Vikan


Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 62

Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 62
Þar aö auki er Tri Star Pict- ures aö gera ameríska Godzilla-mynd. Ef viö athugum kvikmynda- söguna veröum við aö bæta viö blóösugumyndum, var- úlfsmyndum, múmíumynd- um, Frankenstein-myndum og Dr. Jekyl and Mr. Hyde myndum. Sýningargestir áriö 1931 ráku upp óp mikil þegar Bela Lugosi birtist á hvíta tjaldinu sem Drakúla greifi. Sama máli gegndi um Lou Chaney Jr. og Boris Karloft þegar þeir túlkuöu Franken- stein, múmíuna og varúlfinn á fjóröa áratugnum. Drakúla- myndir eöa blóðsugumyndir hafa alltaf veriö vinsælar. Bara á síöastliönu ári voru gerðar sjö blóösugumyndir. Besta Drakúlaútgáfan var mynd Francis Ford Coppola, Bram Stokers Dracula, sem naut alls staðar vinsælda. Aö lokum má bæta viö aö þaö hefur færst í vöxt aö gerðar séu hrollvekjur meö gamansömu ívafi. Leikstjórinn John Landis geröi skemmti- lega varúlfsmynd áriö 1981, An American Werewolf in London. Þar krydduöu lagasmellir frá sjötta áratugn- um frásögnina. Sömu takta er aö finna í nýjustu mynd Land- is, Innocent Blood, þar sem Ijúfar ballöður fljóta meö þeg- ar blóðsugur, kvikdauðir og mafíósar eigast viö. Fright Night-myndirnar eru líka blóðsugumyndir með gaman- sömu ívafi. Hrollvekja þarf sem sé ekki aö vera einvörð- ungu hryllingleg, hún getur líka veriö skondin og þaö er stefnan í hrollvekjumynda- gerðinni núna - aö sameina hryllinginn og gamanið þannig aö áhorfendur öskra af hræöslu og hlátri í senn. □ Gary Oldman sem Drakúla greifi. Svona lítur rússnesk sápa út. íburöurinn er ekki mikill, RÚSSNESKAR SÁPUÓPERUR OG SJÓNVARPSAUGLÝSINGAR Eftirfall kommúnismans í Sovétríkjunum hafa þarlendir framleiðendur sjónvarpsefnis reynt aö stæla bandarískar sem og evrópsk- ar sápuóperur til aö þóknast rússneskum áhorfendum. Þá þyrstir í skemmti- og afþrey- ingarefni eftir aö hafa þurft að horfa á hvimleiðar stjórnmála- umræður í sjónvarpssal kvöld eftir kvöld sjö daga vikunnar. Nú er kominn annar og nýr tími, tími frjálshyggju og upp- byggingar markaöskerfis í Rússlandi. Þrátt fyrir að rússneskir framleiöendur séu farnir aö framleiöa eigiö sápusjón- varpsefni eru erlendar sápur vinsælli. Mexíkönsk sápa, sem heitir á ensku The Rich Also Cry eöa Hinir auöugu gráta líka, er til að mynda geysivinsæl. Rússneskir sjón- varpsáhorfendur gleyma sér á hverju kvöldi viö aö fylgjast meö þessum mexíkönsku þáttum um spillingu, ást og framhjáhald. Lítum nú nánar á rússnesk- ar sjónvarpssápur. Hvernig eru þær byggðar upp? Eru þær ööruvísi en evrópskar og bandarískar sápur? Rússnesk sápa, sem ber titilinn Melochi Zhismi eða Hinir smávægi- legu hlutir lifsins, er í fimm- tíu og tveimur hálftíma þáttum sem eru sýndir vikulega. Þessi sápuópera fjallar um Kuznetsovs-fjölskylduna, dæmigerða rússneska fjöl- skyldu, hvorki ríka né fátæka. Heimilisfaðirinn, Sergei, er verkfræðingur og eiginkona hans, María, er kennari aö mennt. Þau eiga tvö börn og fjölskyldan á íbúð í Moskvu. Fjallað er um umskiptin sem hafa orðið á rússnesku sam- félagi eftir fall kommúnism- ans. Fyrstu þættirnir snúast um hvernig Sergei missir vinnuna hjá ríkisreknu fyrirtæki og í kjölfarið koma í Ijós brestir í hjónabandinu. María á í leyni- legu ástarsambandi viö nýrík- an rússneskan fatahönnuð sem á iburðarmikla íbúö og Mercedes Benz bíl. Fata- hönnuðurinn á líka eftir aö halda viö dóttur Maríu, Yulya. Faðir Sergeis lendir í vand- ræöum út af bók sem hann er aö skrifa um störf kommún- istaflokksins. Þaö reynir virki- lega á fjölskyldulífið en allt endar vel. Þættir þessir eru skrifaðir með margra mánaöa fyrir- vara. Það er gert vegna þess aö ef rússneskum sjónvarpsá- horfendum mislíkar eitthvaö við þættina eru þeir einfald- lega umskrifaðir til aö tapa ekki vinsældunum. Verið er aö framleiöa rúss- nesk/austurríska sápu sem heitir The Smirnovs eöa Smirnov-fjölskyldan og fjall- ar um daglegt líf fjölskyldu sem ætlar aö taka þátt í hinu nýja og frjálsa markaðskerfi. Þættir þessir eru þar aö auki notaöir sem kennslutæki til að fræöa rússneskan almúga um ágæti frjáls markaöskerfis. Þrátt fyrir aö komnar séu rússneskar sápur eru þær innfluttu vinsælli eins og áður var getið. Auk The Rich Also Cry má nefna aöra mexík- anska sápu, Enginn nema þú eða Nobody but You og eina brasilíska, Senorita. Hvernig skyldu svo rúss- neskar auglýsingar vera? Undirritaður hefur séö nokkrar og eru þær allt ööruvísi upp- byggðar en vestrænar auglýs- ingar. Nefna má tvær sem eru dálítið sérstakar hvaö varöar efnistök. Sú fyrri sýnir glæsi- lega rússneska snót sem er í pels og situr í leöursófa. Inn kemur ungur maöur í vel sniönum jakkafötum (trúlega vestrænum). Á undan sér ýtir hann litlum vagni sem er troö- fullur af vestrænum varningi eins og frönsku koníaki, þýsk- um pylsum og svissnesku og bresku sælgæti. Síðan er klippt. Næsta myndskeið sýnir þennan sama mann en nú er hann nakinn og hefur bara dagblaö til aö skýla sér. Loks sést eftirfarandi texti: Foröist skyndisambönd. Síöan verö- ur hver og einn að túlka þessa auglýsingu. Síöari auglýsingin sýnir inn- viöi blokkar einnar. Síöan heyrast læti og öskur. íbúar blokkarinnar rifast heiftarlega og lenda I áflogum. Þá opnast dyr og inn kemur maður í náttslopp og heldur á spili. Hinir íbúarnir hætta aö rífast og byrja að brosa. Síðan er klippt. Aö endingu sýnir aug- lýsingin okkur mennina vera aö spila og eftirfarandi texti kemur: Hættið aö rífast viö náungann. Spiliö kapítal- íska spiliö. VIKAN 14. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.