Vikan - 26.11.1992, Page 20
FERÐASAGA BERGÞORU FRH.:
► Hér eru
húsavið-
gerðir í
fullum
gangi.
▼ Þessi
holdmikla
maga-
dansmær
dillaði sér
í takt við
tónlistina
við mikinn
fögnuð
við-
staddra.
trukknum framhjá þeim. Þá
tókum við höndum saman og
lyftum bflunum upp á nær-
liggjandi gangstéttar til að fá
pláss fyrir trukkinn. Bæjarbú-
ar, sem áttu leið hjá, skemmtu
sér konunglega við að horfa á
þessar aðfarir og sumir slógust
jafnvel í leikinn og höfðu mikið
gaman af, rétt eins og við.
Það sem einkennir borgir í
Marokkó eru svokallaðar
medínur, sá hluti borganna
þar sem þeir fátæku búa.
Medínan í Fez er sú stærsta í
Marokkó. Göturnar þar eru
mjög þröngar þannig að um-
ferð fyrir bíla er ekki möguleg
enda eru helstu „samgöngu-
tækin“ múlasnar, asnar og
einstaka skellinöðru brá fyrir,
en við áttum fótum okkar fjör
að launa þegar þær þustu
framhjá. Medínan var hið
mesta völundarhús og ekki
ráðlegt að fara þangað án
þess að hafa leiðsögumann,
annars átti maður á hættu að
villast. Leiðsögumaðurinn
sagði okkur ýmislegt um
mannlífið þar. Þarna blómstr-
ar alls kyns iðnaður en merki-
legast þótti mér þó að sumir
sem þar búa hafa aldrei kom-
ið út fyrir mörk medínunnar.
Mannlíf var mjög áhugavert
og auðvelt hefði verið að eyða
löngum tíma í að skoða það
en við höfðum því miður að-
eins fáar klukkustundir.
Eftir að hafa skoðað mann-
lífið innan medínunnar fórum
við út að borða og fengum
meðal annars að smakka hinn
þjóðlega rétt kuz kuz sem mér
þótti reyndar ekkert Ijúfmeti.
Eftir matinn var boðið upp á
skemmtiatriði, meðal annars
kom fram holdmikil maga-
dansmær sem skemmti okkur
með liprum dansi.
Jólin voru haldin með mikl-
um íburði í Fez. Þar var útbú-
ið jólatré úr þrífæti og greinum
sem voru tíndar í nærliggjandi
skógi og allir fengu jólagjafir
sem þeir opnuðu í fanginu á
sænskum jólasveini.
Á annan í jólum var ferðinni
heitið yfir Atlasfjöllin og þar
fengum við okkar skerf af jóla-
snjónum. Hver hefði trúað því
að það snjóaði f Afríku? Ekki
ég. □
Jólasteikin nýkomin á grillíö en hún var ekki lengi aö hverfa.
Þrír krakkar úr hópnum voru klæddir upp í þjóölega brúö-
kaupsbúninga. Til vinstri situr brúöarmærin en brúöhjónin
sitja við hlið hennar.