Vikan - 23.09.1993, Síða 51
PERSÓNULEIKAPRÓF
NIÐURSTODUR
65 stig eða meira:
Þú ert örlætið sjálft, gjafmildin
holdi klædd, alltaf boöin og
búin aö rétta hjálparhönd.
Kannski einum of boðin og
búin. Býrðu kannski til vanda-
mál fyrir vini þína svo aö þú
getir leyst úr þeim? Fagnarðu
því innst inni þegar einhver á
bágt því aö þá færðu tækifæri
til aö sýna fram á Florence
Nightingale-hæfileika þína?
Viö spyrjum: hvaöa ástæður
liggja að baki þessarar óheyri-
legu fórnfýsi?
Það er líklegt aö þú hafir til-
hneigingu til aö ætlast skilyrö-
islaust til þess aö aörir endur-
gjaldi alla greiöa þína. Þú
gleymir því líklega að sá óeig-
ingirni gerir ekki alltaf upp all-
ar skuldir. Þér finnst kannski
aö enginn muni gera neitt fyrir
þig nema þú ávinnir þér ást
og vináttu með takmarkalausri
fórnfýsi. En þaö eru ekki réttu
forsendurnar fyrir mannlegum
samskiþtum. Áttu erfitt með
að gera greinarmun á tilfinn-
ingalegri kúgun og sönnum
kærleika? Það gæti veriö
skynsamlegt að leita ráðgjaf-
ar.
40-65 stig:
Þú ert hreinasta nægtahorn ó-
eigingirninnar. Munurinn á þér
og manngerðinni sem lýst var
hér aö ofan er sá aö þú gefur
af frjálsum vilja, án þess aö
ætlast endilega til eöa jafnvel
detta í hug aö aðrir bregðist
viö á sama hátt. Þú gefur
vegna þess aö þig langar til
þess. Þetta leiðir til þess aö
þú getur af sama frjálsa viljan-
um tekið við hjálp og hlýhug
án þess aö finnast þú skuld-
bundin gefandanum. Þetta er
sjaldgæfur eiginleiki.
20-40 stig:
Valdajafnvægi er þitt lykilorð.
Þú kannt upp á hár listina aö
gefa og þiggja og ert leiknari
en flestir við að skipta verkum
milli þín og annarra. í ástar-
samböndum og vináttu finnst
þér allt velta á jafnvægi og
þér líður illa ef þér finnst þú
gefa meira en þú færö - eða
öfugt. Kannski er helsta hætt-
an sú aö þú gleymir þeirri ein-
földu gleði sem felst í því að
gefa eitthvað (hvort sem er
ást, gjafir, peningar eöa tími)
umhugsunar- og hiklaust,
bara til aö gefa. En þú ert aö
minnsta kosti á réttu róli!
18 stig eöa minna:
Þetta lítur ekki fallega út. Get-
ur veriö aö þér finnist, meövit-
aö eða ómeðvitað, aö það aö
gefa sé fyrir annaö fólk - aö
þú sért á einhvern hátt yfir
þaö hafin? Flugsanlega hafa
foreldrar þínir veitt þér of mik-
ið án þess aö ætlast til neins
á móti. Þú virðist aö minnsta
kosti einum of upptekin af
sjálfri þér og þínum eigin
hagsmunum. Þetta mun þeg-
ar fram líður hafa skaöleg á-
hrif á sambönd þín viö ást-
menn, ættingja og vini. Þaö er
ekki hægt aö setja sjálfa sig
alltaf efst á forgangslistann
þó aö þaö geti stundum verið
æskilegt. Fólk
sem þaö gerir
hrindir frá sér
tilfinningatengsl-
um án þess
kannski aö gera
sér grein fyrir
því. Þaö sorg-
legasta er að
það veit ekki af
hverju þaö er
aö missa! Öll
mannleg sam-
skipti veröa svo
miklu ánægju-
legri þegar viö
getum gleymt
sjálfum okkur
endrum og eins.
Viö fáum líka
svo ótal margt I
staðinn. □
LAUSN SlÐUSTU GÁTU
STJORNUSPA
HRÚTURINN
21. mars-20. apríl
Ágreiningur, sem hefur
valdiö þér miklum áhyggjum, fjarar
nú smám saman út eftir aö einhver
sem þú tekur mark á hefur talaö
um fyrir þér. Málamiölun er oft besti
kosturinn. Þér mun ekki gefast mik-
ill tími til aö sinna einkamálum þín-
um þessa vikuna en I þeirri næstu
skaltu gefa þér tíma.
NAUTID
21. apríl -21. maí
Þú hefur efast um getu
þína og skort sjálfstraust á
ákveönu sviöi. Þú munt brátt öðlast
kjark til að takast á viö lausn erfiös
verkefnis þegar til þín verður leitað
sérstaklega. Ef þér finnst persónu-
legu frelsi þínu ógnað skaltu ekki
hika við aö setja mörkin þar sem
þú vilt hafa þau.
TVÍBURARNIR
22. maí-21. júní
[ þessari og næstu viku
muntu safna kröftum til að takast á
viö málefni sem þú hefur dregið
lengi. Gagnrýni þín á verk annarra
hefur vakið óróa I kringum þig. Hef-
urðu hugleitt hvernig þú mundir
sjálfur standa að verki? Notaðu
næstu helgi til að breyta hraustlega
til.
KRABBINN
22. júní - 23. júlí
Það hefur ríkt töluverð
spenna I fjölskyldunni og gott væri
að leysa hana upp með sameigin-
legum málsverði og góðu spjaili
sem verður til þess að leiðinlegur
misskilningur leiðréttist af sjálfu
sér. Það kemur I Ijós að verkefni,
sem þú miklaðir fyrir þér, er marg-
falt auðveldara en þú hafðir reiknað
með.
UÓNIÐ
24. júlí - 23. ágúst
Láttu ekki leiðindaatvik úr
fortíðinni valda þér áhyggjum og
ræna þig svefni. Taktu þér frí I
næstu viku og notaðu tímann til að
hlaða rafhlöðurnar. Það á nefnilega
eftir að koma I Ijós að hagur þinn
vænkast eftir að keppinautur þinn í
starfi hefur gert leið mistök.
MEYJAN
2. ágúst - 23. september
Fórnarlund þinni er við
brugðið en þú mættir að ósekju
hugsa meira um eigin hag. Þér
verður gefið tækifæri til að láta Ijós
þitt skína á næstunni. Notaðu þaö
og láttu skoðanir þínar í Ijós af ein-
urö þótt ekki séu allir þér sammála.
Það kemur sér vel að vera sein-
þreyttur til vandræða.
VOGIN
24. sept.- 23. október
Á næstu dögum verður
sólin í vogarmerkinu og því er veru-
lega bjart fram undan hjá þér.
Heppnin fylgir þér I flestu sem þú
tekur þér fyrir hendur á næstu dög-
um - farðu samt ekki of geyst,
hvorki í innkaup og fjárfestingar né
ákvarðanir um framtiðina.
SPORÐDREKINN
24. okt - 22. nóvember
Vegur þinn í ákveðnum fé-
lagsskap mun aukast ef þú gætir
þess að ætla þér ekki um of. Þú
kynnist manneskju sem þú gjarnan
vilt hitta aftur til að treysta kynnin
án þess þó að þau þurfi að verða
bindandi. Láttu ekki óbilgirni og
stolt koma í veg fyrir að þú sláir af
kröfum I ákveðnu máli.
BOGMAÐURINN
23. nóv - 22. desember
Þér áskotnast sennilega ó-
vænt fjárupphæð sem þú varst
hættur að reikna með. Þú skalt
verja henni til þess að gera þér og
þínum glaðan dag og láttu amstrið
bíöa rétt á meðan. Meöfædd
greiðasemi þín mun koma sér vel á
næstu dögum.
STEINGEITIN
23. des - 20. janúar
Láttu endilega til þín taka á
vinnustað eða I einkalífinu ef þér
þykir eitthvað þarfnast úrbóta. Fjár-
hagur þinn hefur verið í daprara
lagi að undanförnu og þess vegna
kæmi svolítill sparnaður sér vel.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Þú ert í góðu jafnvægi um
þessar mundir og það gerir þér
kleift að taka skynsamlegar ákvarð-
anir bæði heima og á vinnustað.
Félagi þinn leitar væntanlega til þín
meö vandamál sem hann þarf að
leysa. Taktu honum vel, hann á eft-
ir að launa þér það þótt síðar verði.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Þú ert orðinn of seinn að
fjárfesta I ákveðnum hlut. Varkárni
er góð en í þessu tilviki varð hún til
þess að þú misstir af gullnu tæki-
færi. Einkalíf þitt er I góöum farvegi
þessa dagana. Njóttu þess og
reyndu að stuðla að því að sama
ástand riki í framtíðinni.
19.TBL. 1993 VIKAN 51