Vikan - 15.07.1993, Page 23
inu. Ef viö gefumst upp og lát-
um ganga yfir okkur gefum
við þau skilaboö til annarra og
okkar sjálfra aö viö séum ein-
staklingar sem auðvelt sé aö
ganga yfir. Með því vinnum
viö einnig aö áframhaldandi
vanlíöan okkar sjálfra. Ef við
stöövum yfirganginn gefum
viö þveröfug skilaboö og opn-
um möguleika á vellíöan í
framhaldinu.
Á þessu sést að þaö eru
viöbrögö okkar viö hegðun
annarra sem ráöa framhald-
inu fyrir okkur sjálf en ekki
sjálf hegðun hinna. Það er því
flótti frá því að horfast í augu
viö sjálfan sig aö kenna öðr-
um um sína eigin hegðun eða
viðbrögö.
í langvarandi samskiptum
fólks skapast því ákveöiö
mynstur út frá hegöun og viö-
brögöum. Þetta mynstur verð-
ur smám saman þekkt en
mismeðvitað af báöum aöilum
og mynstrið kemur ýmist báð-
um til góöa, hvorugum til
góða eöa kemur öörum aöil-
anum betur en hinum. Til
þess aö breyta slíku mynstri
er nauðsynlegt aö gera sér
grein fyrir því og takast meö-
vitað á við aö breyta því.
YFIRGANGUR
- UNDIRGEFNI
Samskiptamynstur ykkar ann-
ars vegar og sonar þíns hins
vegar einkennist af yfirgangi
hans og undirgefni ykkar.
Slíkt mynstur myndast ekki á
skömmum tíma heldur hefur
tekið langan tíma aö þróast.
Af einhverjum ástæöum hefur
þaö þróast í þessa átt á sín-
um tíma og það hefur ekki
breyst þrátt fyrir fjarveru hans
af heimilinu um lengri tíma
enda ekkert veriö gert til aö
brjóta það. Hvernig og hvers
vegna þaö þróast er erfitt fyrir
mig aö segja til um þar sem
þú skrifar ekkert um þaö en
ég get giskaö.
Ekki er óalgengt viö slíkar
aðstæður sem þú lýsir hjá
ykkur að fyrstu erfiðleikarnir
myndist á milli hjóna. Þú átt
barn og kemur meö þaö inn í
sambúö og slíkt veldur oft
sektarkennd hjá móðurinni og
undirgefni gagnvart makan-
um. Hann getur einnig fundið
til sektarkenndar eöa einhvers
annars sem gerir hann var-
káran eöa afskiptinn gagnvart
barninu og ef ekkert er talaö
um slíkar kenndir getur það
leitt til erfiðleika á milli hjón-
anna viö aö taka á samskipt-
um viö barnið. Barniö finnur
fyrir þessu og heldur aö þaö
sé því aö kenna og getur þá
brugðist við á tvennan hátt -
meö undirgefni eða þveröfugt,
til að leiða aö sér athygli þar
sem neikvæð athygli er betri
en engin. Þetta er auövitað
aðeins tillaga til skýringar í
mjög stuttu máli og einfölduð.
Ekki ber aö taka hana sem
heilagan sannleik en hún sýn-
ir aö hægt er aö skýra hlutina
ef viö skoðum þá í víöu sam-
hengi.
Framhaldið getur svo aug-
Ijóslega þróast í yfirgang og
undirgefni. Einhver verður aö
brjóta ferlið. Oftast ætlast
maður til þess að þaö veröi
foreldrarnir vegna þess að
þeir eru hinir fullorönu og
þroskaöri. Hins vegar er allal-
gengt aö fulloröið fólk brjóti
þennan vítahring gagnvart
foreldrum sínum, finni þaö til
þess þörf og fái til þess aö-
stoö.
AÐ BRJÓTA
VÍTAHRINGINN
Auövitaö er erfiöara að brjóta
vítahringinn þegar svo langt
er gengiö sem þú lýsir heldur
en aö fást við það tiltölulega
snemma. Þaö sem þarf aö
gerast er aö þið hættiö aö láta
drenginn ganga yfir ykkur og í
staö andúðar aö sýna honum
vináttu en ákveöni. Þið þurfið
að geta sýnt honum að ykkur
þyki vænt um hann og viljið
honum vel en séuö ekki tilbú-
in til þess aö fórna ykkur sjálf-
um fyrir þaö. Það getur þýtt
mikil átök og þýöir þaö næst-
um örugglega en mun eftir aö
þau ganga yfir skila því að
friður kemst á á heimilinu.
Hugsanlega þurfið þiö að leita
aðstoðar lögreglu til þess að
sýna aö ykkur sé alvara. Af
þessu sjáiö þið aö ákveðnin
skiptir meira máli en það
„hvaö aðrir skyldu hugsa".
Slíkt leiöir einmitt til þess aö
aörir uppgötva leið til að kúga
ykkur. Sonurinn gefur bara í
skyn að hann muni valda
skandal og hann hefur ykkur
þar meö í vasanum.
Til að byrja með þurfið þiö
hjónin aö koma ykkur saman
um hegöun gagnvart strákn-
um og standa hlið við hlið aö
þessu. Þið þurfið að veröa á-
kveðin í staö þess aö vera óá-
kveðin og jafnframt aö sýna
að væntumþykja sé inni í
myndinni.
Ég vona aö ykkur gangi vel.
Ef ekki þá skuluð þiö leita
ykkur aðstoðar.
Kær kveöja,
Sigtryggur.
I
1 VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
Er ekki kominn tími til að flísaleggja ?
tsr Útipallinn
«■ Tröppumar
» Baðherbergið
Flísa og marmaralagnir
Glerhleösla
HflRGREIÐSLUSTOFfl HÖLLU MflGHÚSDÓTTUR
MIÐLEITI7 • SÍMIG85562
AUGLYSINGA-
OGIÐNAÐARLJÓSMYNDUN
HÁRSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 (p 62 61 62
RAKARA- á HÁRqRE/ÐSMSTVFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK
14. TBL. 1993 VIKAN 23