Vikan - 15.07.1993, Page 44
JÓNA RÚNA SKRIFAR UM SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
ÓSJÁLFRÁÐ
DULRÆN SKRIFT
YFIRSKILVITLEG REYNSLA
Við veltum flest fyrir
okkur einu og öðru
sem tengist því leynd-
ardómsfulla í lífi okkar og til-
veru. Flestir hafa upplifað ein-
hverja dulræna reynslu í
gegnum árin og virðist þá ekki
skipta neinu máli hvort við-
komandi hefur áhuga eða trú
á því leyndardómsfulla. Mér
hafa á liðnum árum borist ótal
bréf sem fjalla um yfirskilvit-
lega reynslu fólks. Viö fjöllum
að þessu sinni um bréf sem
ung stúlka skrifar og kýs að
kalla sig Lilju. Hún óskar með-
al annars leiðsagnar í sam-
bandi við ósjálfráða skrift.
SKILABOD FRÁ
LÁTNUM OG MISGÓÐ
REYNSLA
„Fyrir um þaö bil einu ári
fór ég aö veröa vör viö þaö
þegar ég var að skrifa
heimaverkefnin mín aö
penninn fór eins og aö
hreyfast sjálfur, þar sem
hann lá á milli fingra mér. Á
blaðið hjá mér komu alls
kyns orö og heilar setning-
ar, einhvers konar skilaboð
sem ég tel vera frá látnum
persónum sem vilja hafa
einhver áhrif á mig,“ segir
Lilja, sautján ára mennta-
skólastúlka sem hefur í gegn-
um tíðina orðið fyrir marg-
þætfri reynslu sem henni þykir
minna um margt á dulræn fyr-
irbæri og samband við látna.
Hún er mjög áhugasöm um
málefni sem falla undir það
dulda og hefur þegar prófað
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
44 VIKAN 14. TBL. 1993
eitt og annaö því skylt.
„Ég hef fariö á fund nokk-
urra miðla og eins hef ég
verið mjög áhugasöm um
alit þaö sem tengist nýald-
arsjónarmiöum," segir Lilja.
„Ég hef mjög jákvæöa
reynslu af allri minni leit og
finnst þetta bauk mitt á
flestan hátt hafa oröiö mér
til góös í daglegu lífi. Það
sem mér þykir skrýtið og
leiðinlegt lika er aö þessi
nýja reynsla er stundum
andstyggileg, þó erfitt sé að
viöurkenna þaö.“
SÉRKENNILEGUR
KRAFTUR OG HUGUR-
INN HELTEKINN
Lilja lýsir í bréfi sínu nokkrum
af þeim skilaboöum sem hafa
komið og lætur þess jafnframt
getið aö ef hún ætli sér ekki
tíma til þessara skrifa sé engu
líkara en það dragi úr henni
allan mátt og hún verði tíma-
bundið eins og óvirk. Hún
finnur sig á köflum eins og
rekna áfram. Ef hún sest í
þessu ástandi niður með
penna kemur eins og sér-
kennilegur kraftur í hana og
verður þess valdandi að
penninn hreyfist og blaðið
fyllist af ótrúlegum upplýsing-
um um furðulegustu hluti. A-
fram heldur hún og segir:
„Þaö sem mig langar að
spyrja þig um, kæra Jóna
Rúna, er hvort þetta fikt mitt
sé eitthvað hættulegt og
hvort þaö geti þá haft ein-
hver neikvæö áhrif á líf mitt
ef ég held þessu áfram. Ég
er þónokkuö heltekin af
þessari upplifun," segir Lilja
dálítið áhyggjufull.
FORMÆLINGAR
OG GÖFUGMÆLI
Hún ræðir mikið í bréfinu hitt
og þetta sem viðkemur þess-
um ósjálfráðu skrifum og
sendir mér jafnframt Ijósrit af
tveim mjög ólíkum frásögnum
sem hún segir vera frá látn-
um. Önnur er vægast sagt
neikvæð og óhugnanleg því
þar má segja að verið sé að
klæmast gróflega og formæla
hinum og þessum persónum
sem ennþá eru lifandi. Hin
frásögnin er öðruvísi, bæði
Ijúf og jákvæð sem betur fer.
Lilja sendir mér þessi Ijósrit
þar sem henni er hugleikið að
fá fram hvort ég geti greint
hvort um sömu látnu persón-
una er að ræða eða tvær ólík-
ar. Hún heldur áfram: „Ég er
frekar einræn og bæld týpa
og þaö er mikið um óreglu á
móöur minni hér heima.
Systkini mín tvö eru yngri
og eldri en ég og ég hef lít-
inn félagsskap af þeim.
Pabbi rekur fyrirtæki og er
mjög lítiö heima. Hann talar
sjaldan viö mig nema þá til
að þrasa viö mig um fárán-
lega hluti og sín sjónar-
miö.“
LÍFSLEIÐI OG VANGA-
VELTUR UM DAUÐANN
Það er greinilegt að Lilja lifir
mikið í eigin hugarheimi og á
ekki mikil né sérlega jákvæð
samskipti við sína. Það kemur
fram aö henni gengur sæmi-
lega í skólanum og á þokka-
lega stóran vinahóp. Lífsleiöi
er eitt af því sem þjáir hana
og hún hugsar ótæpilega um
dauðann. Hún telur sig trúaða
og frekar næma.
„Viltu, elsku Jóna Rúna,
vera svo góö aö leiöbeina
mér. Ég hef lesiö mikiö af
því sem þú skrifar og vil
nota tækifæriö til aö segja
þér að þú ert mjög sérstök
og ég er ekki ein um aö
hafa þá skoðun á þér, heyr-
ist mér til dæmis í skólan-
um. Takk fyrir allt og von-
andi svarar þú mér sem
allra fyrst,“ segir Lilja. Ég er
þakklát henni fyrir að hvetja
mig til frekari skrifa um sam-
mannlega reynslu á minn
máta.
ÓKUNN ÖFL OG
HJÁLPRÆÐI AÐ UTAN
Það fer ekkert á milli mála að
á liðnum árum hefur það
hjálpræöi sem kemur að utan
óneitanlega freistað fólks og
kannski er það ekki tilviljun.
Þar hefur kirkjan og þaö and-
lega fræðsluafl sem hún á að
vera ekki vegið þyngst á vog-
arskálunum, því miður, miklu
fremur hvers kyns dulhyggja
þar sem það leyndardóms-
fulla er býsna forvitnilegt að
mati hins venjulega manns.
Þaö er hægt að tala í óeigin-
legum skilningi um andlega
uppsveiflu í þessum sérstöku
efnum. Rétt er þó að minnast
þess að við verðum að gæta
hófs í leit okkar að hjálpræði
að utan, sjálfum okkur til leið-
sagnar og léttis af mismikil-
vægum tilefnum.
NÁÐARGÁFUR OG
KRISTIN SIDFRÆÐI
Vissulega erum við ákafari en
ella í andlegri leit okkar ef illa
árar í kringum okkur og ef við
finnum okkur leiö og niður-
dregin. Lilja hefur verið sér-
lega áhugasöm hvað varðar
það dulfræöilega og þegar
kynnst ýmsu misjöfnu, góöu
sem slæmu. Einkalíf hennar
hefur ósjálfrátt orðið til þess
aö kveikja þennan mikla á-
huga af því að það er ófull-
komið og kærleiksvana.
Við veltum flest fyrir okkur
hvers konar fólk fæst við það
dulfræðilega. Til glöggvunar
vegna þessara vangaveltna
okkar má segja sem svo að
eðlilegur sálrænn einstakling-
ur sé sá aðili dulrænn sem
hefur fulla stjórn á aðstæðum
sínum og athöfnum og þaö
leyndardómsfulla truflar ekki
hugsun hans eða tilfinningar.
Mun frekar og miklu heldur
styrkir það hann og eflir sem
manneskju. Það er vissulega
langt frá því að viðkomandi sé
aflagaður eða sjúkur eins og
vantrúaðir vilja stundum
meina. Hann býr einfaldlega
yfir sjötta skilningarvitinu og
hefur fengið í vöggugjöf náð-
argáfur sem eru mjög sérstak-
ar og geta orðið heildinni á-
kaflega blessunarríkar ef