Vikan - 26.11.1992, Side 93
lega. Hin eru öll eldri."
Smekkleysa gefur diskinn
út, fyrsta útgáfa fyrirtækisins
síðan Gling Gló kom út um
jólin 1989. Kolrassa krókríð-
andi er komin á samning hjá
fyrirtækinu og þrátt fyrir mikla
tregðu til að segja blaöamanni
trá innihaldi hans sögðu þær
þó að hann hljóöaði upp á
eina plötu fyrir innanlands-
markað innan árs en ein af á-
stæðunum fyrir því að þær
fóru í hljóðver til að taka upp
Drápu var þrýstingur frá
breska poppblaðinu Melody
Maker. Útsendarar blaðsins
sáu Kolrössu hér f sumar,
hrifust af stelpunum og vildu
fá efni með þeim sent til Bret-
lands. Þær langar út. Eru
kannski að spá í að skella sér
næsta sumar ef allt gengu
upp.
Birgitta: „Drápa lýsir okkur
mjög vel, er mjög svipuð því
sem við hljómum á tónleikum.
Við vildum ekki nota mikið af
hljóðvers„trixum", vildum ekki
gefa fólki ranga mynd af okk-
ur. Drápan er eins og við
erum. Hún er hrá.“
Sigrún: „Jón Skuggi orðaði
þetta mjög vel. Hann sagði að
platan væri einlæg, kæmi
beint að fólki."
Þær hafa undanfarið verið
að semja nýtt efni til að losna
við að „spila sömu gömlu lög-
in“ eins og þær segja. Þær
vilja sem sagt koma ferskar til
leiks. Lokaspurning blaða-
manns var hvernig þeim fynd-
ist að vera orðnar þátttakend-
ur í rokkbransanum.
Birgitta: „Þetta er krefjandi
en gaman og ef einhver metn-
aður á að vera í þessu þá tek-
ur það mikinn tíma."
Sigrún: „Ég myndi alls ekki
vilja snúa til baka, alls ekki
vilja gera eitthvað annað, vera
sundstjarna, rithöfundur eða
eitthvað slíkt."
Elíza: „Viö erum bjartsýnar
á framtíöina, vonum að platan
gangi vel. Og við viljum bara
segja það að konur geta vel
verið í þessum bransa, rétt
eins og karlarnir."
Birgitta: „Það er líka mjög
ánægjulegt að við höfum frétt
af nokkrum kvennasveitum
eftir aö við byrjuðum. Það er
hið besta mál."
Að þessum orðum töluðum
settust þrír sauðdrukknir við
næsta borð og létu hátt. Það
fór meira af blaðrinu í þeim
inn á snælduna en spjalli
stelpnanna. En það kom ekki
aö sök, spurningalistinn var
tæmdur. Klukkan var hálfsjö á
þriðjudegi og þeir á perunni.
Ótrúlegt þrek! □
Maðurinn sem var
heilinn á bak við
rosasveitina Pink
Floyd, Roger Waters, hefur
ekki átt sjö dagana sæla síð-
an upp úr samstarfinu slitnaði
þegar nokkuð var liðið á síð-
asta áratug. Hann hefur gefið
út þrjár sólóplötur, The Pros
and Cons of Hitchiking
(1983), Radio K.A.O.S.
(1987) og nú nýveriö kom út
platan Amused to Death sem
fékk ekkert stórkostlegar við-
tökur gagnrýnenda.
WATERS OG SINEAD
Hann átti hugmyndina að því
að setja The Wall, meistara-
stykki Pink Floyd, upp í Berlín
Sinead hin írska. Ekkí efst á
vinsældalistnum hjá Waters.
í júlí 1991 og fékk til liðs við
sig margar poppstjörnur.
Þeirra á meðal var Sinead
O’Connor en í nýlegu blaða-
viðtali lýsti Waters samskipt-
um þeirra:
„Það var mjög erfitt starf að
skipuleggja uppsetningu Wall-
tónleikanna en það var mjög
gott að vinna með öllum;
Bryan Adams, Van Morrison,
Cindy Lauper, öllum nema
Sinead O’Connor. Ég hef
aldrei hitt nokkra manneskju
sem er ámóta ófagmannleg
og upptekin af sjálfri sér og
Sinead. Það er f rauninni
skelfilegt. Hún var mjög
hrædd um ímynd sína vegna
þess að hún hélt að það yrði
svo lítið af ungu fólki á tón-
leikunum.
Nokkrum mánuðum eftir
tónleikana, þegar platan var
komin út, þá birtist hún í sjón-
varpsviðtali í Bandarikjunum
og lýsti frati á þetta allt sam-
an. Henni hefði verið nær að
þegja því með þessu var hún
aðeins að spilla fyrir minning-
arsjóðnum sem var settur á
stofn í sambandi við tónleik-
ana. Hún skilur ekkert, hún er
bara fávís ung stúlka."
WATERS OG
FYRRUM FÉLAGAR
HANS Í PINK FLOYD
Árið 1983 kom The Final Cut
út og er síðasta eiginlega
Pink Floyd platan. Waters
hætti eftir þetta en 1987 komu
hinir þrír, David Gilmour, Nick
Mason og Rick Wright, saman
að nýju undir nafninu Pink
Floyd. Og Waters fór í mál
sem enn er ekki lokið.
„Þegar „þetta fólk" kom
saman undir nafninu Pink
Floyd varð ég mjög niðurdreg-
inn. Þeir urðu mjög glaðir.
Eða urðu þeir glaðir? Spurðu
ROGER WATERS
ER EKKI PAR
HRIFINN AF
SINEAD
O'CONNOR
NÉ FYRRUM
FÉLÖGUM
SÍNUM
í PINK FLOYD
Félagarnir i Pink Floyd eins
og þeir líta út núna. Frá
vinstri: Rick Wright, Nick
Mason, David Gilmour.
þá. Ég meina, hvernig geta
þeir stigið á svið og spilaö
mín lög, lög af The Wall. Verk-
ið er ádeila á Leikvangarokkið
(enska: Stadium Rock) og
þarna voru þeir, „Pink Floyd",
aö græöa stórfé á að spila
það á risastórum leikvöngum.
Þeir hafa svikið málstaðinn.
Gilmour og Mason eiga núna
nafnið Pink Floyd. Þeir passa
það eins og sjáaldur auga
síns," segir Roger Waters og
er greinilega svekktur og reiö-
ur þessa dagana. □
▲ Roger
Waters er
ekki hrif-
inn af
Sinead
O’Connor,
hvað þá
fyrrum fé-
lögum sín-
um í Pink
Floyd,
sem hann
segir hafa
svikiö sig.
24. TBL. 1992 VIKAN 93
TEXTI: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON