Vikan - 26.11.1992, Page 22
TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON / UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
VOPN OG VERÐLAUN
FORSÍÐUSTÚLKUNNAR
Dagatalið segir okkur
að framundan séu
áramót. Og það segir
okkur aftur á móti að
framundan sé krýning sigur-
vegarans í keppninni um titil-
inn forsiðustúlka Vikunnar.
Stúlkurnar, sem prýddu átta
forsíður blaðsins, eru nú að
hefja undirbúning að hinni
heljarmiklu veislu sem fram
fer á Hótel íslandi þann fyrsta
janúar næstkomandi og víst
er að þá verða tímamót að
minnsta kosti I tvennum skiln-
ingi hjá forsíðustúlkunni okk-
ar, hver sem hún verður.
Til að gefa í skyn að hverju
stúlkurnar keppa skulum við
renna augum okkar yfir verð-
launin sem forsíðustúlka árs-
ins hlýtur. Við megum þó ekki
gleyma hinni miklu þjálfun í
fyrirsætustörfum og myndun-
um sem stúlkurnar fá í möpp-
urnar sínar eftir að hafa tekið
þátt í keppninni. Þannig skilar
þátttakan í sjálfu sér stúlkun-
um hverri fyrir sig hlutum sem
eiga eftir að koma þeim að
gagni i framtíðinni. Allt hefur
þetta verulegt gildi fyrir verð-
andi fyrirsætur en fáguð fram-
koma og góðar myndir verða
góðum fyrirsætum vel að
vopnum í þeim harða heimi
sem starfsvettvangur fyrirsæt-
unnar er. Af þessum sökum
einnig höfum við fengið
Esther Finnbogadóttur til liðs
við okkur en hún gerði nánast
kraftaverk í keppninni síðast
þar sem óvanar stúlkur komu
að lokum fram á krýningar-
kvöldi eins og þær hefðu
aldrei gert annað allt sitt líf.
En nú eru það verðlaunin.
Listinn er nokkuð langur enda
veglega veitt til þessarar
keppni að hætti Vikunnar.
Fyrir tækniáhugafólk látum við
allar helstu upplýsingar fylgja
um fyrstu verðlaunin og þá
einkum og sér í lagi Hljóm-
bæjarhluta þeirra. Forsíðu-
stúlka ársins hlýtur: Pioneer
N-32 hljómtækjasamstæðu
með geislaspilara, útvarpi
með 24 stöðva minni, magn-
ara, tónjafnara og tónbreyti,
tvöföldu segulbandstæki, fjar-
stýringu og 2x55 vatta hátöl-
urum og CBN-500 skáp undir
samstæðuna, Sharp CV-3720
14 tommu litasjónvarp með
fjarstýringu, Sharp VHC43
myndbandstæki með miðdrifi,
fjarstýrt með RCA tengi, 365
daga upptökuminni og fleiru,
Channelmaster móttökudisk
og Pace móttakara fyrir send-
ingar sjónvarpsstöðva um
gervihnetti og móttakarinn er
með pólskipti, LNB og Feed-
horn, fjarstýrður, steríó, inn-
byggður afruglari fyrir erlend-
ar stöðvar og möguleikar á að
ná 99 stöðvum. Og að lokum
má telja glæsilegan geisla-
diskastand, hátt í tveggja
metra háan fyrir áttatíu diska.
Allt þetta kemur í hlut forsíðu-
stúlku ársins frá Hljómbæ við
Hverfisgötu.
Línan á einnig drjúgan
skerf að fyrstu verðlaunum en
forsíðustúlkan fær svartan
skáp með áföstum hillum í
mahónílit frá LaScala í Dan-
mörku. Skápurinn og hillurnar
eru smiðuð úr lökkuðum MDF
plötum og hefur þessi litasam-
setning átt gífurlegum vin-
sældum að fagna. Notagildi
svona húsgagns býður nánast
óþrjótandi möguleika og það
fer alls staðar vel. Og til að
forsíðustúlka ársins geti látið
líða þægilega úr sér undir Ijúf-
um tónum úr hljómflutnings-
tækjunum eða við sjónvarpið
gefur Línan henni einnig leð-
urklæddan hægindastól frá
Mitab í Sviþjóð.
Og þessu er ekki lokið. Sig-
urvegari keppninnar heldur á-
fram að halda sér í toppformi
út allt næsta ár sér að kostn-
aðarlausu því forsíðustúlkan
hlýtur ókeypis aðgang að
glæsilegri líkamsræktarað-
stöðu World Class árið 1993.
Auk alls þessa fá allar
stúlkurnar Beverly Hills snyrti-
vörur frá Gale Hayman sem
heildverslunin Rekís gefur
þeim og þá er nú verðlauna-
talningunni að Ijúka, enn sem
komið er að minnsta kosti, en
keppnin hefur vakið mikla at-
hygli og aldrei er að vita nema
enn eigi eftir að bætast við
verðlaunin. □
▲ Brynja
Vífilsdóttir
nýtur hér
þeirra
gæóa sem
bíöa
forsíðu-
stúlk-
unnar sem
krýnd
veröurá
nýárs-
kvöld.
Brynja
komst í
annaó
sæti
keppn-
innar f
fyrra og er
nú stödd í
Austurríki
þar sem
húntekur
þátt í
keppninni
um titilinn
Queen of
the World
1992.
22 VIKAN 24.TBL. 1992