Vikan - 23.09.1993, Síða 18
ferðaskrifstofu í Banstead, suð-
ur af London, sem sérhæfir sig
í ferðum fyrir fólk eins og okk-
ur. Þannig flugum við fyrst til
fundar við miðnætursólina árið
1987."
Stuart bendir á hefðbundnar,
skemmtilegar tölfræðistað-
reyndir varðandi ísland en
verður líka tíðrætt um tungu-
málið sem íslendingar séu svo
stoltir af og nafnahefðina.
Seinna sannreyni ég að það er
satt sem hann segir um að
menn hafi mikinn áhuga á að
heyra af ferðum hans til ís-
lands og Grænlands. Nú hefur
líka einn ævintýrafyrirlesturinn
bæst við eftir að hann gerði sér
ferð á norðurpólinn í fyrra og
flaggaði Rotary-fána þar. „Það
var einum of ævintýralegt fyrir
mig,“ segir Evelyn brosandi en
hún ákvað að vera heima í það
skiptið. Stuart segir að menn
hafi jafnan lítið heyrt um þenn-
an heimshluta enda algengara
að horft sé suður þegar á-
kveða á sumarfríið. „Bretum
finnst veðráttan heima fyrir
þannig að þeir verði að bæta
sér hana uþþ með því að flat-
maga á sólarströndum." Þau
hjónin eru hins vegar sammála
um að norðrið heilli þau meira
og finnst lítt til sólarlandaferða
landa sinna koma enda hafði
Skotland ávallt verið eftirlætis
sumarleyfisstaður þeirra áður
en þau tóku upp á að halda
lengra norður á bóginn.
Fyrstu ferðina sína til íslands
fóru Evelyn og Stuart í endað-
an júlí 1987. Þá dvöldu þau þar
í tvær vikur og gerðu víðreist
um landið, heimsóttu Húsavík
og skoðuðu meðal annars Mý-
vatn, fóru síðan í rútu að Gull-
fossi og Geysi og flugu til Vest-
mannaeyja. „Það var ævintýri
líkast að kynnast þessari stór-
brotnu náttúru," segja þau
bæði en hlæja þegar þau rifja
upp móttökurnar þegar þau
komu á hótelið sitt, ferðaþreytt
eftir flugið frá Bretlandi.
„Þarna stóðum við í gjöró-
kunnugu umhverfi og af ein-
hverjum óskiljanlegum ástæð-
um fannst nafnið okkar ekki á
gestalistanum. Eftir langt þóf
var þó hægt að hola okkur nið-
ur. Linið á rúmunum okkar var
hins vegar hálfrakt þegar við
komum inn á herbergi en við
fundum þurrt inni í skáp og gát-
um skipt um á rúmunum." Þau
viðurkenna að það hafi runnið á
þau tvær grímur við þessa upp-
ákomu, sérstaklega þar sem
flugvélin þeirra þurfti líka óvænt
að hafa viðkomu í Lúxemborg
þannig að ferðin lengdist af
þeim sökum. Þetta segja þau
að hafi þó fljótlega gleymst
þegar ævintýrin tóku við.
Á LEIÐ TIL GRÆNLANDS
Næst þegar Evelyn og Stuart
komu til íslands voru þau á leið
til Grænlands. „Ferðaskrifstof-
an Arctic Experience sérhæfir
sig líka í Grænlands- og norð-
urheimskautsferðum. Við flug-
um því til íslands 20. mars
1989 og urðum reyndar veður-
teppt þar í tvo daga en héldum
síðan til Grænlands. Þar dvöld-
um við í þrjá daga og millilent-
um aftur á íslandi á leiðinni
heim.“
í flugvélinni á leiðinni til
Grænlands segir Stuart að
hann hafi hitt mann frá ferða-
skrifstofunni þeirra og þar barst
í tal að hann fengi frásögn frá
honum inn á myndband sem
verið væri að gera. Stuart hefur
því komið víðar við en á Rot-
ary-fundum til að segja löndum
sínum frá íslandi. Það má Ifka
greinilega sjá að áhugamálið
hans, Ijósmyndun, hefur notið
sín í íslandsferðunum. „Ég
sendi þessar á sýningu áhuga-
Ijósmyndara, sem jafnframt var
samkeppni," segir hann og
dregur fram tilkomumiklar
myndir af Geysisgosum. „Ég
vann hins vegar ekki,“ heldur
hann áfram og hristir brosandi
höfuðið yfir dómaranum, eins
og honum hljóti að hafa skjátl-
ast í það skiptið.
A Stuart á norðurpólnum í apríl í fyrra.
► Evelyn ræöir við Emblu um væntanlega íslandsferö hennar
yfir kubbakassanum á leikskólanum.
irlestur er víst betra að ég at-
hugi hvort ég er nokkuð að
bulla svo þú farir ekki að leið-
rétta mig fyrir framan félaga
mína," segir Stuart og hlær.
Stuart fékk leyfi félaga sinna í
karlaklúbbnum til að bjóða mér
með sem sérstökum gesti á
einn fyrirlestra sinna enda
þjóðráð að sýna þeim eintak af
íslendingi um leið og fjallað
væri um land og þjóð. Viö
skiptumst dágóða stund á upp-
lýsingum og höfðum gaman af
en Stuart er vel lesinn um ís-
land og álitamál hvort okkar
hafði betur í þessum viðskipt-
um.
ÞÆGILEGT OG KALT
í fyrirlestrum sínum byrjar hann
jafnan á að útskýra hvernig
það kom til að þau fóru til ís-
lands fyrst. „Við vildum fara
þangað sem væri þægilegt að
vera og kalt og fundum litla
18VIKAN 19.TBL. 1993