Vikan - 06.05.1993, Page 32
hann oft ósáttur við hana
meöan á þessu stóð. Með-
ferðin neyddi Bill til að líta inn
á við, á myrkrið sem svo oft lá
við að brygði fyrir hann fæti.
Eins og á viö um margt opin-
skátt og vingjarnlegt fólk var
hann óvanur þess konar
naflaskoðun. Fertugsafmælið
var honum líka erfitt, eins og
á við um marga karlmenn.
Vinir hafa sagt aö Bill hafi far-
Banda-
ríska
þjóðin
kynntist
henni
fyrst
þegar hún
kom fram
meö
manni
sínum í
hinum vin-
sæla
sjónvarps-
þætti „60
mínútur“.
ið að líta á sig sem misheppn-
aðan á þessum tíma, orðið
þunglyndur og sjálfstortím-
andi. Enn einu sinni fór kjafta-
sögumyllan um framhjáhald í
gang. Enn þann dag í dag les
Bill bækur um börn alkó-
hólista, hugsanlega í leit að
einhverju sem varpi Ijósi á tor-
ráðinn innri sársaukann.
BARÁTTAN UM
FORSETAEMBÆTTID
Síðla sumars 1991 skrifaði
Hillary bréf til gamla kennar-
ans síns á Wellesley, Alans
Schechter. „Við erum að fara
að leggja út í stórt ævintýri,"
stóð í því. Ævintýri þætti lík-
lega ófullnægjandi lýsing á
því sem átti eftir að gerast
næsta áriö.
Þegar sögurnar um fram-
hjáhald Bills fóru að ganga
um land allt í upphafi árs
1992 var Hillary fljót að
blanda sér I málið. Hún hafði
sagt skilið við háralit sinn,
gleraugun og fæöingarnafnið
til þess að stuðla að endur-
kjöri Bills 1982 og fyrir for-
setatignina vildi hún allt til
vinna. Hjónin kölluðu þannig
til blaðamannafundar og Bill
viðurkenndi að hjónabandið
hefði ekki verið „fullkomið",
þau hefðu þó unnið að því
hörðum höndum að halda
sambandinu gangandi og
væru stolt af því. Hillary var
stjarna dagsins en hún sagði:
„Það mikilvæga er að viö
höfum aldrei hlaupist á brott
frá hvort öðru. Við höfum unn-
ið okkur ( gegnum alls kyns
vandamál. Það slítur hjóna-
böndum að fólk vinnur of mik-
ið og missir jafnaöargeðiö.
Það kemur allt mögulegt upp
á og mér finnst óviðeigandi að
ræða það. Ég trúi ekki á
þennan játningastíl vegna
þess að hvað mig varðar byrj-
ar maður að grafa undan
sambandinu þegar maður
opnar það fyrir ókunnugum.
Við ræðum ekki svona hluti í
hjónabandi okkar viö fjöl-
skyldu og vini. Þannig erum
við og þannig lifum við. Og ég
held að flestir lifi þannig."
Þetta gekk upp. Þau höfðu
setið með hörðustu blaða-
mönnum Washington og þeir
enduðu fundinn með því að
spyrja hvort Hillary yrði góður
forsetaframbjóðandi. Bill svar-
aði: „Ég drægi mig glaöur í
hlé ef hún byði sig fram.“ Hill-
ary var orðin stjarna. Strax á
fyrstu vikum kosningabarátt-
unnar var tilboð Bills til kjós-
enda að þeir fengju annan
Clinton ( kaupbæti ef hann
yrði kosinn. Margir spurðu
hvers vegna Hillary væri ekki í
framboði. Svo brast stíflan.
Æsifréttablaðið Star birti grein
þess efnis aö Bill Clinton hefði
staðið í tólf ára ástarsam-
bandi við konu með því ólík-
lega nafni Gennifer Flowers.
OPINSKÁ UMFJÖLLUN
Fyrstu viðbrögð Hillary voru að
kæfa söguna í fæðingu og af-
neita henni. En að svara Star?
Það virtist fáránlegt. Einhvers
konar varnir voru þó nauösyn-
legar. Eftir andvökunótt höfðu
hjónin komist að þeirri niður-
stööu að framboð Clintons
þyldi ekki undanbrögð eða
hálfkveðnar vísur og að þau
ætluðu aö berjast en ekki að
draga framboðið til baka. Þau
völdu sér aö koma fram í
fréttaþættinum 60 Minutes þó
að Bill kviði því. Eitt var að
ræða við tvö hundruð blaða-
menn og láta þá um að túlka
tilfinningar hans á pappír en
allt annaö að ræða hjónaband
og framhjáhald frammi fyrir
súmmlinsu vinsælasta frétta-
skýringaþáttar landsins. Clint-
on hefur tilhneigingu til að vera
allt of opinn við fólk og einn
veikleika hans er sá að vita
ekki hvenær hann á að hætta
að gefa af sér. Steve Kroft frá
CBS sá sér leik á borði að
egna fyrir hann gildru.
„Þú hefur sagt að erfiðleikar
hafi verið ( hjónabandi þínu,“
sagði Kroft. „Hvað táknar
það?“
„Ég á ekki við...“ Clinton
þagnaði.
„Þiö voruð skilin að borði
og sæng,“ greip Kroft fram (.
„Táknar það framhjáhald?"
Clinton hikaði aftur. „Ég
held að fólk sem hefur verið
gift lengi viti hvað það táknar,"
sagði hann svo. Clinton og
fréttamaðurinn héldu áfram að
kýta. Loks tók Hillary til máls.
„Engum meðal áhorfenda
myndi líða vel að sitja hér og
skýra frá öllu sem gengið hef-
ur á í lífinu eða hjónaband-
inu,“ sagði hún. „Og ég tel
það hættulegt ef allir eiga ekki
einkalífssvæði í þessu landi."
Skilaboð: Nú er nóg komiö.
„Ég er algerlega sammála
þér,“ stamaði Kroft, „og fólk
vill áreiðanlega leyfa ykkur að
gleyma þessu."
„Við höfum gengið lengra
en nokkur sem ég þekki,“
sagði hún, „og meira ætlum
viö ekki að segja."
Fólk var almennt sammála
um að 60 Minutes viðtalið
hefði tekist vel. Sumir gengu
svo langt að segja aö Hillary
heföi staðið með pálmann í
höndunum.
Morguninn eftir kveikti Hill-
ary á fréttum CNN - og stirðn-
aði. Gennifer Flowers var
komin aftur, ásamt upptökum
af sjálfri sér og Clinton. Þegar
Hillary var búin að ná sér fór
hún að ímynda sér hvernig
hún færi að því að gagnspyrja
Flowers frammi fyrir kviödómi
og hrekja fullyrðingar hennar.
Það kom í Ijós að Flowers
hafði þegið greiðslu sem ó-
Ijóst er hvort nam 50 þúsund
eða 170 þúsund dölum en að
baki stóð fyrrum starfsmaður
Arkansasfylkis sem hafði ver-
ið rekinn úr starfi fyrir fjárdrátt.
Sókn Hillary hafði bjargað
framboði Bills. Allir voru sam-
mála um að áköf vörn hennar
hefði verið besta vopn þeirra.
Vandamáliö var að hún hafði
fórnað sjálfri sér.
BAKSLAGIÐ
Bakslagið hófst stuttu eftir 60
Minutes þáttinn. í þetta sinn
beindist grjótkastið ekki að
höfði Bills heldur Hillary.
Strax í fyrstu viku febrúar
voru blaðamenn farnir að
spyrja Bill hvort hann hefði
ekki áhyggjur af því að konan
hans stæli af honum senunni.
Spurningarnar trufluðu hann
ekki. „Ég hef alltaf kunnaö aö
meta sterkar konur,“ sagði
hann. „Það truflar mig ekki aö
fólk sjái hana og veröi spennt
og segi að hún gæti líka orðið
góöur forseti."
Ftichard Nixon hafði aðrar
skoöanir. Hann benti á að
sterk kona „léti manninn sinn
líta út eins og aumingja". Fjöl-
miðlamenn fóru að kyrja
sama kór. Vinsældir Hillary
meðal almennings fóru hrað-
minnkandi en það sem átti
eftir aö fylgja henni til loka
kosningabaráttunnar var svar
hennar við orðum fyrrum fylk-
isstjóra Kaliforníu, Jerry
Brown, um viðskiptasambönd
hennar og Bills. „Ég hefði lík-
lega getað verið heima og
bakað smákökur og haldið te-
boð,“ sagði hún. „Þess í staö
ákvað ég að starfa við mitt
fag, sem ég hóf störf í áður en
maðurinn minn varð opinber
persóna.“
Hún var greinilega reið,
hafði móðgast yfir orðum
Browns sem henni fannst
gera lítið úr sér sem útivinn-
andi eiginkonu. Barbara Bush
virtist skilja reiði hennar en al-
menningur kunni ekki að meta
afstöðu hennar.
Hún var þegar búin að
móðga marga eftir að hafa
sagt á 60 Minutes: „Ég er ekki
einhver lítil kona sem stendur
með manni sínum eins og
Tammy Wynette." Tammy
Wynette skrifaði henni bréf
sem í stóð: „Þú hefur móðgað
hverja einustu manneskju
sem er hrifin af þessu lagi, frú
Clinton - og það eru margar
milljónir. Ég tel þig hafa
móðgað alla aödáendur
sveitasöngva og alla sem
hafa unniö sig upp af eigin
rammleik án þess að hafa
neinn til að fara með sig i
Hvíta húsið.“ Hillary neyddst
til að biðjast opinberlega af-
sökunar.
Greind Hillary, bardaga-
fýsn, það að hún sagði hug
sinn án þess aö hika, hafði
farið í taugarnar á bandarisk-
um kjósendum um nokkra
hríð en þetta með „smákök-
urnar og teið“ var of mikið. All-
ir helstu blaðamenn og frétta-
skýrendur Bandaríkjanna
gagnrýndu Hillary fyrir „af-
skiptasemi" af kosningabar-
áttu Bills. Hillary var skiljan-
lega bitur og vinsældir hennar
dvínuðu óöum.
Nýja hernaðartæknin var
að ræða ekkert annað en
barnauppeldi og matarupp-
skriftir. Aöspurð um hvert hlut-
verk hennar í ríkisstjórn Clint-
ons yrði svaraði Hillary: „Mig
langar til þess að verða tals-
maður barna í Hvíta húsinu."
Hún lét klippa sig og keypti
sér glæsileg föt. Chelsea var
dregin úr felum og sýnd til að
sanna að Clintonhjónin ættu í
raun og veru barn. Enn ein
hastarleg árás átti eftir að líta
dagsins Ijós; frá landsþingi
Repúblikanaflokksins sem á-
kvað að Hillary lægi vel við
höggi.
HATURSHÁTÍÐ
Landsþing repúblikana í ágúst
1992 var haturshátíð og þótt
32VIKAN 9. TBL. 1993