Vikan - 03.09.1992, Blaðsíða 58
0M'*"
MARGRET HRAFNS
í HOLLYWOOD
Þaö væri synd aö segja
aö Ijúfa lífiö léki ekki
misvel viö mannfólkiö.
í þaö minnsta hafa þeir sem
að eigin sögn og annarra láta
fara vel um sig í dúnmjúkum
sessunum á lúxusfarrýmum
breiðþotanna töluvert fyrir því
aö komast í sviösljósið. Hér
berjast menn fram í rauðan
dauöann um aö veröa
„stjarna"; frægir, ríkir, um-
deildir eöa enn annað og
meira og beita öllum tiltækum
ráöum til að koma sér á fram-
færi.
Eftir margra ára, jafnvel
áratuga, stímabrak rennur
svo kannski - kannski upp sá
dagur aö menn uppskera og
stjörnubjarminn eftirsótti fer
aö taka á sig mynd. Þá
HUGSAÐ
OG
HEYRT
H0LLYW00D
bregður svo viö aö skyndilega
er komiö annað hljóö í strokk-
inn. Nú hefur þetta snúist viö
og eftirleiðis snýst lífsbarátta
stjörnunnar um þaö eitt að
fela sig bak viö svellþykk sól-
gleraugu, jafnvel dulargervi
þar sem ekkert kænskubragö
er of langsótt til þess að af-
stýra því að aödáendunum -
sem stjarnan á þó alla vel-
gengnina aö þakka - takist
aö þefa hana uppi, aö ekki sé
talað um þaö voöaslys ef ein-
hverjum þeirra skyldi heppn-
ast að taka hanatali.
Þeir sem best þekkja atferli
stjarnanna segja þó aö þetta
séu barnabrek í samanburði
viö sérvisku hverrar fyrir sig
enda reyni góö stjarna ávallt
aö skapa sér sérstöðu meö
fáránlegum duttlungum sem
hún ein hefur einkarétt á.
Einn þeirra sem brenndu sig
illilega á því aö gera slíkri
stjörnu til hæfis var leikstjóri
myndbandsins sem allir tala
um þessa dagana, nýja
myndbandsins meö George
Michael, Too Funky.
„Hvernig er þetta eiginlega,
hvernig á maöur aö vera?”
spuröi leikstjórinn gáttaöur
þegar hildarleikurinn náöi há-
marki. Eins og æstir aödá-
endur Georges Michael
muna ef til vill tók goðiö upp á
því aö leika ekki í eigin mynd-
böndum, fannst hann oröinn
of þekktur fyrir útlitiö og vildi
aö menn gæfu list hans meiri
gaum. Þetta var sumsé reynt
og vesalings leikstjórinn fékk í
staöinn til sín þekktustu
súpermódelin á borö viö
Lindu Evangelistu og Shönu
Zedrik. Þá breyttist skap
goösins skyndilega og þegar
tökur stóöu sem hæst rak
hann leikstjórann og tók sjálf-
ur við hlutverkinu - en ekki til
aö eínbeita sér að leikstjórn
heldur til aö standa í ströngu
bæði framan við og aftan viö
myndavélina.
Þegar myndbandiö leit loks
dagsins Ijós var spurningar-
merkið aftan viö leikstjóratitil-
inn helsta umræðuefniö. Það
er því ekki sama í hvernig
skapi stjörnurnar eru þegar
þær sitja fyrir og hollt ráö fyrir
okkur, venjulega fólkiö, aö
læra rétta samskiptatækni viö
þessa hálfguöi nútimans.
Poppkonungur allratíma,
Michael Jackson, er ekki frá
þessari plánetu, segir upp-
tökustjórinn góökunni Quincy
Jones sem vann með snill-
ingnum aö metsöluplötu allra
tíma, Thriller. Undir þetta taka
æstir aðdáendur goösins.
Þaö á samt ekki af Mikka
blessuðum aö ganga því ekki
haföi hann fyrr verið ásakaður
um að andlitið væri bókstaf-
lega aö gefa sig, hrynja eftir
urmul af lýtaaögerðum -
einmitt þegar hann var i þann
mund að hefja málsókn á
hendur sorpritinu sem kom
þessum hvimleiöa kvitti á
kreik - aö annar orörómur og
hálfu verri tókst á loft: þess
efnis aö nú væri hann I of-
análag búinn aö missa rödd-
ina og gæti ekkert sungiö
lengur.
Tilefni þessarar ósvífnu aö-
dróttunar var aö á dögunum
var sjónvarpað beint frá tón-
leikum kappans í Evrópu og
viti menn, í hvert skipti sem
kom aö háum tónum sljákkaöi
58 VIKAN 18. TBL. 1992