Vikan - 26.11.1992, Síða 114
Pictures sem framleiðir þessa
og hefur hún verið sýnd að
undanförnu í Stjörnubíói.
Myndin greinir frá tölvugraf-
íkhönnuðinum Allie sem leikin
er af Bridget Fonda. Stúlkan
sú hefur lent upp á kant við
unnusta sinn og því er hann
fluttur út úr íbúðinni hennar.
Hún afræður síðan að augiýsa
eftir leigjanda því hún hræöist
að vera ein í stórri íbúð. Leigj-
andinn, sem hún velur, heitir
Hedy og er leikin af Jennifer
Jason Leigh. Sú er ekki öll
þar sem hún er séö. f fyrstu
virðist allt vera í stakasta lagi.
Þeim tveimur kemur vel sam-
an og húsráðandi telur sig
hafa fengið himnasendingu,
sem sé fyrirmyndarleigjanda.
Skjótt skipast þó veður í lofti.
Hedy reynist býsna yfirþyrm-
andi og vill ráða yfir Allie I einu
og öllu. Hún ætlar sér meira
að segja að eiga hlutdeild í
kærasta Allie þegar hann snýr
aftur til hennar.
Hvað veldur svo þessu
ráðslagi og geðveilu hjá
Hedy? Persónuleiki hennar er
truflaður vegna þess að hún
hefur misst tvíburasystur sína
og þar sem Allie er sviplík
henni í háttum og yfirbragði
vill hún láta sem Allie sé
systirin sem þarf að vernda og
passa. Hedy vill líka deila öllu
meö Allie. Spenna hleðst upp
og til heiftarlegra átaka kemur
þar sem aöeins einn einstak-
lingur kemst lífs af. Meira
verður ekki sagt um Single
White Female en þetta þykir
vel hepþnuð sálfræðispennu-
mynd. Leikstjórnin þykir lýta-
laus, samleikur leikkvennanna
4 Glæsi-
leg er hún,
ekki satt?
Leikkonan
Anne
Archer.
► Julie
Walters í
myndinni
Just Like
a Woman.
hefur veriö lofaður í hvívetna
og handritið þykir vei samið.
Barbet Schroeder, leik-
stjóri Single White Female,
mun nú vera að vinna að
mynd sem heitir The Killing
eða Drápið og er sögð skipuð
Mickey Rourke og Christine
Lahiti (Housekeeping, Runn-
ing on Empty). Auk þess er
framundan mynd sem kölluð
er Before and After og grein-
ir frá hjónum sem þurfa að
horfast í augu við óþægilegar
staðreyndir þegar sonur
þeirra er sakaður um morð.
Hugsanleg í aðalhlutverkið í
þeirri mynd er óskarsverð-
launahafinn Meryl Streep.
TVÆR LEIKKONUR
í NÆRMYND
Anne Archer er falieg, tígu-
leg og fönguleg leikkona sem
við sáum síðast í Patriot
Games sem hefur verið sýnd
að undaförnu í Háskólabíói
og er án efa ein magnaðasta
spennumynd þessa árs.
Harrison Ford er hreint út
sagt magnaður í hlutverki
Jacks Ryan.
Anne Archer lék líka á móti
Gene Hackman í Narrow
Margin (1990) sem sýnd var í
SAM-bíóunum fyrir einu og
hálfu ári. Best er hún þó þekkt
fyrir hiutverk sitt í myndinni
Hættuleg kynni eða Fatal
Attraction (1987) sem skaut
henni á toppinn. Anne Archer
hefur reyndar verið viðriðin
kvikmyndum síðan 1970 og
fyrsta myndin hennar var
mynd meö Jon Voight sem
heitir All American Boy.
Móðir hennar var
4 Meðan
allt lék í
lyndi.
Singlc
White
Femaie.
Grensásvegi10
- þjónar þér allan sólarhringinn
Hollywoodstirni, Marjorie
Lord, fræg stjarna á fimmta
áratugnum. Auk þess var faðir
hennar fræg Hollywood-
stjarna, John Archer hét
hann. Anne Archer fékk vand-
að uppeldi, lærði dans og
söng og gekk í háskóla þar
sem hún nam leiklist. Hún er
nú 45 ára gömul og býr með
íþróttafréttaritaranum Terry
Jastrow. Hún á líka tvo syni. í
sameiningu eiga hjónin kvik-
myndaframleiðslufyrirtæki.
Hún safnar líka listmunum og
hefur samhliða kvikmyndaleik
leikið í sjónvarpsþáttum eins
og Falcon Crest, Hawaii-5-0
og Ironside. Hún hefur sér-
lega gaman af að leika í list-
rænum kvikmyndum eins og
Love at Large sem er ekki
dæmigerð afþreyingarmynd,
gerð af leikstjóranum Alan
Rudolph og var sýnd í
Stjörnubíói.
Anne Archer hefur nóg að
gera. Hún leikur í Nails eða
Nöglum með leikaranum
Dennis Hopper. Síðan hefur
hún leikið í Family Prayers
með Joe Mantegna (Homi-
cide) og Body of Evidence
með Willem Dafoe (White
Sands, Wild at Heart) og
söngkonunni Madonnu. Anne
Archer er greinilega rísandi
stjarna.
Julie Walters sló rækilega
í gegn í myndinni Educating
Rita (1983) þar sem hún lék á
móti öndvegisleikaranum
Michael Caine. Síðan hefur
hún leikið í myndum eins og
She Is Wearing Pink
Pyjamas, Personal Service,
Car Trouble og Stepping
Out svo dæmi séu nefnd. Nú
hefur hún hins vegar leikið í
mynd sem hefur hneykslað
Breta upp á síðkastið. Er um
að ræða myndina Just Like a
Woman þar sem Julie Walt-
ers leikur fertuga skrifstofu-
konu sem verður ástfangin af
ameriskum bankastarfsmanni
í Lundúnum. Það sem hins
vegar flækir málin er að hann
er klæðskiptingur. Á daginn er
hann Gerald, vel þokkaður
bankastarfsmaður. Þegar
kvöldar breytir hann sér í næt-
urdrottninguna Geraldine.
Persóna Julie Walters held-
ur síðan aö Gerald eigi sér
viðhald því eitt kvöldiö sér
hún glæsilega konu koma út
úr íbúðinni hans.
Hún gerir sér ekki grein fyrir
aö þetta er Gerald I kven-
klæðum. Mikið er um funheit-
ar ástarsenur í myndinni. Ger-
ald eða Geraldine útskýrir
þetta síðan fyrir konunni og
hún fellst á þessa hætti hans
því hún er yfir sig ástfangin af
honum og á ástin sér því eng-
in takmörk í þessu lífi.
Þess má geta í þessu sam-
bandi að samkvæmt könnun,
sem gerð var á Bretlandseyj-
um fyrir nokkru, eru 95 pró-
sent klæðskiptinga vel giftir
og eiga börn og hana nú. Á
þessi mynd, Just Like a Wom-
an, eftir að hneyksla landann
eður ei? Það kemur væntan-
lega í Ijós.
FRÍAR HEIMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR
PÖNTUNARSÍMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ