Vikan - 31.10.1991, Blaðsíða 48
SAGA AF ENGLI
Frh. af bls. 43
föt, þrífa sig og umhverfið, vinna sér inn pen-
inga og vera kynferöislega fullnægð/ur. Það er
í verkahring hverrar fullorðinnar manneskju aö
sjá um þessi atriði fyrir sjálfa sig en ekki aetlast
til að aðrir geri það eða að það sé einhverjum
öðrum að kenna ef þessi atriði eru ekki í lagi í
lífi hennar.
Vangert: Hér tók uppalandi þarfir barnsins
fram yfir sínar eigin og ofverndaði það. Útkom-
an verður einstaklingur sem verður upp á aðra
kominn með fullorðinsþarfir sínar, til dæmis
ófær um að elda ofan í sig þegar makinn er
ekki heima.
Ofgert: Hér er barnið sjálfala. Sem fullorðin
manneskja verður það ófært um að biðja um
og þiggja eðlilega aðstoð frá öðrum og hefur
engar þarfir.
5. Erfiðleikar við að tjá og upplifa raunveru-
leika sinn í hófi:
Eðlilegur eiginleiki barns: Óþroskað.
Hér misskilja uppalendur eðlilegt þroskastig
barnsins á hverjum tíma, þannig að ætlast er
til að barnið sjái um hluti sem það hefur ekki
þorska til eða foreldrarnir sjá um hluti fyrir
barnið sem það á að hafa þorska til að sjá um
sjálft. Útkoman verður síðan einstaklingur sem
er ýmist ofþroskaður eða vanþroskaður á ýms-
um sviðum.
Vangert: Þetta er einstaklingur sem hagar
sér og tjáir sig eins og barn alla sína ævi. Ófær
um að takast á við eðlileg vandamál lífsins,
ætlast til að aðrir sjái um að kippa málunum í
liðinn (alveg eins og mamma og pabbi voru
alltaf vön að gera). Líf hans er í kaos.
Ofgert: Þessi einstaklingur fékk aldrei tæki-
færi til að vera barn. Hann er stífur og kaldur,
með líf sitt (og annarra) undir ofurstjórn (sem
fer úr böndunum einn daginn). Ekkert pláss
fyrir óvæntar uppákomur eða lífsins krydd.
Glöggur lesandi getur hafa tekið eftir hring-
rásinni sem er í þessum farsa. Dæmi: Ein-
staklingur, sem var sjálfala sem barn, hefur
engar þarfir. Hann eignast barn og tekur þarfir
barnsins síns fram yfir sínar (sem engar eru)
og ofverndar barnið. Það leiðir af sér ein-
stakling sem er ófær um að sjá um þarfir sínar
og gjörsamlega ófær um að sjá um þarfir ann-
arra og eignast því barn sem verður sjálfala.
/ Hu-b FdLbi K'úaJS /}RÚKu/v\ 2. Ei TiTíLL PÚKfi /t/MöOð REiðftK S\Ji K f-U 6* U Roto\J- Tó'(-W< PEOAJ/Ji FR’A /
i 3 H TuULf\R
* Rísp FuOtLS l/ /• J > s /
SiC.Lt S\JÍK liLU/OÖ B'bus —V V «• > > v
/ V FjÖR^ SLE-iF Komu 5 < >
A/E5 OFT /iRftKAR 7 *• > . / . / . ( —V
KOAJU MEÐ ToLU z > — v V v 2. EifJS STAF
'46.3ÖF SoMú JJ A a/ f\ © *> > SOL- Qub/r
/ z 3 i 5T é> STAF
Lausnarorð 1-8: STROKKUR
\
44 VIKAN 22. TBL. 1991