Vikan - 23.09.1993, Page 19
í þessari annarri íslandsferð
sinni segjast þau hafa farið á
skemmtun á Naustinu þar sem
þau prófuðu þorramat. Þau
segjast reyndar ekki hafa heill-
ast af mörgu þar en fannst eft-
irrétturinn þó góður, íslenskt
skyr.
HVAR ER NÆTURLÍFID?
Evelyn segir að þau hafi í
bæði skiptin sem þau komu
hingað undrast á því hve næt-
urlífið væri dauft í Reykjavík.
„Við fundum ekkert næturlíf
fyrr en við buðum dætrum
okkar tveimur með, ásamt
eiginmanni annarrar og vin-
konu þeirra. Það var helgar-
ferö sem við fengum á sér-
kjörum í byrjun mars árið
1990 og fannst upplagt að
taka krakkana með til að þeir
fengju að sjá eitthvað af
þessu landi sem við vorum
alltaf að tala um. Af því tilefni
ákváðum við að fara á
skemmtun á Hótel íslandi þar
sem var fremur fámennt fram-
an af en eftir miðnætti troð-
fylltist. Þá litum við hvort á
annað og það rann upp fyrir
okkur að næturlífið á Islandi
væri með öðru sniði en í Bret-
landi og byrjaði einfaldlega
eftir að við vorum farin að
sofa,“ segir Evelyn hlær.
Stuart bætir við að það hafi
verið reynsla út af fyrir sig að
kynnast fullum íslendingum.
„Einn settist ansi rogginn hjá
mér og vildi kaupa af mér þá
dóttur mína sem var ógift."
Það sést á svip Bretans að
þetta hafi honum þótt undar-
T Fjölskyld-
an í helgar-
ferö á
þægilegum
og köldum
staö. Á ís-
landi í
mars 1991.
Dawn
Menzies,
Jackie Lee,
Helen
Clark,
Christo-
pher Clark
og Evelyn.
lega framkoma í siðuðu sam-
félagi en hann bætir við að
þeir hafi þó ekkert verið til
vandræða, þessir fullu íslend-
ingar, þótt þeir hefðu óneitan-
lega dálítið sérkennilegar
hugmyndir um mannleg sam-
skipti.
ALLIR ÚT AÐ ÝTA
Það er fleira ævintýralegt en
fólkið á íslandi og það fékk
fjölskyldan að reyna á leið
sinni yfir Hellisheiði frá
Hveragerði. Færið var heldur
slæmt og rútan skrikaði til
þannig að hún lenti út af veg-
inum. Það var því ekki um
annað að ræða en að allir
færu út að ýta. „Það var auð-
vitað út af fyrir sig ævintýri að
sjá banana og suðrænar
plöntur í gróðurhúsunum í
Hveragerði á sama tíma og
allt var á kafi í snjó utandyra
en það var punkturinn yfir i-ið
í vel heppnaðri ferð að lenda
í þessu líka.“ Þau eru sam-
mála um að það hafi bara
kryddað ferðina að lenda í
hrakförunum enda geri það
komurnar hingað spennandi
að vita aldrei á hverju eiga
má von.
HÁLENDIÐ EFTIR
Þegar ísland er markaðssett
sem ferðamannaland er oft
talað um að útlendingum sé
boðið að kaupa það í einum
pakka, þeyst sé með þá um
landið þvert og endilangt á
mettíma eins og öllum sem
komi hingað hafi verið seld
fyrsta og eina ferðin þeirra
til að berja augum fáséða,
villta og óspillta náttúru.
Evelyn og Stuart segjast
hins vegar eiga margt eftir
óskoðað þrátt fyrir ferðirnar
þrjár en eru sammála um að
það sé kostnaðurinn sem
standi í vegi fyrir aö þau fari
eins oft og þau langar. „Mig
dreymir hins vegar um að
komast í hálendisferð," seg-
ir Evelyn og er staðráðin í
Þaö er spennandi viö Islandsferöirnar aö vita aldrei á hverju maöur á von, segja Menzies-hjónin. Þarna er
öll fjölskyldan komin út aö ýta þegar farkosturinn lenti út af veginum á leiöinni yfir Hellisheiöi.
að láta verða af því við
tækifæri.
UPPÁHALDSVEITINGA-
STAÐURINN Á ÍSLANDI
Stuart veit líka sem er að ef
hann vill virkilega gleðja eigin-
konuna með því að bjóða
henni út að borða þá verður
hann að panta far til íslands í
leiðinni. Evelyn hefur óbrigðul-
an smekk fyrir góðan mat enda
listakokkur sjálf og hún segir
að Lækjarbrekka sé besti og
fallegasti veitingastaður sem
hún hafi nokkru sinni komið á.
„Það er alltaf ofarlega á óska-
listanum, þegar við erum að á-
kveða veitingastað, að komast
á Lækjarbrekku,“ segir hún
brosandi og á greinilega góðar
minningar þaðan.
Hver veit nema Stuart og
Evelyn geti látið drauma sína
um að komast oftar á Lækjar-
brekku og þar með til íslands
rætast þegar það verður orðið
örlítið ódýrara að skreppa yfir
hafið. □
19.TBL. 1993 VIKAN 19