Vikan - 03.09.1992, Síða 70
◄ Ef meirihluti fyrirmyndarinnar er hvítur, eins og á myndinni tll
vlnstrl, þá er hætta á aö myndln veröi undirlýst ef farið er eftlr
upplýsingunum frá Ijósmælinum. Ráðið við þvi er að hafa Ijósopið
einu til tveimur opum stærra en Ijósmælirinn segir til um eða
hraðann á lokaranum minni. Ef fyrirmyndin er dökk er undirlýsing
hins vegar lausnin. Einnig er hægt að mæla Ijósið af meðaldökkum
fleti eins og handarbaki og stilla hraðann og Ijósopið í samræmi
við það en öruggasta lausnin er að smella af fleiri en einni mynd
ef vafi er um lýsinguna.
▲ Baklýs-
ing platar
Ijósmælinn
þannig að
fyrirmyndin
verður
undiriýst
en það
getur lika
unnið með
myndinni
eins og í
þessu
tilfelli.
aö fylgja viöfangsefni, sem er
á hreyfingu, þannig aö bak-
grunnurinn virðist hreyföur og
hreyfing viöfangsefnsins er
undirstrikuö enn frekar, 1/60
eöa 1/30 úr sek. með stand-
ard-linsu nær oftast aö skila
þessum áhrifum. Ef ætlunin er
aö frysta hreyfingu skiptir
stefna fyrirmyndarinnar máli.
Þaö þarf miklu minni hraöa til
að frysta hreyfingu á hlut, sem
feröast i beinni stefnu til eða
frá Ijósmyndavélinni, heldur en
ef hreyfingin er þvert á mynd-
flötinn. Þá skal hafa í huga að
þeim mun nær myndavélinni
sem hluturinn er þeim mun
meiri hraða þarf til aö frysta
hreyfinguna.
Til að hjálpa Ijósmyndaran-
um aö ákvaröa hlutfallið á milli
hraða og Ijósops er innbyggð-
ur Ijósmælir í myndavélinni
sem mælir birtuna sem endur-
kastast af fyrirmyndinni.
Ljósmælirinn gefur ábendingu
um hver stillingin skal vera á
myndavélinni til aö mynda
meðalbjarta mynd en staðall-
inn er 18 prósent grátt. Þetta
þýðir aö ef þú ætlar að mynda
skjannahvítan vegg gefur
Ijósmælirinn þér rangar upp-
lýsingar og þú þarft að yfirlýsa
eitt til tvö Ijósop því annars
veröur veggurinn grár á mynd-
inni. Hiö sama gerist ef mikill
hluti myndarinnar er dökkur en
þá er nauðsynlegt aö undir-
lýsa myndina. Lengi vel voru
allar myndavélar meö Ijós-
mælingu sem haföi mestan
áhersluþunga, 60 til 75
prósent, á svæöi sem er 1 cm
til 1,5 cm í þvermál og er í
miöju leitarans. Undanfarin ár
hafa fleiri möguleikar á Ijós-
mælingum bæst við og er
punktmæling orðin nokkuð al-
geng en hún byggist eingöngu
á 0,5 cm svæði í miðju mynd-
arinnar sem dekkar 2,5 prós-
ent af því sem sést í leitaran-
um. Punktmælingin er hentug
ef stór hluti fyrirmyndarinnar
fellur utan við hina hefð-
bundnu meðalbjörtu lýsingu
en þá er hægt aö taka Ijós-
mælingu af smáu svæði og
ákvarða lýsingu heildarinnar.
Með sumum myndavélum er
hægt að taka fleiri en eina
punktmælingu af sama við-
fangsefninu og tölva í mynda-
vélinni reiknar út meðaltal
þeirra. Fullkomnasta Ijósmæl-
ing á markaðinum í dag skiptir
myndinni í 5 eða 6 hluta og
metur lýsinguna út frá upplýs-
ingum frá 100.000 mismun-
andi myndum. I augnablikinu
eru aðeins dýrustu Canon og
Nikon vélarnar með þennan
eiginleika. Upplýsingar eru
settar í stýritölvu myndavélar-
innar og myndir með baklýs-
ingu, sem verða undirlýstar við
venjulega Ijósmælingu, koma
út rétt lýstar án þess að leið-
réttinga sé þörf. Sömu sögu er
að segja um margs konar fleiri
kringumstæður þar sem Ijós-
mælingin tekur tillit til frávika í
lýsingu.
Mat á lýsingu er afstætt og
oft er vænsti kosturinn að taka
fleiri en eina mynd með mis-
munandi stillingum á hraða
eða Ijósopi af sama fyrirbær-
inu. Æfingin skapar meistar-
ann á þessu sviði sem öðrum
og fátt er betra en að læra af
eigin mistökum. Það er ágætt
fyrst í stað aö nota sem mest
sömu tegund af filmu því þær
hafa mismunadi viðnám við
lýsingu og í næsta þætti mun-
um við líta betur á filmur
ásamt því að huga að gildi
Ijóssía (filter).
Margar myndavélar bjóða nú
upp á fleiri en eina leið fyrir
Ijósmælingu. Myndirnar sýna 3
mismunandi aðferðir til Ijós-
mælinga.
a) Svonefnd matrix mæling er
sennilega fullkomnasta aðferðin
til Ijósmælingar en fyrirmynd-
inni er skipt í fimm hiuta og
lýsingin metin af tölvu sem
hefur verið mötuð af upplýsing-
um á 100.000 misjafnt lýstum
myndum.
b) Algengasta tegund Ijósmæl-
ingar leggur 60 til 75 prósent
áherslu á 12 mm breitt svæði í
miðju leitarans.
c) Punktmæling fer 100 prósent
fram innan 5 mm svæðis í miðju
leitarans og er þannig auðvelt
að reikna heildarlýsinguna út
frá mest áríðandi hluta myndar-
innar.