Vikan - 15.07.1993, Síða 22
SALARKIMINN
SIGTRYGGUR JÓNSSON SÁLFRÆÐINGUR
SVARAR LESENDUM
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam-
skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og
annaö þaö sem lýtur aö sálfræöi og sálfræöilegum vanda-
málum. Bréfin mega vera nafnlaus eöa undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
Sigtryggur Jónsson sálfræöingur, Álftamýri 3, 108 Reykjavík
FANGI A EIGIN
Kæri sálfræðingur.
Ég er í miklum vanda. Svo er
mál með vexti að sonur minn
er nýfluttur heim til okkar. Hann
er rúmlega tvítugur og hefur
ekki búið heima hjá okkur síð-
astliðin fimm ár heldur verið við
vinnu hingað og þangað um
landið. Hann fór að heiman á
sínum tíma vegna erfiðieika í
samskiptum hans við okkur.
Viö hreinlega gáfumst upp á
að hafa hann hjá okkur.
Ég er ekki gift pabba hans
en ég held ekki að þaö skipti
máli. Það er strákurinn sem
hreiniega gerir allt vitiaust í
kringum sig. Hann varð at-
vinnulaus og þar sem langt er
síðan hann var heima héldum
við að það gæti verið ágætt
að hann kæmi heim og viö
gætum kynnst honum upp á
nýtt og gert eitthvað fyrir hann
í leiðinni.
Hann var varla kominn inn
úr dyrunum þegar hann gekk
hreinlega yfir okkur. Hann
heimtar peninga, hótar bar-
smíðum, leggur undir sig sófa
og gerir ekki handtak. Við get-
um ekkert gert í málinu. Ég
geri ráð fyrir aö hann gæti
lamið mig ef hann vildi og er
hrædd við hann og maðurinn
minn vill ekki orsaka vanda-
mál og gengur því ekki hart
fram. Það versta er að sonur
okkar, sem er sjö ára gamall,
er logandi hræddur við þenn-
an bróður sinn og gerir allt
sem sá eldri segir honum aö
gera. Hann lætur því misnota
sig. Mér finnst ég varnarlaus
og get ekkert gert. Strákurinn
harðneitar að fara og mér
finnst eins og ég sé fangi inni
á mínu eigin heimili.
Hvað í ósköpunum get ég
gert? Ég vil gjarnan þiggja góð
ráð afþér.
Hrædd móðir.
Kæra hrædda móöir.
Þú átt sannarlega viö vandamál
aö stríða. Það má þó skoða
það vandamál út frá víðara
samhengi en þú gerir. Sam-
skiptaerfiöleikar stafa ætíð af
því að samskipti fólks lenda í
eins konar vítahring sem hvor-
ugur aöilinn brýtur. Báðir aðilar
halda áfram aö fara eftir því
samskiptamynstri sem viðheld-
ur vítahringnum. Til þess að
breyta slíkum samskiptum þarf
að gera sér grein fyrir því að
um samskipti er að ræða en
ekki einungis að annar aðilinn
sé óhæfur til samskipta. Einnig
þarf að gera sér grein fyrir því
hver vítahringurinn er og hvern-
ig hægt sé að brjóta hann.
AD KENNA ÖÐRUM UM
Til þess að forðast að horfast f
augu við okkur sjálf og þar með
forðast að horfast í augu við
okkar eigin þátt i samskiptum
við aðra gerum viö það gjarnan
að kenna öðrum um erfiðleika
okkar. Það má vel vera aö aðrir
einstaklingar séu erfiðir í sam-
skiptum og hegði sér þannig aö
þeir láti okkur líða illa. Okkar
verkefni verður samt sem áður
aö bregðast við þessu atferli
hins einstaklingsins. Við getum
brugðist við á margan hátt.
Hvernig viö bregðumst við ræð-
ur hins vegar úrslitum um hvert
næsta skref verður og hvernig
líðan okkar þróast í framhald-
22 VIKAN 14. TBL. 1993