Vikan - 26.11.1992, Qupperneq 70
í eldhúsinu voru nemar aö undirbúa hádeg-
ismatinn þegar okkur bar aö garöi. Fram-
reidd er þriggja rétta máltíð tvisvar á dag,
auk morgunveröar. í skólanum baka nemar
þar aö auki allt brauö sem notaö er.
ars af því að brautryðjendur í hótelrekstri á
borð við Ritz og Seiler gerðu sér fljótt grein
fyrir því að þeir yrðu í fyrsta lagi að hafa með
sér samtök og stofnuðu því SHA og í öðru
lagi að nauðsynlegt væri að starfrækja hótel-
skóla. Samtökin stofnuðu því sinn eigin skóla
í Lausanne og hann verður hundrað ára á
næsta ári, elsti og einn besti ef ekki besti hót-
elskóli í heimi.
Hve margir nemendur eru í Les Roches?
- Á síðustu önn voru þeir 536 og verða 545
á haustönninni. Þetta er þriggja ára skóli.
Fyrsta árið er helgað þjónustu, annað árið eld-
húsi og þriðja árið stjórnun. Nemendur eru
fyrstu, þriðju og fimmtu önn í skólanum og fara
í starfsþjálfun aðra, fjórðu og sjöttu önn. Að því
loknu fá þeir diplóma. Skólinn hefur nýverið
hlotið viðurkenningu The New England Associ-
ation of Schools and Colleges og það þýðir að
nemendur geta farið til Bandaríkjanna, bætt
þar við sig einu ári og hlotið BSc gráðu.
Hvaðan koma nemendur aðallega?
- Þeir koma frá 63 löndum. Þriðjungur er
Asíubúar, þriðjungur Evrópubúar og einn
þriðji kemur annars staðar að, frá Norður- og
Suður-Ameríku, Afríku, Ástralíu, Nýja Sjáland,
sem sagt alls staðar að úr heiminum. Svo má
bæta því við að þriðjungur nemenda kemur
frá fjölskyldum sem stunda einhvers konar
ferðaþjónustu - í fjölskyldunni er veitingahúsa-
eða hótelfólk, ferðamálafólk eða flugfólk.
Hver eru inntökuskilyrðl?
- Nemendur verða að hafa lokið prófi sem
svarar til „high school'1 í Bandaríkjunum, svo
dæmi sé tekið. Þeir þurfa að taka svokallað
TOEFL enskupróf og ná 500 stigum, hafi þeir
ekki tekið önnur sambærileg próf. Byrjendur
geta verið á aldrinum 18-25 ára og ég held
fast við þá reglu að þeir séu orðnir 18 ára. Sé
umsækjandi eldri en 25 ára og sætti hann sig
við að vinna með yngri stúdentum veiti ég
honum inngöngu.
Sækja Svisslendingar sjálfirþennan skóla?
- Já, þeir eru farnir að koma hingað líka og
eru milli fimm og tíu prósent nemenda. Flestir
þeirra búa þó utan Sviss, hafa lært ensku í
11; -vW
vTlf 1 c-; mffi ‘
skólanum og koma því í enskumælandi skóla
hér. Það færist samt í vöxt að Svisslendingar úr
þýskumælandi hluta Sviss sæki um inngöngu.
Þeir vilja ekki fara til Lausanne og læra á
frönsku og þeir hugsa sem svo: Við verðum að
læra ensku af því að hún er mál framtíðarinnar.
STARFSÞJÁLFUN MIKILVÆG
Mikil áhersla er lögð á starfsþjálfun í skól-
anum. Nemendur læra ekki aðeins á bókina
heldur fara þeir aðra hverja önn til starfa á
hótelum og veitingahúsum. Hver er ástæðan?
- Þetta eru dæmigerðir svissneskir
kennsluhættir. Það er mikill munur á sviss-
neskum hótelskólum og til dæmis þeim
bandarísku þar sem námið er eingöngu
akademískt. Við teljum að nemandi eigi að
byrja á byrjuninni bæði hvað hagnýta þekk-
FRH.Á BLS. 73
Les Roches hótelskólinn í Bluche. Arkitekt-
úrinn er nýtískulegur en þó í samræmi viö
gamlar heföir á þessum slóöum. Takiö eftir
þakinu. Bluche er örskammt frá einu
þekktasta skíöasvæöi Sviss, Crans-Mont-
ana.
70 VIKAN 24.TBL. 1992