Vikan - 03.09.1992, Qupperneq 31
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
HUGARÓRAR HALLGERÐAR
PABBI i GOLFI
Eins og þaö sjái ekki allir
í gegnum svona lúmskt
liö. Glæta. Ég veit sko
alveg hvaö pabbi er aö plotta
núna. Hann er svo rosalega
hégómlegur og gráöugur.
Hann er búinn aö ákveöa aö
verðlaunabikar ársins í golfi
veröí hér í Hrafnanesstofunni.
Hann er eiginlega má segja
gjörsamlega aö flippa enda
finnur hann ekki golfsettin
sem hann er nýbúinn aö
splæsa svo svakalegum pen-
ing i.
Hann ætlaði aö láta okkur
öll fara í golf á laugardaginn.
Bautinn er búinn aö láta sér-
sauma galla meö meiri háttar
skrauti á. Það stendur á bæöi
buxum og bolum: „Sénsinn,
þaö eru bara bjánar og bilaðir
sem láta bögga sig.” Vá, putt-
inn kann ekki að skammast
sín. Hann dömpar alla án
þess aö taka eftir því, svo
rosalega er gaurinn montinn.
Hér á Nesinu eru nefnilega
heimagengin alltaf aö bæta á
sig, alveg sama hvort þaö eru
peningar, prjál, ástarsambönd
eöa aukakíló. Eins og þaö sé
ekki meiri háttar dæmi aö fara
í golf alla næstu laugardaga
og láta bögga sig og dömpa
til bana. Ég varö aö redda
þessu. Sénsinn. Boltinn skip-
aöi strákunum Bubba og
Badda aö læðast meö girö-
ingum hér á Nesinu og spæja
í öllum göröum öll golfdæmi
og skrifa hjá sér taktana.
Ég afneita þessu liöi. Þetta
er svo rosalega glatað. Ég
verö að láta þessar golfkylfur
hverfa. Ég er reyndar búin aö
losa okkur viö þær. Systurnar
meö hökutoppana og pipar-
meyjarveseniö í næsta húsi
eiga svo svakalega marga
ættingja sem allir eru þetta
metri á alla kanta, eiginlega
alveg upplagöir í golf. Þaö er
meiri háttar gott aö fá smá i
sparigrísinn. Er kannski verið
aö gefa í skyn aö maður sé
eitthvað tæpur? Ekki? Mér er
svo sem sama. Ég meina, ég
er meiri háttar, þaö sjá allir.
Þaö er ógeöslegt hvaö allir
horfa grunsamlega á mig. Ég
seldi golfsettin frekar ódýrt.
Systurnar eru meiri háttar
sælar. Ég er svo fegin hvaö
ég á auövelt meö aö sjá hvaö
aöra vantar svona rosalega
sárlega. Pæliö í því. Systurn-
ar voru búnar aö ætla aö
kaupa svona golfsett i nokkur
ár. Ég er fegin aö ég er frekar
sparsöm og heiðarleg.
Ég finn svo svakalega
strauma hérna heima, svo
meiri háttar grunsemdir eru í
gangi. Þaö vita allir aö ég stel
aldrei. Ég bara kem ýmsum
hlutum fyrir ef þeim er ofaukiö
hér heima. Þess vegna er
ekkert skrýtiö þó ég fái eitt-
hvaö smálítið fyrir fyrirhöfn-
ina. Pæliö í því aö vera aö
stressa sig yfir svona smotter-
íi. Einn skitinn hundraö þús-
und kall. Ég verö sennilega
aö flytja aö heiman, svo rosa-
lega horfa allir stingandi á
mig. Öfundin er ekkert eöli-
leg. Ég skil ekki svona sjúkt
liö.
Viö skulum bara athuga
þaö aö þegar ég ráölagöi Jóu
vinkonu aö selja smávegis úr
bókaskápnum af og til gerðist
ekkert nema gott. Jóa hefur
átt sand af seölum síöan.
Enginn er aö stressa sig yfir
því þó eitthvaö smáhverfi úr
bókahillunum. Þaö er bara
fyllt í aftur. Gamli bautinn þolir
ekki aö hafa göt á svæöinu
og fyllir i þau. Vonandi verö
ég uppgötvuð fljótlega. □
CRós^^
Snyrtislofa iV snyrtirörurrrslun
Engihjalla 8 (hús KaupgarOs)
200 Kópavogi
s: 40744
Alhliöa snyrting - Litgrcining
Katrín karlsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir,
Þórunn A. Gylfadóttir, Halla R. Ólafsdóttir.
M.
RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 S 22077
HÁRSnYRTISTOFAN
QRAMDAVCQl47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslatt
við afhendingu
þessa korts!
Stripur í ollum litum — harlitur -
permanent fyrir allar hargerdir.
Úrvals hársnyrtivorur.
Opid á laugardogum.
Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreidslumeistari
Þuriður flildur lialldórsdóttir hársnyrtir
RAKARA- 6c HÁR(]RE/ÐSi(/STDFA
HVERFISGÖTU 62 • 101 REYKJAVlK
18. TB 1992 VIKAN 31