvæng fastagesta stofunnar.
Louisa (Sunna Borg) er stór í
sniðum og hryssingslegri en
allt sem hryssingslegt er - en
með gullhjarta og siðast en
■ „Eg hef
fengið
alveg
óskaplega
mikið út úr
þvi að
vinna með
þessum
yndislegu
konum,“
segir
Þórunn
Magnea.
ekki sist er hún Trúví hár-
greiðslukona (Hanna María
Karlsdóttir) sem byggir sinn
bisniss á því að meöfædd feg-
urö sé ekki til! Trúví er sterk,
hugrökk og ákaflega bjartsýn
þrátt fyrir erfitt starf og heldur
deyfðarlegar heimilisaðstæð-
ur. En þetta eru allt alveg dýr-
legar konur - mínar konur,"
segir Þórunn Magnea og
brosir.
- Ef þú værir nú beðin að
■ „Fyrir
mér er
þetta fyrst
og fremst
verk um
afar mann-
legar
manneskj-
ur, hlýjar
og góðar,
þó hver sé
vissulega
með sínu
sniði..
skilgreina Stáiblóm, um-
fjöllunarefnið og hvað veld-
ur þeim miklu vinsældum
sem það hefur notið og
nýtur?
„Ja, þetta er alveg yndislegt
verk, bráðfyndið og skemmti-
legt en þó með þungri undir-
öldu. Þetta er verk sem fær
mann bæði til að hlæja og
gráta. Þetta er líka verk sem
gerir miklar tilfinningalegar
kröfur til leikendanna sem
komast ekki hjá að vinna út frá
eigin upplifunum og þeim til-
grétu en konurnar, þessar fín-
legu, kvenlegu konur, höfðu í
raun staðið fyrir öllu sem gera
þurfti. Þær stóðu þarna fínleg-
ar eins og veikbyggð blóm
sem þó ekkert fær bugað að
fullu. Stálblóm."
- Og íslenskir karlmenn -
gætu þeir haft ánægju af
verkinu, jafnvel kynnst ein-
hverjum nýjum hliðum eða
dustað rykið af einhverju
sem gleymdist í dagsins
önn?
„Alveg tvímælalaust - ég
fullyrði að þetta verk er sann-
arlega fyrir bæði kynin. Nú og
fyrir utan boðskap og þunga
undiröldu er þetta alveg drep-
fyndið á köflum; enginn þarf
að óttast að lífsins táradalur
gefi tóninn."
- Hvernig er að setja upp
verk þar sem allir leikend-
urnir eru konur?
„Því er nú auðsvarað. Þetta
hefur verið aiveg yndislegt. Ég
hefði ekki getaö fengið betra
fólk að vinna með; hópurinn
hefur verið afar samstilltur og
verulega góður andi hjá okkur,
enda held ég að við höfum
notið þessarar samvinnu. Að
minnsta kosti hef ég fengið af-
skaplega mikið út úr því að
vinna með þessum elskulegu
leikkonum. Þær eru allar alveg
spes fyrir mér. Aðrir sem
tengjast sýningunni hafa líka
vissulega lagt sitt af mörkum til
að gera vinnuna verulega
ánægjulega og gefandi."
Það var ekki unnt að efast
um þessi orð Þórunnar Magn-
eu þegar fylgst var með æf-
ingu og setið með leikurum og
leikstjóra í kaffistofunni. And-
inn var þrunginn samkennd,
samvinnu og hlýju og rótarleg-
ur blaðamaður gat ekki þrátt
fyrir ítrekaða leit að hinni
frægu „leikhúsafbrýðisemi"
fundið svo mikið sem andblæ
af henni í hópnum.
- Hvernig er það fyrir
þaulreynda leikkonu frá
Þjóðleikhúsinu að koma
norður yfir heiðar (eins og
nú er hvað mest i tísku að
segja!) og stíga á fjalirnar í
gamla Samkomuhúsinu á
Akureyri?
„Þetta hefur verið alveg
yndislegt," segir Bryndís Pét-
ursdóttir sem leikur Klöru,
ekkju fyrrum bæjarstjóra. „Það
hefur verið alveg stórkostlegt
að vinna að þessu, fá að vinna
með þessum frábæru konum
á öllum aldri; svona ferskum
og frískum öllum. Og húsið
hérna,“ hún Ijómar, „það er al-
veg sérstakur kafli út af fyrir
sig. Það er svo gott að vera
hér innan dyra. Nei, það er ör-
1 2 VIKAN 22. TBL. 1991