Vikan - 26.11.1992, Síða 54
ygftr*. j
Eftirréttur Lísu í Undralandi.
'hótel
OEMNSVE
Oðinstorgi
EFTIRRÉTTUR
EFTIRRÉTTUR LÍSU í UNDRALANDI
200 g smiördeia (fæst í bakaríum>
2 msk. flórsvkur
ADALRÉTTUR
LAMBAHRYGGUR
Á RAUÐLAUKSSÓSU
SÓSA:
3- 4 rauðlaukar
1-2 tsk. estraaon
2 msk. soiasósa
1-2 hvítlauksrif. fint söxuð
2 msk. katarine-krvddedik
4- 5 dl kiötsoð
3 msk. söxuð steinselia
3 msk. miúkt smjör
Rauðlaukur, hvítlaukur og estragon hitaö
(ekki brúnað) í u.þ.b. 1 msk. af smjöri. Ediki,
kjötsoði og sojasósu bætt út í og suðan látin
koma upp, þykkt með sósujafnara og sósan
smökkuö til, ef vill má bæta í kjötkrafti. Að lok-
um er steinselju og mjúku smjöri bætt út í en
eftir það má sósan ekki sjóða.
HRYGGUR:
2 framhlutar af hrvaa frift
smiör
salt oa pipar
Hryggurinn er klofinn eftir endilöngu, hrygg-
súlan tekin úr, kjöt og fita hreinsað frá rifjum
og skorið í pöruna. Hryggurinn er kryddaður
og brúnaður á vel heitri pönnu, síðan bakaður
í 180 gráða heitum ofni í 9-10 mfn.
KARTÖFLUR:
4 stórar kartöflur
2 msk. smiör
smátt skorinn blaðlaukur
salt oa pipar
múskat á hnífsoddi
ostur
Kartöflurnar eru bakaðar í 40-50 mín., skorn-
ar til helminga, tekið úr þeim og stappað sam-
an við smjöriö, blaðlaukinn og kryddið. Mauk-
inu sprautað í toppa á plötu, rifnum osti stráð
yfir og sett undir grill smástund.
Framreitt með léttsoðnum gulrótum.
Deigið flatt út í u.þ.b. 2ja mm þykkt og stungið
út með hringlaga móti, nálægt 10 cm í þver-
mál. Síðan er pikkað í deigið með gaffli, flór-
sykri stráð yfir og bakað fallega gullinbrúnt í
200 gráða heitum ofni.
OSTAKREM:
150 a riómaostur
2 msk. svkur
3 dl rjómi
safi úr 1/2 sítrónu
jarðarber
Rjóminn þeyttur, rjómaostur, sítrónusafi og
sykur hrært saman og bætt út í þeyttan rjóm-
ann. Þessu er smurt ofan á botnana og jarð-
arberjum raðað þar ofan á.
SÓSA:
2 dl vatn
3 msk. svkur
300 a frosin hindber
1/2 msk. maizenamjöl
Vatn og sykur er sett í pott og suðunni hleypt
upp, þykkt með 1/2 msk. af maizenamjöli
hrærðu út í 1 dl vatni. Soðið í 1/2 mín.
Hindberin eru marin (Mulinex), sett f sykur-
vatnið, sigtað og kælt.
54 VIKAN 24. TBL. 1992