Vikan - 15.07.1993, Page 27
efni myndarinnar - sem er
mjög gott sem slíkt en hitt má
heldur ekki gleymast.
Áhorfendur hafa greinilega
skipst í tvo hópa, þann sem er
sáttur viö myndina og hinn
sem eru ósáttur. Ég er mjög
stoltur af aö hafa tekið þátt í
aö skapa mynd sem virðist
vera svona umdeild, ég er
alltaf ánægöur að vera í slíkri
stöðu. Ég er einnig ánægður
með kvikmyndafyrirtækin sem
stóðu við bakið á okkur og
einnig þá pólitísku þjóðfélags-
hópa sem risu upp og sögðu
álit sitt á stöðu mála í þjóðfé-
laginu - sem féll saman við
það sem við erum að segja í
myndinni.
Ég held að ástæðan fyrir
því hversu umdeild þessi
mynd er i Bandaríkjunum sé
sú að það eru ekki margar
kvikmyndir sem taka á þeim
vandamálum sem við okkur
blasa nú.
Mjög mikið af fólki hefur
séð myndina nú þegar og þaö
er sama sagan og með aðrar
myndir sem ég hef gert - það
eru alltaf mismunandi við-
brögð, hversu frábærar sem
myndirnar almennt hafa þótt.
Mér finnst núna aö ég sé
einhvers konar prins myrkurs-
ins. Að sjálfsögðu hafa við-
fangsefni mynda minna verið
mismunandi eins og í Fatal
Attraction, Wallstreet, Black
Rain, War of the Roses, Basic
Instinct og nú sfðast Falling
Down en mér finnst þetta allt
vera of neikvæð hlutverk. Þaö
er að vísu nokkuð um grin í
Falling Down en mér finnst
tími til kominn að íhuga að
vera í léttari hlutverkum í
framtíðinni, jafnvel léttri, róm-
antískri gamanmynd eða þá í
hreinu hetjuhlutverki. Því mið-
ur er bara ekki um auðugan
garð að gresja í sambandi við
hetjuhlutverk nú á dögum,"
segir Michael Douglas að lok-
um.
Að þessu sinni hefðu sam-
ræður okkar geta orðið lengri
en þar sem hann hafði ekki
kynnt Falling Down í Banda-
ríkjunum var mikið af þarlend-
um blaðamönnum sem vildu
ná tali af honum og vonandi
eigum við rólegra og lengra
spjall síðar.
Michael Douglas sagði að
sér þætti mun skemmtilegra
að tala við blaðamenn frá Evr-
ópu en Bandaríkjunum þar
sem bæði framkoma þeirra og
áhugi væri töluvert mismun-
andi. Hann sagðist vonast til
að við hittumst fljótlega þegar
hann hefði lokið við næstu
mynd sína. □
Michael
Douglas
eftir viö-
taliö viö
blaöa-
mann
Vikunnar.
og gerist í myndinni. Fyrst
væru voþnin hafnaboltakylfur,
síðan kæmi hnífurinn, þá heill
sekkur af byssum og að lok-
um endaði allt saman með
eldflaugabyssu.
Mér fannst þetta mjög
skynsamleg athugasemd því
svona er glæpaferlið í stór-
borgunum orðið, því miður.
Þessi mynd segir samt alls
ekki að allir þeir sem missa
vinnuna og skilja verði brjál-
aðir. Það er samt til fólk sem
bregst svona við ákveðnum
aðstæðum. Ekki er langt síð-
an einhver náungi tók börn í
gíslingu á barnaheimili og f
Ijós kom að hann var alls ekki
ósviþuð manngerö og ég leik í
myndinni.
Það er kannski ekki nema
von að svona hlutir komi upp
á þar sem byssueign er jafn-
mikil og raun ber vitni en það
eru um tvö hundruð milljónir
byssa skráðar í Bandaríkjun-
um og um sextíu og átta millj-
ónir bara í Texas, sem þýðir
um það bil fjórar byssur á
hvern íbúa.
Það er því engin tilviljun að
skjalataska verður að hafna-
boltakylfu, hún aö hnífi og svo
framvegis og einnig að það er
barn sem kennir mér að nota
eins fullkomin vopn og flug-
skeytabyssu."
EINHVERS KONAR
PRINS MYRKURSINS
- Nú hefur þessi mynd ákveö-
inn boðskap. Hvaö finnst þér
um aö aðalpersónan skuli láta
lifiö í lokin?
„Mér finnst þessi endir við-
eigandi, sérstaklega vegna
þess að þessi maður er ekki í
réttum tengslum við raunveru-
leikann og þess vegna á hann
kannski skilið að deyja. Það
er í raun hans eigið val því
honum er gefinn kostur á að
lifa.“
- Hvernig dóma hefur
myndin fengiö þar sem hún
hefur veriö sýnd?
„í aðeins einni borg f
Bandaríkjunum hefur hún ekki
fengið góða dóma en það var
í Los Angeles. Öll sú mikla
sjálfsvörn og gagnrýni á
myndina sem þar kom fram
kom mér virkilega á óvart.
Fólk í L.A. virðist hreinlega af-
neita þeirri staðreynd að þjóð-
félagiö sé komið í þessa að-
stöðu. Það var augljóst, sér-
staklega hjá fjölmiðlum þar,
að við hittum á mjög við-
kvæma taug. Aöaláhyggjuefni
þeirra snérist ekki um kvik-
myndagerðina sem listgrein
og um leið sem afþreyingu
heldur sökktu þeir sér niður í
14. TBL. 1993 VIKAN 27