Vikan - 26.11.1992, Síða 40
TEXTIOG UÓSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON
VIKAN HJA HINU HEIMSFRÆGA FYRIRTÆKI CHANEL:
NÝJUNGAR í SNYRTIVÖRUHEIMINUM
4 Eigendur
Chanel fyrir-
tækisins ásamt
starfsmönnum.
▼ Dominique
Moncourtois
skýrir gagnsæi
Teint
Lumimnére
Fluide faröans
fyrir kynningar-
gestum í Nýlis-
tasafni
Parísarborgar.
Stúlkan sem er
aö faröa sig
situr bak viö
gler sem á að
vera táknrænt
fyrir þennan
eiginleika.
Mekka tískunnar er
París og þar var
blaðamaður Vikunnar
staddur fyrir skömmu þegar
nýjustu straumar eins þekkt-
asta tískufyrirtækisins voru
kynntir. Þar í borg eru upp-
sprettulindir nýjunganna og er
þá verið að tala um fatnað,
skartgripi, hárgreiðslu og síð-
ast en ekki síst snyrtivörur.
Chanel er eitt þeirra fyrirtækja
sem löngu eru orðin heims-
þekkt fyrir vandaðar vörur
sem hlotið hafa þá viðurkenn-
ingu í gegnum tíðina að vera
sagðar sígildar. Fylgst er af
athygli með því þegar nýjar
vörur frá þessu fyrirtæki eru
settar á markaðinn og svo var
einnig þegar undirritaður
heimsótti Chanel.
Fyrirtækið var stofnað
nokkru eftir síöustu aldamót
og fór stofnandi þess, Gab-
rielle Chanel, sem var fædd
19. ágúst 1883 og síöar þekkt
sem Coco Chanel, sínar eigin
leiðir í hönnun. Aðferðir henn-
ar féllu vel aö tíðarandanum
og einbeitti hún sér aðallega
að fatnaöi. Það var töluvert
síðar að Chanel hóf hönnun
og framleiðslu á snyrtivörum
og árið 1921 kom á markað-
inn ilmvatn sem nefnt var No
5 og sama ár annaö ilmvatn
sem hún kallaði No 22. Síðan
kom No 19 á markaðinn áriö
1970 og var það síðasta sem
frúin tók þátt í hönnuninni á.
Eftir að hún lést var ilmvatnið
Cristalle hannað í hennar
anda og kynnt árið 1974 og
þá Coco 1984. Chanel hafði
líka ákveðnar skoðanir á því
hvernig karlmenn ættu að
ilma og hannaði því fyrir þá
ilmvatn sem hún nefndi Pour
Monsieur. Áratug eftir að frúin
féll frá var Antaeus, sem er
„eau de toilet", sett á markað-
inn og tæpum áratug síðar
kom Egoist fram á sjónarsvið-
ið og hefur notið gífurlegra
vinsælda.
Síðan snyrtivörudeildin var
stofnuö árið 1924 og einbeitti
sér helst að ilmvötnum hefur
mikiö vatn runnið til sjávar. Er
hún nú með þeim virtari í
heiminum á sviði alhliða
snyrtivara, með öflugar rann-
sóknarstofur á bak við sig. Allt
sem skapað er innan þessa
fyrirtækis er gert með tilliti til
þess innblásturs sem hönnuð-
irnir hafa hlotið við aö kynna
sér lif og störf Chanel sjálfrar.
Flún hafði mjög ákveðinn
smekk og vörur hennar hafa
greinilega fallið í kramiö hjá
fólki um heim allan enda
Chanel löngu komin í hóp sí-
gildra hönnuða.
Það vakti athygli blaða-
manns hversu vel mönnuð
hver staða í snyrtivörudeild-
inni er, bæði hvað varðar
hönnun og rannsóknir þar
sem ströngustu gæðastöðlum
heims er fylgt. Mikið af fram-
úrstefnulegum hlutum er í
þróun hjá fyrirtækinu þannig
að þeir sem vilja komast með
tærnar þar sem sérfræöingar