Vikan - 26.11.1992, Page 73
hafa afsökun er hann búinn að missa of
marga punkta til að fá að taka lokapróf annar-
innar. Öll tímasetning er líka nákvæm og allt
upp á mínútu, bæði mæting i kennslustundir
og vinnu. Þetta hjálpaði mér mikið þegar ég
fór að vinna fyrir stundvísa Svisslendinga.
Hvernig er að vera í Bluche?
- Húsnæði er gott. Flestir eru í tveggja
manna herbergi en borga þarf aukalega fyrir
eins manns herbergi. Herbergin eru með sér
klósetti og sturtu. Það er þrifið hjá okkur á
hverjum degi og skipt á rúmunum tvisvar í
viku. Það er dekrað við okkur. Vissar reglur
gilda eins og það að vistunum er lokað klukk-
an ellefu á kvöldin og þá mega gestir af gagn-
stæðu kyni ekki vera þar lengur. Þetta er
bæði af því að í skólanum er fólk alls staðar
að úr heiminum og samræma verður siði og
vegna þess að Valais er strangkaþólsk
kantóna.
STARFSÞJÁLFUN I
LUZERN OG Á SÖGU
Fyrsta starfsþjálfun Sigrúnar var á Palace-
hótelinu í Luzern. - Ég fór á miðjum vetri í
viðtal. Það var tekið vel á móti mér og mér
sagt hvernig vinnan myndi ganga fyrir sig.
Svo byrjaði ég strax og skóla lauk í júníbyrjun.
Starfsmannastjórinn kynnti mig fyrir fólkinu
sem ég átti að vinna með og sagði mér allt
sem ég þurfti að vita um bæinn. Það er ofsa-
lega gott að fá svona góðar viðtökur. Manni
leið eins og þörf væri fyrir mann í vinnunni.
Þarna var ég í fimm mánuði. Palace er fimm
stjörnu hótel með fínum veitingastað. Ég vann
þar og á veröndinni, við morgunverðinn og
einnig við veislur sem haldnar voru í hótelinu.
Ég var mjög heppin. í Luzern er töluð sviss-
þýska og mér gekk ágætlega með mennta-
skólaþýskuna mina.
Að sögn Sigrúnar er undirbúningur stúd-
ents héðan að heiman góður fyrir hótelskól-
ann og ekki síðri en menntun flestra annarra í
skólanum. Hún nefndi sérstaklega líffræði
sem hafi gagnast vel í matvælafræðinni.
Margir höfðu litla sem enga þekkingu á henni
þegar þeir komu f skólann.
- Það er gaman að kynnast fólki frá jafn-
mörgum löndum og er í Les Ftoches. Ég var
með stúlku frá Taiwan í herbergi í fyrra og
annarri frá Kenýa í vetur. Hún og stúlka frá
Simbabve eru bestu vinkonur mínar. Það var
gott að við vorum bara tveir, íslendingarnir.
Eg gat alltaf leitað til Vals og við gátum talað
saman íslensku en lokuðumst þó ekki af eins
og til dæmis Svíar og Brasilíubúar sem sjást
aðeins í hópum.
Hvernig er svo að vera nemi á Sögu?
- Mig langaði til að sjá hvernig starfið geng-
ur fyrir sig hér heima, af því ég ætla að koma
heim eftir að ég er búin í skólanum. Ef ég
hefði farið í alla starfsþjálfunina úti vissi ég
ekki hvernig þetta væri hér og það fyndist mér
svolítið slæmt. Verklagið er allt annað enda er
eldhúsinu ekki skipt niður eins og gert er í
franska eldhúsinu í skólanum og á hótelum
sem ég hef séð úti. En það er gott að vera hér
og geta rætt óhikað við samstarfsfólkið, engir
tungumálaörðugleikar eða stéttaskipting. Á
þann hátt nýtist námsdvölin fullkomlega, segir
Sigrún. - Ég vissi voða lítið út í hvað ég var
að fara þegar ég byrjaði í skólanum en ég er
mjög ánægð með þetta allt og námið varð
eins og ég vonaði að það yrði. □
FRH. AF BLS. 70
ingu snertir sem og aðra. Hann þarf ekki endi-
lega að verða góður þjónn eða góður kokkur
heldur vita af eigin raun hvað er um að vera í
eldhúsinu eða veitingasalnum. Hann verður
líka að vita eitthvað um herbergin á hótelinu
og þarf að geta skipulagt starfsemina en ekki
síður að vera fær um að hafa eftirlit með því
Frá Bluche mitt í svissnesku Ölpunum og á
hinu fræga Carns-Montana-skíöasvæöi.
hvað fólk er að gera og leiðrétta það ef nauð-
syn krefur. Verði fólk sjálft að vinna og leggja
sig fram veit það um hvað málið snýst.
Þessar kennsluaðferðir eiga rætur að rekja
til svissneska hersins. í flestum löndum geta
menn gerst liðsforingjar ef þeir eru með stúd-
entspróf. í Sviss verða allir, jafnvel þriggja
stjörnu generálar, að hafa gengið ( gegnum
öll stig áður en þeir komast á toppinn. Við
fylgjum þessari demókratísku aðferð í mennt-
un okkar og ég tel þetta gott. Að sjálfsögðu er
þó lögð mikil áhersla á bóklega þáttinn þann
tíma sem nemendur eru í skólanum, segir
Hans von Rotz.
Læra nemendur mikið í starfsþjálfuninni úti
á vinnumarkaðinum?
- Það fer nokkuð eftir því hvar þeir vinna. Á
mörgum hótelum er hugsað vel um nemana
og allt gert til þess að námstíminn verði þeim
sem notadrýgstur. Annars staðar gengur
þetta ekki eins vel og hótel lenda jafnvel á
svörtum lista hjá okkur. Hugmyndin er að
nemandinn fái tilfinningu fyrir raunveruleikan-
um, að hann hafi ekki aðeins fengið að læra í
fullkomnu eldhúsi skólans þar sem nógur tími
er til að gera alla hluti heldur hafi hann orðið
að vinna undir álagi og með alls konar fólk i
kringum sig. Það er gott að kynnast raunveru-
leikanum og hafa til dæmis erfiðan yfirmann.
Á því læra menn og á eftir geta þeir orðið
góðir stjórnendur sjálfir.
FINNST KAUPIÐ JAFNVEL OF HÁTT
Þér finnst ekki skótinn vera að ieggja fyrir-
tækjunum til ódýran starfskraft?
- Nei. Nemarnir fá hátt kaup hér í saman-
burði við það sem er í öðrum löndum í Evrópu
- um 2000 franka á mánuði (um 80 þúsund
krónur en rétt er að taka fram að Sviss er dýrt
land að búa í). Mér finnst kaupið hátt fyrstu
tvo til þrjá mánuðina. Það mætti hækka það
þegar á líður eða greiða þeim sérstakan bón-
us sem standa sig vel, segir von Rotz.
Nemendur eru hins vegar ekki allir jafnsann-
færðir um að fyrirtækin hækkuðu kaupið eða
greiddu bónus fengju þau að ráða. Laun ófag-
lærðra í Sviss eru um 2500 frankar á mánuði.
Von Rotz segir að skólinn hafi á að skipa
góðu kennaraliði; kennarar á þjónustusviði og
í eldhúsi hafi mikla reynslu á sínu sviði. Góður
kennari segir hann helst þurfa að búa yfir
starfsreynslu, kennarahæfileikum og góðri
enskukunnáttu. Sjálfur tók von Rotz við skóla-
stjórninni fyrir tveimur árum og hefur verið að
breyta ýmsu síðan. í fyrrahaust komu fulltrúar
háskólasámbandsins í Nýja Englandi og tóku
út starfsemi skólans.
- Hér voru sex sérfræðingar í eina viku og
ég hef ekki lent í annarri eins rannsókn áður,
segir von Rotz sem var þó hér áður hátt settur
foringi í svissneska hernum svo ýmsu hefur
hann kynnst um ævina. - Þeir voru ánægðir
með okkur og nú geta nemendur héðan lokið
BSc prófi í Bandaríkunum. Þeir fyrstu eru
farnir þangað. Þetta voru ekki bestu memend-
urnir okkar en standa sig samt mjög vel svo við
getum verið ánægðir. Þetta er viðurkenning
fyrir skólann og sýnir að við erum á réttri leið.
Hvar stendur Les Roches miðað við aðra
hótelskóla í Sviss?
- Þetta er hættuleg spurning en miðað við
þá svörun sem við höfum fengið frá hótelum,
sem tekið hafa nema frá okkur, er Ijóst að
menn eru ánægðir með þá og sækjast eftir að
fá þá í starfsþjálfun. Ég held líka að skólinn sé
Úr aöalveitingasalnum þar sem fimm hundr-
uö nemendur boröa samtímis. Nemar í þjón-
ustu leggja á borö og þjóna til borós. Hér
verður allt aö vera kórrétt gert því kennarar
fylgjast meö hverri hreyfingu þjónustunem-
anna. Afleiöingin er sú aö mátíöin tekur
heilan klukkutíma og er ekkert sældarbrauó
fyrir þá sem eru aö boróa.
sérstaklega góður á þjónustu- og eldhússvið-
inu. Nemarnir gera sér Ijóst að þeir verða að
byrja á botninum, þeir eru góðir starfsmenn
og hafa góða undirstöðumenntun. Ég verð að
viðurkenna að ég er ánægður og tel að við
séum í hópi þriggja bestu hótelskóla Sviss. □
Úr heimavistinni.
24. TBL. 1992 VIKAN 73