Vikan


Vikan - 26.11.1992, Page 7

Vikan - 26.11.1992, Page 7
herðir mann. Sennilega hefur þessi harka hjálpað mér þeg- ar ég fór að vinna hjá sjálfri mér. íslendinga dreymir flesta um að standa á eigin fótum en fæstir vita að eftir að mað- ur stofnsetur eigið fyrirtæki er aldrei frí. Fólk fer að þekkja mann og eftir það er maður ekki lengur prívatpersóna. Það er sett samasemmerki milli eiganda og fyrirtækis. Svo skammtar maður sér kaup eftir því hvernig gengur og í byrjun var stundum ansi lítið eftir þegar búið var að borga kostnaðinn. Ég sé samt ekki eftir að hafa hellt mér út í þetta. Vinnan er svo skemmti- leg.“ VÖN ÁBYRGÐ Sigga fór á sjálfstyrkingar- námskeið áður en hún opnaði stofuna og fékk nýja sýn á sjálfa sig. Henni finnst hún sterkari og eiga auðveldara með að taka því sem að höndum ber. „Ég er elsta barn og þar af leiðandi vön að bera ábyrgð. Það gefst tími til alls ef maður er ekki að gera allt í einu. Ég átti barn og vildi láta uppeldið á því ganga fyrir öllu öðru.“ SÝNINGARSALUR OG UÓSMYNDASTOFA Það hefur alltaf verið draumur Siggu að koma sér upp blöndu af Ijósmyndastofu og galleríi, stað þar sem væri að- staða til að halda sýningar á fallegum Ijósmyndum. Hús- næðið sem hún er nú í er of lítið til þess en hún getur ekki hugsað sér að flytja strax. Staðurinn er góður og henni þykir vænt um stofuna sem hún hefur lagt mikið í að gera snyrtilega og hlýlega. „Ég gæti ekki hugsað mér að vinna í subbulegu um- hverfi. En of lítið er gert af því að sýna Ijósmyndir á íslandi. Það hefur tekið svo langan tíma að fá fólk til að viður- kenna að Ijósmyndun er list. Það er mikil kúnst að taka góðar myndir. Við íslendingar eigum líka mikinn fjársjóð gamalla svart-hvítra Ijósmynda sem margar eru yfir hundrað ára gamlar og gullfallegar." Það er komið kvöld og tími til að kveðja. Ijósmyndastof- una sem Sigga stofnsetti fyrir þremur árum af litlum efnum. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Sigga hefur náð að verða þekktur Ijósmyndari í bænum. Galdurinn við þessa konu er að hún gefur svo mik- ið af sjálfri sér í það sem hún gerir. □ ▲ Herdís og Helga fengu fööurlegar viðvaranir hjá bankastjór- anum er þær sóttu um lán tii aö hefja reksturinn. UPPELDIÐ LEIKUR EINN Fyrir rúmum sjö árum hófu þær Herdís Hergeirsdóttir og Helga Sveinsdóttir rekstur H-búðarinnar í Garða- bæ. Herdís segir að hug- myndaflug þeirra stallsystra hafi ekki verið meira en svo að fyrsti stafurinn í nafninu beggja var það eina sem þeim datt í hug þegar kom að því að velja nafn á búðina. Herdís hafði starfað í útibúi frá Apóteki Hafnarfjarðar í Garðabæ en þegar ákveðið var að leggja það niður sló hún til og ákvað að hefja eigin verslunarrekstur. „Ég hefði sennilega ekki farið út í þetta ef Helga og maðurinn minn hefðu ekki hvatt mig. Ég óttaðist ekki að þetta yrði of mikil vinna. Árið eftir að ég átti yngsta dreng- inn minn vann ég myrkranna á milli. Þá var maðurinn minn veikur á sjúkrahúsi og ég með veikt ungbarn og fjögur eldri börn að auki. Þá vann ég meira en ég hef nokkurn tima gert fyrr eða síðar á ævinni.'1 Það er ár milli þriggja yngstu stráka Herdísar en hún segir að uppeldið hafi alls ekki verið erfitt, strákarnir séu mikl- ir félagar, hafi lík áhugamál og því lítið fyrir þeim að hafa. „Þeir voru í fótbolta hér í hverfinu meðan ég rótaði í moldinni í garðinum. Svona eftir á að hyggja þá tel ég að best sé að eiga börn með stuttu millibili. Það verður auðveldara að skipuleggja hlutina enda getur maður ekki annað. Allir fara í rúmið á sama tíma og svo framvegis. Hvild á kvöldin verður svo miklu dýrmætari eftir því sem börnin eru fleiri. Auðvitað hefði ekki komið til greina að stofna verslunina nema af þvi að strákarnir voru orðnir stálpaðir. Þeir voru samt allir heima þá nema sá elsti. Mér fannst ég fullgömul til að standa í þessu fyrst. Ég stóð á fimmtugu. Svo sá ég að varla væri minna upp úr eigin rekstri að hafa en vinnu í búð hjá öðrum. Þessir taxtar, sem VR býður sínu fólki, eru til skammar og ef til kæmi gæti ég ekki hugsað mér að hafa fólk í vinnu á því kaupi." OFURVARKÁR BANKASTJÓRI Herdís og Helga vildu ekki hætta miklu fjárhagslega svo þær tóku lítil lán áður en búð- in var opnuð. Nokkrir heildsal- ar lánuðu þeim vörur og svo tóku þær sitt bankalánið hvor. Bankastjórinn var í fyrstu hálf- tregur til að lána þeim og var- aði þær eindregið við þeim hættum sem svona rekstri fylgja. „Hann var kannski fullvar- kár miðað við að við lögðum tvö hús að veði. Við dreifðum áhættunni jafnt og tókum jafn- há lán sem ekki voru nema brot af verðgildi fasteignanna. Hann reyndi á allan hátt að draga úr okkur kjarkinn, benti á reynsluleysi okkar í rekstri fyrirtækja og á þá áhættu sem fylgir. Þetta var allt satt og rétt en ég vildi gjarnan að svipuð varkárni væri viðhöfð oftar. Það er augljóst við mörg gjaldþrot að ekki hefur verið mikil fyrirhyggja. Það er hreint ótrúlegt hvað sumu fólki er leyft að skulda mikið miðað við eignir. Ég vildi gjarnan að þeir sem stjórna þessu landi tækju minni áhættu í peningamálum því allt endar í buddu almenn- ings. Samkeppni er góð en of mikið frelsi er ekki gott. Til þess erum við einfaldlega of fá. Til að rekstur gangi vel um þessar mundir má maður ekki skulda neitt og verður að geta staðgreitt vörur. Samkeppni á borð við þá sem ríkir núna er rugl. Sumir auglýsa ótrúlega lágt vöruverð en sýna bullandi tap á hverju ári. Það er ekki endalaust hægt að gefa með vörunum." Þær stöllur ákváðu að gefa rekstrinum þrjú ár til að sanna sig og ef hann að þeim tíma liðnum skilaði ekki nægu til að þær gætu greitt sér kaup ætl- uðu þær að hætta. Á þeim árum tóku þær ekkert út úr rekstrinum en að reynslutím- anum liðnum var búðin farin að taka við sér. HEIMAVINNANDI VERÐA AÐ EIGA MÖGULEIKA Mestan hluta starfsaldurs síns var Herdís heimavinnandi húsmóðir. Það var ekki fyrr en maður hennar varð að skipta um vinnu vegna veikinda að hún fór að vinna utan heimilis. „Ég verð oft reið þegar ég hugsa til þess að þar sem annar aðilinn er heima njóta hjón mun lakari skattakjara en hinir. Þegar ég var heimavinn- andi gilti sú regla að útivinn- andi konur borguðu skatt af 24.TBL. 1992 VIKAN 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.