Vikan - 06.05.1993, Side 51
I
!
Benedikt Gíslason var einn i framboöi í forsetaembættió og náói mjög
góöri kosningu.
I talsins og ( síðustu kosning-
um voru fjórtán í framboði auk
þess sem fjöldi manns bauð
| sig fram í ýmsar nefndir og
ráð.
Það liggur því í augum uppi
I að kosningarnar skipa stóran
sess innan skólans og í kosn-
ingavikunni eru gangar skól-
I ans þaktir af óteljandi kosn-
ingaspjöldum, ýmist heimatil-
búnum eða prentsmiðjuunn-
um. Framboðsræður eru
haldnar í hverjum frímínútum
, og veglegt kosningablað gefið
út. Hver frambjóðandi kemur
sér upp kosningaskrifstofu þar
■ sem eldheitir stuðningsmenn
hans kynna kosningaloforð
viðkomandi. Þar er einnig
\ boðið upp á ýmsar veitingar
en frambjóðendur eru ávallt
klókir við að verða sér úti um
| ýmislegt góðgæti á góðu
verði. í hverjum einustu frí-
mínútum er eitthvað nýtt á
boðstólum - ókeypis súkku-
laði, snakk, gosdrykkir, pylsur
eða heimabakaðar kökur svo
dæmi séu tekin.
Frambjóðendur eru einnig
með ýmsar uppákomur og
reyna að vekja athygli á sér
með ýmsu móti.
Það er aygljóst að menn
verða að leggja hart að sér
ætli þeir að sigra mótherjann.
Eins og gefur að skilja getur
kostnaðurinn farið fram úr hófi
þegar búið er að láta prenta
veggspjöld, útbúa veitingar og
fleira sem þessu fylgir. Dæmi
eru um að frambjóðendur hafi
eytt allt að fjörutíu þúsund
krónum i kosningaáróðurinn.
Spyrja menn sig þá ef til vill
hvort kostnaðurinn sé ekki
farinn út í öfgar. Þeir fram-
bjóðendur sem hafa náð kjöri
neita því og spyrja á móti
hvað geti verið eftirsóknar-
verðara fyrir nemanda í Verzl-
unarskólanum en að hafa
völdin í félagslífi skólans í
hendi sér. □
Sumir
fengu
fyrirtæki
tllaó
styója vió
bakióá
sér gegn
auglýs-
ingu á
vegg-
spjöld-
unum.
MEGRUNAR-
POSTURINN
MAGASÝRUR
Kæri megrunarpóstur!
Ég er ein af þeim sem langar
til að losna við nokkuð mörg
kíló en ég er líka með grun
um magasár eða að ég myndi
of mikið af magasýrum. Er allt
í lagi fyrir mig að fara á
NUPO-kúrinn?
Með von um svar.
Ein í þyngri kantinum.
Kæra ofþung!
Nupo-duftið er ekkert annað
en venjuleg fæða í fljótandi
formi þar sem viðkomandi fær
öll þau næringarefni sem
hann þarf yfir daginn og það
er ekkert sem mælir á móti
því að manneskja sem eins er
ástatt fyrir og þér geti neytt
þess. Engin af þeim nær-
ingarefnum sem i þvi eru auka
magasýruframleiðsluna meira
en venjulegt fæði. Þvert á
móti hefur komið fram í þeim
viðtölum sem Vikan hefur átt
við fólk sem svipað er ástatt
fyrir og þér að flest bendir til
þess að frekar dragi úr fram-
leiðslu magasýranna.
Með ósk um góðan árangur
og farsæla lausnl
KOSTNAÐURINN
Kæri megrunarpóstur!
Mig langar til að spyrja ykkur í
hreinskilni hvort þessi kúr sé
ekki dálítið of dýr?
Einn sem á ekki of mikið i
buddunni.
Það mat veltur á því sem
maður skilgreinir sem „of dýrt“.
Dagskammturinn af NUPO
kostar um 280 krónur - en
hvað kosta máltíðirnar yfir
einn dag? Þetta samsvarar
um það bil einni samloku á
dag og hún dugar frekar
skammt þar sem í hana vant-
ar mörg þau næringarefni sem
líkaminn þarfnast fyrir heilan
dag. Það verður þá að bæta
sér upp ( formi annars konar
fæðu sem oft á tiðum er mis-
jöfn að næringargildi þar sem
gjarnan slæðist ansi mikið af
fituefnum með og þeir sem
eru of feitir þurfa alls ekki á
þeim að halda. Þrátt fyrir það
vantar enn töluvert upp á það
sem nauðsynlegt er.
Á þessu má sjá að þetta er
ekki svo ýkja mikill kostnaður
þó svo að ráðlagt sé að fólk
bæti einhverri fæðu við
kúrinn, hvernig svo sem hún
er samsett, þrátt fyrir að
erlendir sérfræðingar telji ekki
þörf á því.
Til viðbótar má telja liklegt
að þegar fólk hefur náð af sér
óæskilegum kílóum fari ýmsir
kvillar, sem hafa hrjáð það, að
láta minna til sín taka þannig
að lækniskostnaður minnki.
Jafnvel má búast við auknu
starfsþreki þannig að það fjár-
magn sem lagt hefur verið í
kúrinn er vafalaust fljótt að
skila sér og pyngjan mun
vafalaust verða þyngri en
búist er við (upphafi.
HARÐAR HÆ.GÐIR
Kæri megrunarpóstur!
Mig langar til að forvitnast um
hvort maður fær ekki harðar
hægðir af NUPO-duftinu.
Ella.
Kæra Ella.
Að sjálfsögðu minnka hægð-
imar verulega þegar duftsins er
einungis neytt og nokkrir hafa
kvartað yfir því. Það á þó
eflaust frekar við um eldri
gerðir því það sem er á
markaönum nú inniheldur þann
dagskammt af trefjaefnum sem
ráðlagður er samkvæmt nýj-
ustu stöðlum manneldisráðs
og á hann að tryggja eðlilegar
hægðir. Til eru svokallaðar
pektinlausnir sem koma í veg
fyrir að hægðimar taki í sig
steinefni sem eru nauðsynleg
fyrir likamann, svo sem margar
aðrar trefjategundir gera. Þess
má einnig geta að NUPO-
duftið er blandað fiskolíu sem
inniheldur omega-3 fitusýrur
eins og lýsi og þær auka enn á
hollustu þess.
Trefjarnar eiga að mýkja
hægðirnar og vísindamenn
benda á að hlutur þeirra í
fæðunni eigi að minnka lík-
urnar á meltingarvegskrabba-
meini.
Með ósk um góðan árangur!
9.TBL. 1993 VIKAN 51