Vikan - 03.09.1992, Qupperneq 59
E
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
í honum uns hann þagnaði al-
veg og lét bakraddirnar alfarið
um sönginn. Að sjálfsögðu er
þetta ósanngjarnt. Auðvitað
verður Michael Jackson að
blása úr nös eins og aðrir
dauðlegir menn enda ekki
hlaupið að því að syngja á
sama tíma og maður er á
fullu aö dansa, „breika” og á
haröastökki um sviðið þvert
og endilangt.
Mér er sem ég sjái þessa
nöldurseggi og aftursætisbíl-
stjóra feta í fótsþor Mikka litla
á sviðinu og svei mér ef ég er
ekki farin að skilja hvers
vegna strákanginn er ekki fyrr
kominn heim til sín en hann
flýr undir súrefnistjaldið með
agann sinn og hverfur á vit
annarra og auðveldari ævin-
týra, sem lengst frá öllu fólk-
inu sem aldrei gefur honum
stundlegan friö.
Húðflúr er eitthvað sem
menn hafa í aldanna rás
tengt við blásaklausa sjóar-
ann með kvenmannsbelg í
hverri höfn, þann sem vakn-
aði uþþ við vondan draum í
fjarlægri höfn, skelþunnur og
illa til reika, með flennistórt,
litskrúöugt málverk af íturvax-
inni blómarós - kirfilega nafn-
greindri - þrykkt á óvæntan
líkamspart. Hann stóð því
skyndilega frammi fyrir þeirri
skelfilegu staðreynd að fyrir-
sætan, sem átti aldrei aö
verða annað og meira en
einnar nætur gaman, var orð-
in varanlegur hluti af far-
angrinum sem hann átti eftir
að flakka með heimshorna á
milli þaö sem eftir var og þvi
ekki í önnur hús að venda en
hefjast handa viö að sjóöa
saman trúveröuga skýringu -
ef einhver fannst - áður en
meiri skaði var skeður.
Nú er tíöin önnur. Húðflúr
og ekkert annað, segja tísku-
hönnuðir og nú má sjá jafnt
þekktar stjörnur sem óþekktar
með húðflúr á réttum stööum.
Það er nefnilega ekki sama
hvar herlegheitin tróna.
Heröablöð, uþphandleggir og
kálfar eru „inni” þessi misserin
og kannski bilið á milli brjóst-
anna ef síðasta silíkonað-
gerðin reyndist óvenju vel
lukkuð. Fyrir þá sem ekki
geta gert uþþ hug sinn er
hægt að fá húðflúrið límt á
meðan verið er að ákveða
sig.
Einn er þó sá þjóðfélags-
hóþur sem ekki er par hrifinn
af bramboltinu. Þaö eru for-
eldrarnir sem voru þó einu
sinni unglingar sjálfir með eig-
in leyndarmál og skrítna
dynti, máluð augu, háa hæla
og túberaö hár að ógleymd-
um draumnum um heimsfrið-
inn sem öllu máli skipti. Þeir
ættu því að skilja ungviðið
betur en ömmurnar og afarnir
sem hoþþuðu yfir gelgju-
skeiðið því það var ekki búið
að finna þaö upp. Nú, þið
sem hyggist slá til og láta ber-
ast með straumnum ættuð að
finna rétta staðsetningu.
Nú eru það ekki lengur
bara poþþarar og önnur kyn-
tákn sem feta í fótspor sjóar-
anna því æðiö breiðist svo
hratt út að þið skuluö vera vel
á verði í sundlaugunum. Þið
hin sem eruð búin að slá til,
passið ykkur á berum augum
- þangað til næst.
Kveðja,
Margrét Hrafns í Hollywood
fara aö hugsa ykkar gang,
leita að hentugu tákni eða
snoturri mynd til að skreyta
skrokkinn en umfram allt
ÁÞITT
VIÐSKIPTAKORT
HEIMA HÉR?
REYKJAVÍKURVEGI 64 - HAFNARFIROI ■ SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
Þjáist þú af —
vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eða viltu bara grennast.
Trimm-form geturhjálpað
Bjóðum einn prufutíma.
SNYRTISTOFA ÁRBÆJAR
ROFABÆ 39
SÍMI 68 93 10
MIÐLEITI7 - SÍMIBB55B2
H Á R I Ð
HÁRSNYRTISTOFA
OPIÐ:
Mónud. og miðvikud. 9 - 20. Þriðjud. og fimmtud. 9 - 18.
Föstud. 9- 19. Laugdrd. 10- 14.
SÍMI44645
ENGIHJALLA 8 • 200 KÓPAVOGI
18. TBL.1992 VIKAN 59