Vikan - 06.05.1993, Qupperneq 14
AUSTURLAND
KOMIÐ INN Á KORTIÐ
VIKAN SÆKIR HEIM SJÓNVARP AUSTURLANDS Á EGILSSTÖÐUM
oo
'=>
C3
CD
OO
on
Fram að þessu hefur fyrir-
tæki að nafni Sjónvarp
Austurlands annast dreif-
ingu efnis og áskriftarsöfnun
fyrir Stöð 2 á Austurlandi.
Svæðið nær frá Höfn í Horna-
firði og norður í Vopnafjörð.
Það vantar reyndar á að öll
byggðarlög fjórðungsins nái
Stöð 2 því að til Stöðvarfjarð-
ar, Breiðdalsvíkur, Djúpavogs
og Borgarfjarðar eystra hafa
sendingarnar ekki ennþá
borist. Það stendur þó til bóta
alls staðar nema í Borgarfirði
þegar Ijósleiðarinn svonefndi
kemur til skjalanna en það
gæti orðið á þessu ári.
Ekki er talið svara kostnaði
að tengja Borgfirðinga eystra
við dreifikerfið af tæknilegum
og landfræðilegum ástæðum
en íbúafjöldinn þar er um 250.
Þetta er reyndar ögn broslegt
því að forsvarsmenn Sjón-
varps Austurlands, þeir Ágúst
Ólafsson og Sigurjón Ólason,
eru báðir úr Borgarfirði. Þann
fyrrnefnda kannast áhorfend-
ur fréttatímans 19:19 vel við
enda sést hann ósjaldan á
skjánum. Hann er fundvís á
góðar fréttir og það er eins og
Austurland hafi fyrst tengst ís-
lenskum sjónvarpsáhorfend-
um áþreifanlega þegar þeir
félagarnir komu til skjalanna
fyrir fimm árum. Sigurjón sér
um tæknimálin og er því
ævinlega hinum megin við
myndavélina.
Þeir Ágúst og Sigurjón eru
einu starfsmenn fyrirtækisins
auk stúlku sem er í hálfu starfi
sem áskriftarfulltrúi. Þeir hafa
það verkefni með höndum að
afla efnis og frétta fyrir Stöð 2
og síðan að líta eftir dreifikerf-
inu víðs vegar um dreifingar-
svæðið. Þeir fást einnig við
ýmis verkefni önnur á sviði
myndbandagerðar fyrir stofn-
anir og fyrirtæki.
Að sögn Ágústs hóf Sjón-
varp Austurlands starfsemi
árið 1987. Þá tóku nokkrir að-
ilar sig saman og stofnuðu
hlutafélag. Keyptir voru send-
ar, myndverið sett upp og
sendingar fóru af stað. Til
skamms tíma var sendur út
vikulegur fréttaþáttur með
staðbundnu efni um dreifing-
arsvæðið, Austurglugginn.
Síðar var útsendingum fækk-
að um helming og loks var
þeim hætt þrátt fyrir miklar
vinsældir þar eð of dýrt þótti
að halda þættinum úti.
Að meðaltali eru nálægt
þrjár fréttir á viku frá þeim
Ágústi og Sigurjóni í 19:19-
fréttatímanum. „Þetta er þó
mjög misjafnt," segir Ágúst,
„meira yfir sumartímann og
mun minna á veturna."
FRÉTT OG EKKI FRÉTT
Ágúst var spurður að því
hvort þeim þætti þeir jafnvel
vera svolítið utangarðs og
fréttir þeirra þættu ekki nægi-
lega spennandi fyrir áhorfend-
ur utan svæðisins.
„Það tók tíma að meta það
hvaða fréttir gætu gengið yfir
allt landið en ekki bara hér í
landsfjórðungnum. Þegar við
hittum á frétt, sem við höldum
að höfði til allra landsmanna,
þá er hún yfirleitt tekin til birt-
ingar. Við höfum haft mjög
gott samstarf við fróttastofu
Stöðvar 2 og hefur okkur
gengið vel að koma fréttum
að. Okkur finnst litið á okkur
sem hluta af fréttastofunni,
sem við erum í raun og veru.
Ég hef nokkrum sinnum dval-
ið syðra og unnið á fréttastof-
unni um tíma. Það hefur mér
þótt mjög gagnlegt, bæði
starfsins vegna og samskipt-
anna.
Það er samt ekki svo að við
getum sjálfir fylgst með öllu
því sem er að gerast á svæð-
inu, sem er býsna stórt.
Svæðið, sem við sinnum, er
mjög stórt og oftar en ekki
þurfum við að skjótast milli
staða. Mér finnst það ekki
lengur tiltökumál að rúlla á
staði eins og Norðfjörð, Fá-
skrúðsfjörð og Stöðvarfjörð í
einni og sömu ferðinni, um
150 kílómetra fram og til
baka, til þess að ná í tvær
eða þrjár fréttir.
Við höfum jafnframt komið
okkur upp fréttariturum á hin-
um ýmsu stöðum og þeir hafa
samband við okkur í hvert
sinn sem eitthvað gerist eða
þá að við hringjum í þá og
spyrjum fregna.
Fólk hringir gjarnan í okkur
þegar því finnst eitthvað frétt-
næmt vera á seyði og þá veg-
um við það og metum hvort
við getum gert úr því frétt sem
höfðar til allra áhorfenda
stöðvarinnar. Við erum til
Hér klippa þeir Sigurjón og Ágúst til fréttina um flutning lög-
reglustöövarinnar á Egilsstööum í nýtt húsnæöi. Ágúst er nær.
dæmis í mjög góðum tengsl-
um við bæjarstjórana í fjórð-
ungnum og lögregluna náttúr-
lega og þekkjum orðið allt
þetta fólk persónulega."
FRÉTTAFLUTNINGUR
STÓRAUKIST
- Hvernig hefur ykkur verið
tekið eystra?
„Okkur hefur alls staðar
verið mjög vel tekið. Síðan
fyrirtækið varð til hefur að
mínu mati stóraukist frétta-
flutningur héðan að austan,
ekki bara á Stöð 2 heldur
einnig hjá Sjónvarpinu.
Það á ekki að vera neinn
munur á því að búa austur á
Reyðarfirði eða suður [
Reykjavík hvað varðar það
hvort eitthvað er talið frétt-
næmt eða ekki. Atburður sem
gerist á Reyðarfirði á að eiga
sömu möguleika á því að
komast í 19:19 eins og ef
hann gerðist í Reykjavík. Á
þessu hefur orðið mikil breyt-
ing á síðustu fimm árum eða
svo. Fjarlægðirnar hafa styst
og atburðir færst nær fólki
með tilkomu nýrrar tækni og
fjölmiðla.
Þetta hefur verið mjög já-
kvætt fyrir stöðina okkar. Við
rekum áskriftarsjónvarp og
auðvitað virkar það hvetjandi
þegar fólk sér að það hefur
eitthvað að segja og að fréttir
úr heimabyggðinni geta komið
í 19:19 eins og hvað annað."
- Þið getiö ekki ennþá sent
efni frá ykkur í gegnum loftiö.
„Við erum ennþá algjörlega
háðir fluginu í þeim efnum.
Okkur verður aftur á móti í lófa
lagið að senda fréttirnar jafn-
harðan þegar Ijósleiðarinn
verður kominn. Við höfum
mjög oft orðið fyrir því að efni,
sem birtast hefur þurft sam-
dægurs, hefur ekki komist í
tæka tíð. Við erum í þessum
efnum mjög háðir veðri og flug-
skilyrðum en hingað er flogið
tvisvar á dag undir venjulegum
kringumstæðum.“ □
14VIKAN 9.TBL. 1993