Vikan - 26.11.1992, Side 115
Frh. af bls. 28
árum. Stuðningur að hluta til
af hálfu ríkisins kæmi einnig til
greina til að byggja fastari
grunn undir sönglífið svo við
förum ekki alfarið á mis við
þessa menningarstarfsemi."
- Hvernig býrð þú þig undir
óperuhlutverk?
„Það er hægt að undirbúa
sig á ýmsan hátt. Ég fer yfir
textann og sögu verksins. Ég
reyni að finna forsendurnar
fyrir því að tónskáldið skrifaði
þetta verk og hvað það hafði
gert áður. Ég skoða sögu-
þráðinn í verkinu og set mig
eftir fremsta megni í spor per-
sónunnar sem ég á að túlka,
reyni að komast eins nálægt
henni og hægt er. Bara það
að gera sér í hugarlund
hvernig þessi karakter gengur
er mikið atriði og að finna til
dæmis út með hvaða líkams-
parti hann leiðir í göngulag-
inu. Það er hægt að gera ým-
islegt við hlutverk og það er
náttúrlega í samráði við leik-
stjóra og tónlistarstjóra sem
þessir hlutir eru ákveðnir, en
hér eru allir jafnir í ákvarðana-
tökunni um þessi mál. Síðan
fer ég yfir tónlistina í verkinu í
heild og set hana í tengsl við
textann, til dæmis með því að
tala hana í gegn. Loks syng
ég textann við píanóundirleik
en allt þetta ferli fer ég í gegn-
um hér í óperunni með mín-
um eigin undirleikara. Þegar
æfingar hefjast vil ég kunna
mitt hlutverk utanbókar og
helst líka hlutverk þeirra sem
koma mlnu hlutverki beint við.
Þetta er spennandi þróun
sem maður gengur í gegnum
þegar maður er að læra ekki
bara hlutverk heldur í raun
heila óperu og það getur tekið
allt frá tveimur til þremur vik-
um upp í tvo til þrjá mánuði.
Það fer eftir því hversu mikið
liggur við en maður hefur
heyrt sögur af mönnum sem
hafa lært hlutverk yfir nótt en
ég veit ekki hvað er mikið til í
því. Til að læra hlutverk
sómasamlega tel ég einn til
tvo mánuði algjört lágmark.“
- Átt þú von á að syngja
inn á einhverjar plötur á næst-
unni?
„Það er alltaf draumurinn
að komast á plast. Annars var
ég beðinn um að syngja nokk-
ur lög séra Friðriks inn á
geisladisk og hljómsnældu
þegar ég var heima sfðast,
fyrir KFUM og KFUK, svona til
varðveislu. Það kom út um
síðustu páska. Það er fyrsta
efnið sem hefur verið gefið út
með mér og mér þykir mjög
vænt um það. Ég hef verið að
velta fyrir mér þeim möguleika
að setja saman óperudagskrá
og fá jafnvel hljómsveitina
hérna til undirleiks, en þær
hugmyndir eru enn á frumstigi
og óvíst hvort það yrði gefið
út á íslandi eða eingöngu
hér,“ segir Magnús og leggur
áherslu á að þessar hug-
myndir séu á frumstigi.
- Er eitthvað sem við höf-
um ekki farið yfir hér sem þú
vilt segja að lokum?
„Ekki nema það að samn-
ingaviðræður standa yfir um
hlutverk fyrir næsta tímabil og
þó að það sé ekkert fastá-
kveðið ennþá reikna ég með
að verða í La Boheme. Þá er
hugsanlegt að ég fái hlutverk í
Vespri Siciliani eftir Verdi og
Meistarasöngvurunum eftir
Wagner, en ég á von á að
hlutverkin mín fari stækkandi.
Við förum með La Boheme til
Japans í mars og apríl á
næsta ári og þar mun ég
sennilega syngja hlutverk
Colline. Óperan sem slík ferð-
ast frekar sjaldan en í fyrra
tók ég aftur á móti þátt f upp-
setningu á La Traviata eftir
Verdi sem við sýndum um öll
Bandaríkin, fimmtíu og þrjár
sýningar alls. Það var angi af
San Francisco óperunni sem
heitir Western Opera Theater
sem stóð fyrir þeirri ferð.“
Við Magnús skreppum út
fyrir til að taka myndir og
hann bendir mér hreykinn á
hverja stórstjörnu óperu-
heimsins á fætur annarri sem
eru að koma og fara út úr
húsinu. Ég er nú bara leik-
maður á þessu sviði og þekki
engan í bransanum en ég veit
að í húsi sem tekur þrjú þús-
und og þrjú hundruð áhorf-
endur og aðgangseyrir er allt
að þrjú hundruð dollurum þarf
meira en heppni til að komast
á fjalirnar. a
481' ‘III
EAJ 3( lOKJMt
».*TUÍ4l SfllAv
THE WAY YOU ARE - THE WAY YOU'GO
LONESTAR.
J II V C N A M !■; N S I) I V I S I O N /ORIeH PARlS
ÚTSÖLUST AÐIR:
HVC.F.A. Rcvkjavíkurapótcki. - HVGEA. Kriilglunni. - INGÓLFS
APÓTEK, Kringlunni. REGNHLÍFABÚÐIN, Laugnvcgi. - SOFFÍA,
Hicmmtorgi. NANA, Hólagarði. - TOPPTÍSKAN, Aðalstrteti. - APÓTEK
GARDAllÆJAR, Hrísmóum. - SNYRTILÍNAN. Fjarðarkaupum Hfn. -
RANGÁR APÓTEK, Hvulsvclli. FIcllu. ST.IÖRNU APÓTEK, Akurcvri.
SELFOSS APÖTEK, Sclfossi. - ANNETTA: Kcflavik. - DÍANA. Ólafsfirði.
r.~
MhESTAK
Ö0% vol.
126 ml O í.2 FL.OZ.US