Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 67
m Isl j«ds
- SEGIR STEINN LOGI BJÖRNSSON HJÁ FLUGLEIÐUM í FRANKFURT
Borgin Frankfurt er nánast í Þýskalandi
miðju og þangað liggja ótal hraðbrautir
úr öllum áttum, hvort sem er á landi
eða í lofti og fljótabátarnir, sem koma til borg-
arinnar eftir fljótinu Main, leggjast að bryggju
við Miðbakkann eins og ekkert sé. Hvergi í
Evrópu er jafnmikil umferð bíla og flugvéla en
flugvöllurinn er sá fjölfarnasti á öllu megin-
landinu. Þar ýmist lendir vél eða tekur sig á
loft að meðaltali á hverri mínútu sólarhrings-
ins.
í Frankfurt er einnig miðstöð fjármálanna í
Þýskalandi og þar hafa nokkrir stærstu bank-
arnir höfuðstöðvar sínar - í háhýsum sem
minna á Manhattan í New York enda er borg-
in cjjarnan kölluð Mainhattan.
Islendingar hafa umtalsverð umsvif í þess-
um kraumandi suðupotti mannlífsins. Á besta
stað í miðbænum, að Rossmarkt 10 uppi á 4.
hæð, er að finna sölu- og markaðsskrifstofu
Flugleiða. Þar vinna um tuttugu manns við að
kynna ísland og selja Þjóðverjum farmiða til
fyrirheitna landsins í norðri eða til Vestur-
heims.
Forstöðumaður skrifstofunnar er ungur
maður, Steinn Logi Björnsson, áhugamaður
um körfuknattleik, stúdent frá Verzló, við-
skiptafræðingur frá HÍ og að því búnu hélt
hann ásamt konu sinni, Önnu Pétursdóttur, til
framhaldsnáms í Bandaríkjunum sem hafa átt
þónokkur ítök í honum síðan. Blaðamaður
Vikunnar hafði mælt sér mót við hann í há-
degisverðarhléi, á matsölustað úti undir ber-
um himni í góða veðrinu við Goethe-torg,
skammt frá fæðingarstað þjóðskálds þeirra
Þjóðverja. Það vildi svo heppilega til að
Steinn Logi var einmitt við þennan dag er erf-
iðlega hafði gengið að ná sambandi við hann.
Það er nefnilega ekki alltaf auðvelt að ná
sambandi við Flugleiðaskrifstofuna í Frankfurt
því að stundum er „á tali“ klukkustundum
saman eins og símalínurnar séu rauðglóandi.
„Við þurftum að fækka fólki á skrifstofunni
hér og höfum á undanförnum misserum ekki
ráðið í staðinn fyrir þá sem hætta. Um leið
hafa umsvifin aukist og af skiljanlegum á-
stæðum hefur vinnuálag á hvern og einn auk-
ist til muna,“ segir Steinn Logi þegar hann er
spurður að því hvers vegna svo erfitt geti
reynst að ná sambandi.“
700 SÍMTÖL Á DAG
„Ég verð að viðurkenna að fólksfæðin getur
komið niður á þjónustunni. Það getur til dæm-
is verið afar eriitt að ná sambandi við skrif-
stofuna í síma því að allar línur eru uppteknar
mestallan daginn og við höfum ekki bolmagn
til að fjölga þeim símtölum sem afgreidd eru.
Við þurfum að bæta úr þessu. Á toppdegi tök-
um við um sjö hundruð sfmtöl á dag, langflest
frá ferðaskrifstofum í Þýskalandi. Fjögur
hundruð símtöl eru daglegt brauð fyrstu sex
mánuði ársins.
- Og íhverju eru símtölin fólgin?
„Við erum spurð ótal spurninga um allt
mögulegt, næstu bændagistingu, næsta tjald-
stæði og þar fram eftir götunum. Þess vegna
Steinn Logi réðst til Flugleiöa strax og hann
kom frá námi í Bandaríkjunum. Hann var
oröinn svæöisstjóri og forstööumaöur skrif-
stofunnar í Frankfurt skömmu síðar.
er svo mikilvægt að láta koma fram sem flest-
ar og haldbærastar upplýsingar í kynningar-
bæklingunum. í ár gáfum við út miklu ítarlegri
bæklinga en við höfum gert hingað til. Það á
örugglega eftir að skila sér. Sumum ferða-
skrifstofunum finnst ferðirnar okkar vera flókn-
ar og starfsfólk þeirra þekkir illa til, þess
vegna eru upplýsingarnar svo mikilvægar.
Það þarf þvf oft lítið til að sölumenn reyni að
selja fólki ferðir til Noregs eða Svíþjóðar í
staðinn.
Við erum með mjög gott fólk hér og það
hefur tekið niðurskurðinum með jafnaðargeði,
hér ríkir góður starfsandi. Það varð auðvitað
ólund í mörgum þegar við byrjuðum að skera
niður um 1988 - á meðan önnur flugfélög
voru að bæta við sig - og mörg fyrirtæki á
öðrum sviðum líka. Skilningurinn á þessum
aðgerðum var takmarkaður í fyrstu. Nú krepp-
ir víða að hér um slóðir og í flugrekstrinum al-
mennt. Við höfum samt ekki þurft að segja
neinum upp störfum eins og mörg önnur flug-
félög. Hjá okkur hefur verið söluaukning hér í
Þýskalandi og þess vegna stöndum við vel að
vígi og fólk sættir sig við að þurfa að leggja
svolítið harðar að sér.“
LÆRÐU ÞÝSKUNA Á
FJÓRUM MÁNUÐUM
- Hvernig er fyrir fimm manna, íslenska fjöi-
skyldu að búa í Frankfurt?
„Við höfum alltaf stillt okkur inn á að þurfa
að vera hérna í fimm ár og ég reikna með að
við verðum hérna í að minnsta kosti eitt ár til
viðbótar, kannski lengur. Það er mjög gott að
búa í Frankfurt, lífsgæðin hér eru svo mikil.
Fólk hefur það ansi gott, Þjóðverjar almennt,
þó að hér sé svolítil stéttaskipting og einhverj-
ir hafi það miður en aðrir. Það er líka afstætt
hvernig maður metur lífsgæði. Hér er matur
ódýr miðað við það sem við eigum að venjast
heima á íslandi, verðlag á flestum öðrum
sviðum er líka yfirleitt mjög hagstætt. Hérna
vinnur fólk sjaldnast lengur en til klukkan fjög-
ur eða fimm. Ég hef það samt þannig að ég
þarf oft að vinna langt fram á kvöld virka daga
en reyni þá að vera heima með fjölskyldunni
um helgar. Ég þarf oft að fara heim til íslands
eða annað vegna vinnu minnar og er því oft
ekki á skrifstofunni dögum saman. Þá hlaðast
verkefnin upp á meðan ég er í burtu og þau
verð ég að taka með áhlaupi þegar ég kem til
baka, þá er alltaf tvöfalt meira að gera hjá
mér heldur en ella.“
- Hvernig hefur börnunum vegnað?
„Mjög vel. Tvö þau eldri eru í skóla. Þau
voru búin að ná þýskunni aðeins fjórum mán-
uðum eftir að þau komu hingað. Þau fóru því
snemma að skammast sín fyrir lélega frammi-
stöðu foreldra sinna, einkum þó föður síns.
Anna kunni þýsku ágætlega þegar hún kom,
með háskólapróf í greininni. Ég hafði bara þá
þýskukunnáttu sem ég bjó að frá því ég var í
Verzló. Ég notaði því enskuna mikið fyrst
enda var hún mér töm eftir að hafa verið
vestra í skóla í fjögur ár áður en við komum
hingað.
Okkur hefur þótt gott að vera með börn
hérna en þess ber að geta að Anna er heima-
vinnandi og er alltaf til staðar þegar krakkarnir
14.TBL. 1993 VIKAN 67
TEXTIOG UÓSM.: HJALTIJÓN SVEINSSON