Vikan


Vikan - 31.10.1991, Side 46

Vikan - 31.10.1991, Side 46
TEXTI OG MYNDIR: ÓLAFUR PÉTURSSON Þegar vandamál eru til staöar í mínu lífi er ég á heimavelli. Enginn er jafnfær og ég aö fást viö vandamál, hvort sem er í sambandi mínu við maka, ættingja, vinnufélaga eöa vini og kunningja (ég á ekki börn). Þegar ég síðan sé fram á aö vandamálunum fer eitthvaö fækkandi geri ég mér lítið fyrir og bý til fleiri - ómeðvitað aö sjálfsögöu. Samnefnarinn í öllum þeim vandamálum sem ég fæst viö er aö þetta eru vandamál ann- arra. Ekki mín eigin. (fyrstu hólt ég að ég heföi engin vandamál en staðreyndin reyndist síöan sú að ég neitaði aö horfa í eigin barm og ein- beitti mér þess í stað að börnum annarra, svona til þess aö forðast raunveruleikann. I huga annarra er ég heilbrigður og öllum til fyrirmyndar. Hress og kátur á almannafæri og allir hafa unun af því aö vera í kringum mig og bera upp við mig sín vandamál. Ég kem aö AÐVERAHÁÐ VANDAMÁLUM sjálfsögöu upp meö lausn á vandamálinu, peppa liöiö upp og hvet til bjartsýni á lífið og til- veruna. Hinum líöur miklu betur og mér líður miklu betur yfir því að öðrum skuli líða betur. Þetta er vítahringurinn sem ég er fastur í: Mér líður betur þegar öörum líöur betur. Meö öðrum orðum: Ég er ekki fær um aö láta mér líða vel nema ég láti öörum líða vel fyrst. Ef öll- um líður vel f kringum mig (nema mér) fer ég í panik. Ég helst ekki viö. Ekkert vandamál. Hvernig á ég að láta mér líða betur? Jú, búa til vandamál auövitaö! Sannfæra fólkið um að því líði ekkert vel. Þá hefst neðanjarðarskemmd- arverkastarfsemin. Ég er snillingur í þessu. Á yfirborðinu virkar þetta sem góðsemi og um- hyggja. Lóa vinnufélagi minn verður fyrst fyrir barðinu á mér. Ég: Hvernig hefur maðurinn þinn það? (Við Lóa höfum í gegnum tíðina átt margar góðar vandamálastundir saman þar sem við ræddum vandamálið: Eiginmaðurinn.) Lóa: Fínt, þakka þér fyrir. Ég: Og börnin? Lóa: Ágætt, nema Kalli litli er búinn að vera lasinn. Hann er með í eyrunum. Ég: Það var leitt að heyra. (Ég veit ekkert um börn og barnasjúkdóma þannig að ég læt hér við sitja. Ég er alla vega búinn að minna þessa manneskju á að þaö er vandamál í lífi hennar. Það getur komið sér vel seinna.) Jæja, ég þarf að drífa mig, segi ég og leita uppi næsta fórn- arlamb: Sigurður forstjóri. Sigurður hefur að sjálfsögðu haft miklar áhyggjur af rekstri og peningamálum fyrir- tækisins og oftar en ekki hef ég stappað í hann stálinu, sagt að þetta sé bara tímabundið á- stand og sannfært hann um að bjartsýni leysi öll vandamál. Og núna horfir allt til betri vegar. Nóg að gera og kúnnarnir borga. Hvað geri ég þá? Ég byrja á því að gefa honum þetta SAGA AF ENGLI augnaráð sem gefur til kynna aö ég hafi eitt- hvað að segja en vilji ekki hafa orð á því. Hann bítur á agnið og dregur mig afsíðis. Sigurður: Þú hafðir alltaf rétt fyrir þér, kunn- ingi. Ég ætla að launa þér fyrir alla hjálpina sem þú hefur veitt mér, segir hann og dregur fram tékkheftið, skrifar feitan tékka og réttir mér. Ég fer í panik. Ég þrífst ekki í velgengni. Ég: Nei, Sigurður, ég get ekki tekið við þessu. Sigurður: Svona, ég hlusta ekki á þetta. Taktu við þessu. (Tékkinn gengurfram og aftur á borðinu á milli okkar með tilheyrandi þrasi í nokkra stund. Á endanum held ég á tékkanum. Auðvitað vildi ég tékkann. Ég er bara ekki fær um að þiggja nokkurn skapaðan hlut frá öðrum.) Þú átt þetta inni hjá mér. Þú hefur unn- ið fyrir mig kauplaust við bókhaldið á kvöldin þegar kreppti að. Nú er betri tíð. Ég: Já. Við skulum bara vona að Guð gefi að sú tíð haldist, segi ég. Með þessu er ég að koma því inn hjá honum að hann skuli ekki láta sig dreyma um að þessi „betri tíð“ sé eitthvert eilífðarástand. Sigurður hafði snúið á mig. Á slaginu fimm rýk ég úr vinnunni. Fer niðrí bæ og kaupi á mig tvo boli og föt á kærustuna fyrir allan afganginn af peningunum. Ég sá ekki neitt annað sem mig langaði í (taldi ég sjálfum mér trú um en í raun var mér lífsins ómögulegt að eyða þessu í sjálfan mig. Ég átti það ekki skilið). Þetta var líka ein af mínum brellum til að búa til vandamál. Samband mitt við kærustuna hafði verið of gott upp á síðkastið og enginn sjáanlegur endir á því „ófremdarástandi". Ekki fyrr en nú. Ég held heim á leið glaður í bragði. Kærastan verður yfir sig hrifin af fötunum. Ekki bjóst ég við öðru. Hvar fékkstu pening? spyr hún síðan með áhyggjuhrukkur á enninu. Hún tekur gleði sína á ný þegar ég segi henni hvaðan peningurinn kom. Hún mátar fötin og dansar af ánægju. Það þyrmir yfir mig. Hún virðist ekki ætla að falla í gildruna mína. Hún hleypur upp um hálsinn á mér og kyssir mig í bak og fyrir. Mér finnst það óþægilegt en ég þykist vera ofsaánægður líka. En kærastan mín er mjög næm og finnur víbrana sem ég er að senda út. Hún fattar að vísu ekkert að þeir koma frá mér heldur staðnæmist hún ósjálfrátt, lítur í augun á mér og segir: Keyptirðu ekkert handa þér? Það ætlar allt að verða vitlaust af fögnuði innra með mér. Hún hafði fallið fyrir bragði mínu! Ég læt samt á engu bera. Jú, jú. Ég 42 VIKAN 22. TBL.1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.