Vikan


Vikan - 26.11.1992, Side 14

Vikan - 26.11.1992, Side 14
TEXTI: HJALTIJÓN SVEINSSON RÆTT VIÐ BERGÞORU EIRIKSDOTTUR AFRIKUFARA I SVONA FERÐ FER MAÐUR BARA EINU SINNI ▼ Um jólin í Fez. Hér situr greinar- höfundur fyrir fram- an heima- tilbúió jólatré úr myndavél- arþrífæti og trjá- greinum, ásamt vió- eigandi heimatil- búnu jóla- skrauti. Inæstu tölublöðum Vikunn- ar segir Bergþóra Eiríks- dóttir frá ævintýraferð sinni til Afríku en hún nemur nú líffræði við Háskóla ís- lands. Hún er eitt þeirra fjöl- mörgu ungmenna sem hafa á undanförnum árum farið í ferðir af þessu tagi á vegum bresku ferðaskrifstofunnar Encounter Overland, sem Ferðaskrifstofa stúdenta hefur umboð fyrir hér á landi. Bergþóra fór í ferð þessa um miðjan desember 1990 og tók hún fjóra mánuöi. Til þess að gefa lesendum færi á að kynnast Bergþóru lítillega áður en greinar hennar fara að birtast var hún spurð nokk- urra spurninga um tildrög ferðarinnar og við hverju fólk megi búast. „Ég útskrifaðist úr mennta- skóla vorið 1988 og eftir það fór ég I tveggja vikna ferð til Kenya. Það má kannski segja að ég hafi fengið bakteríuna þá. Okkur vinkonu mína lang- aði aö fara til Ástralíu en hættum við það og ákváðum að beina sjónum okkar fremur aö Afríku. Vinkona mín hætti svo við en ég var þá byrjuö að safna mér fyrir ferðinni og fannst ekki aftur snúið. Ég safnaði markvisst fyrir ferðinni I heilt ár. Ég vann við afgreiðslustörf I verslun en síðustu mánuðina var ég farin að stunda vinnu á þremur stöðum til þess að ég næði markinu. Ferðin kostaði um 500.000 krónur þegar allt er reiknað með en hún tekur tutt- ugu vikur eða fjóra mánuði. VERA VEL Á SIG KOMINN Þar eð ég hafði áður farið til Afríku vissi ég nokkurn veginn við hverju ég mætti búast og gat því undirbúiö mig sam- kvæmt þvi. Áður en lagt er til Afríku verður fólk að láta sprauta sig samviskusamlega gegn ýmsum sjúkdómum sem herja þar I álfunni, eins og malaríu til dæmis. Annars undirbjó ég mig ekkert sér- staklega, ég stundaði ekki lík- amsþjálfun og því um líkt áður en ég hélt af stað enda tel ég mig vera líkamlega hrausta og í bærilegri æfingu yfirleitt. Ferðin var erfiö, því er ekki að neita. Mestan tímann er setið í bil á misjöfnum vegum. Bílarnir eru ekki þeir alþægi- legustu og heldur ekki afrísku vegirnir. Maður var því oft orðinn býsna lúinn að kvöldi. Stundum var haldið vel áfram og reynt að komast sem lengst en í önnur skipti var gerður góður stans, einkum þó ef fólkiö kaus aö skoða eitthvað betur en annað. Við stöldruðum lengi viö á gór- illuslóðum til dæmis, á landa- mærum Uganda og Zaire, í fimm daga. Við vorum tuttugu í allt og fórum í litlum hópum að leita uppi þessi merkilegu dýr. Ferðin tók tvo daga og fórum við gangandi frá tjald- stæðinu og upp í fjöllin þar sem górillurnar héldu sig. Við eyddum hlutfallslega mestum tími í Zaire, meðal annars vegna þess að þar voru vegirnir hvað verstir, ef vegi skyldi kalla. Það bætti heldur ekki úr skák að regn- tíminn var að hefjast og því flutu vegirnir bókstaflega í burtu. MATUR OG NÆTURSTAÐIR Maturinn var misjafn en fór mikið eftir því hvar við vorum. Auk þess sem við tókum með okkur ákveðinn skammt af vistum þurftum við að kaupa mat þar sem við vorum stödd í það og það sinnið. Við eld- uðum síðan í sameiningu. Stundum var eldamennskan kannski ekki upp á marga fiska og erfitt gat reynst að kaupa al- mennilegan, ferskan mat. Fyrir kom aö ekki var hægt að kaupa mikiö annað en kartöflur og þá voru þær hafðar í alla mata með matarbirgðum úr bílnum, búiö til úr þeim salat og svo framvegis, þá var matar- lystin ekki alltaf mikil. Við í mínum hópi komum okkur saman um að snæða ekki kjöt því að margir óttuð- ust að upp gæti komið matar- eitrun auk þess sem kjötið í Afríku er ekki af því tagi sem viö eigum að venjast. Það var annar hópur frá Encounter Overland á svipuðu róli og þar boröaði fólk kjöt þegar það kom því við, vildi prófa sem flest. Eitt sinn fengum við aö smakka hjá þeim krókódílakjöt. Það fór svo að margir urðu veikir meðan á ferðinni stóö. Sérstaklega er mér einn maður minnisstæð- ur. Við sáum hann í byrjun ferðarinnar og svo aftur í febrúar. Þá var hann ekki svipur hjá sjón og virtist hafa sáralítiö nærst þessa tvo mánuði sem liönir voru. Hann hafði lést um tuttugu kíló en í Ijós kom að hann varö veikur af matnum sem hann reyndi að borða og hélt engu niðri. Aumingja maöurinn hélt þetta ekki lengur út og fór heim þegar hér var komið sögu. Ég var ekki í meiri vandræðum
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.