Vikan - 23.09.1993, Síða 46
Að þessu sinni gluggum
við [ bréf frá ungum
manni sem telur sig
búa yfir mjög óvenjulegri
skyggnigáfu sem hann kann
ekki almennilega að fara með.
„Eftir aö hafa fylgst meö því
sem þú skrifar í langan tíma
ákvaö ég aö bera vissa hluti
undir þig í von um aö fá
ábendingar vegna skyggni-
hæfileika sem ég tel aö ég
búi yfir og eru mjög fyrir-
feröarmiklir. Stundum greini
ég ekki lifendur frá látnum
og sé því þaö sem gerist í
báöum heimunum á sama
tíma,“ segir Gummi sem er
undir tvítugu og býr í smá-
kaupstaö út á landi.
Petta er þaö óþægilegt aö
mér finnst eins og ekki sé
pláss fyrir mig, þó enginn
sjái þaö sem ég sé nema
ég,“ segir Gummi og lætur f
það skína að hann eigi virki-
lega í erfiðleikum vegna þess-
arar tveggja heima sýnar
sinnar. Hún gerir hann greini-
lega öðruvísi.
VEIKLAÐUR
OG RUGLAÐUR
„Pabbi og mamma eru
vinstrisinnuö og þaö má
ekki ræöa dularfull fyrirbæri
heima. Mamma er öllu verri
og hefur stungiö upp á því
aö fara meö mig til geö-
læknis vegna þessara þátta
margþætt fyrirbæri út af fyrir
sig. Sumir sjá það sem er að
gerast í órafjarlægð og þá
viröist eins og tími og rúm hafi
lítið aö segja. Þessi tegund er
venjulegast kölluð fjarskyggni
vegna þess að sjáandinn sér
atburði eða atburðarás sem
er að gerast á kannski sama
augnabliki í mikilli fjarlægð, á
nákvæmlega sama máta og
sá sem er að upplifa reynsl-
una fer í gegnum hana,
staddur allt annars staðar.
Þessi reynsla þess skyggna
gerist náttúrlega fullkomlega
fyrir utan venjulega reynslu og
viðkomandi er að upplifa dul-
ræna atburðarás. Skipta fjar-
lægöir þá engu máli.
JONA RUNA MIÐILL SKRIFAR
UM SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
MOGNUÐ
SKYGGNIGAFA
TVEGGJA HEIMA SÝN
AÐHLÁTURSEFNI
ANNARRA
Gummi lýsir síðan af mikilli
hæversku mjög sérkennilegri
skyggnigáfu. „Paö er eitt-
hvaö svo einkennilegt, Jóna
Rúna, aö ég sé látiö fólk í
þaö miklum mæli aö ég
ruglast iöulega á hvort viö-
komandi er látinn eöa hrein-
lega lifandi og hef vegna
þessara eiginleika oröiö aö-
hlátursefni annarra." Hann
segir þetta gerast við ólíkleg-
ustu aðstæður og enginn hon-
um náinn sér svona nema
hann.
PLÁSSLEYSI
OG ERFIÐLEIKAR
„Mér þykir þónokkuö gam-
an aö skemmta mér en
stundum verö ég aö hverfa
úr partíum vegna þess aö
ég sé svo marga látna.
Vinsamlegast hand-
skrifið bréf til Jónu
Rúnu og látið fylgja
fullt nafn og kennitölu,
ásamt dulnefni.
Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
/' mér. Pabbi er umburöar-
lyndari en telur þó aö ég sé
frekar veikluö persóna sem
þurfi aö heröa upp og gera
afhuga svona rugli eins og
hann kallar þetta," segir
hann og þykir augljóslega
mjög miður aö hans nánustu
skuli vera svona innilega
áhugalitlir og skilningsvana
vegna þessara þátta í honum.
ÞROSKALEIÐIR
OG HUGSANLEGAR
BREYTINGAR
Hann er aö öðru leyti ánægð-
ur meö lífið og tilveruna. Hann
langar að láta eitthvað gott af
sér leiða og jafnvel aö þroska
dulargáfur sínar. Hann vill vita
hvort ég telji að hægt sé að
breyta afstöðu foreldra hans.
„Ég vildi gjarnan fá sem
mestar upplýsingar, sér-
staklega varöandi skyggni-
gáfuna hjá þér, elsku Jóna
Rúna, ef þú nennir. Gangi
þér vel og haföu þaö sem
best. Ég sendi þér góöar
kveöjur héöan úr plássinu
mínu.“ Ég þakka Gumma
bréfið og einlægan áhuga og
svara á fyrri máta.
FJARSKYGGNI
OG FJARLÆGDIR
Skyggnigáfan er raunverulega
<
SKYGGNIFERÐIR
EÐA HEIMSÓKNIR
í sumum tilvikum þessarar
reynslu er engu líkara en sjá-
andi fari sálförum og í stað
þess að horfa á atburðarásina
úr órafjarlægð virðist viðkom-
andi vera eins og staddur á
tveim stöðum í einu. Hugurinn
er þar sem atburðarásin er en
viðkomandi kannski staddur
sjálfur inni í stofu heima hjá
sér, sjáanlegur öðrum nálæg-
um. Þetta mætti líka kalla ein-
hvers konar skyggniferðir eða
heimsóknir sem virðast gerast
fyrir utan venjuleg skilningar-
vit en stjórnast af því sjötta.
HUGSKOTSSÝN
EÐA ENDURMINNING
Skyggni er því fyrirbæri sem
ekki tengist augum okkar
heldur lýsir hún sér mun frek-
ar þannig að hún er innri sjón
og tengist huganum sem er
alls ekki alltaf háður venjuleg-
um skilningarvitum. Hugurinn
virðist meira að segja hæg-
lega geta starfað nánast fyrir
utan þau ef þannig vill til.
Þannig sjá þeir sem eru
skyggnir eiginlega með hug-
skotssjónum sínum eins og til
dæmis gerist þegar við erum
aö minnast einhvers. Þá eins
og rennur mynd af viðkom-
andi f gegnum hugskot okkar
þannig að okkur þykir sem
viðkomandi standi Ijóslifandi
fyrir framan okkur. Þetta er
auðvitað ekki ímyndun heldur
reynsla sem tengist endur-
minningunni og er huglægt
fyribæri sem við sættum okk-
ur fyllilega við.
ÓÁÞREIFANLEGUR
OG LÍTT RANN-
SAKAÐUR VERULEIKI
Það má því segja sem svo að
hvers kyns skyggnigáfa teng-
ist einhverri þeirri starfsemi
hugans sem lítt hefur verið
rannsökuð og jafnframt veru-
leika sem er nánast óáþreif-
anlegur. Endurminningin
tengist vitanlega veruleika
sem er áþreifanlegur að ein-
hverju leyti vegna þess að við
getum minnst hluta og at-
burða eins og við hefðum þá
fyrir augunum augnablikið
sem við getum þeirra og aðrir
jafnvel staðfest þá ef þeir eiga
sér sömu endurminninga-
reynslu.
SKYGGNI
EÐA GEÐVEIKI?
Reynsla skyggninnar er allt
öðruvísi og duldari vegna
þess að hún hefur engan
áþreifanlegan grundvöll að
byggja á. Vegna þess er
kannski ekkert undarlegt þó
þeir sem eru fráhverfir dul-
rænum fyrirbærum eigi það til
að álíta - eins og foreldrar
Gumma til dæmis - að um sé
að ræða ímyndun eða hrein-
lega einhvers konar geðveiki
hjá sjáandanum, vegna þess
hvernig þessir hæfileikar hans
birtast þeim.
FORTÍÐAR- OG
FRAMTÍÐARSKYGGNI
Sumir hafa skyggni á fortíð og
framtíð okkar og virðast eins
og sjá fyrir hugskotssjónum
sínum það liöna og svo aftur
ókomna atburði í framtíð okk-
ar. Þetta afbrigði skyggnigáf-
unnar er nokkuð heillandi og
freistar til dæmis landans
mjög. Hinn venjulegi maður
hreinlega hrífst upp úr skón-
um og hefur þónokkurt álit á
einmitt þessu afbrigði skyggn-
innar og notar sér þessa leið
til fortíðar- og framtíðarskoð-
unar óspart, séu þessir hæfi-
leikar augljóslega til staðar í
miðli sem hrífur viökomandi.
Rétt er þó að taka fram að
ekki eru allir miðlar skyggnir á
framtíð og fortíð fólks, auk
þess sem til eru aðrar og ögn
jarðbundnari leiðir til skyldrar
skoðunar sem ýmsir hafa haft
gagn og gaman af í gegnum
46 VIKAN 19. TBL. 1993