Vikan


Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 61

Vikan - 23.09.1993, Blaðsíða 61
Fæstir gera sér grein fyrir því hvað gerist í raun í líkamanum þegar heilsurækt og líkamsþjálfun er stunduð, nema þá að litlu leyti. Frá sjónarhóli læknavís- indanna má segja að líkams- þjálfun skiptist í fimm greinar eftir því hver markmiðin eru. Þannig er talað um þjálfun sem miðar að viðnámi, þreki, hraða, samhæfingu eða snerpu. Þjálfun á viðnámi: í ’ þess háttar þjálfun er leit- rast við að byggja upp og styrkja hjarta- og æðakerf- ið, sem og ónæmiskerfið, einkum í því skyni að efla varnir líkamans gegn sjúk- dómum og sýkingum. Helstu aðferðirnar eru skokk, hjól- reiðar, leikfimiæfingar með lóð, dans og bardagaíþróttir. Þjálfun á þreki: Hér er leit- ast við að efla úthald með því að styrkja, þróa og stækka vöðva. Hér er beitt þeirri aðferð sem við þekkjum sem „lík- amsrækt" eða „bodybuilding“, þ.e. lóðaæfingar, þrek- æfingar og átaks- æfingar. Sund er einnig mjög gagnlegt. Þjálfun á hraða: Hér er leitast við að virkja saman þá krafta sem nýt- ast til þess að ná upp hraða í t.d. spretthlaupi - þ.e. hröðu hlaupi stutta vegalengd. Dans og boltaíþróttir nýtast vel í þessu skyni. Þjálfun á samhæfingu: Markmiðið er að geta fram- kvæmt margar hreyfingar á sama tíma af nákvæmni og öryggi og dans eða dansleikfimi er mjög gagnleg þjálfun til þess. Einnig sund og þardagaíþróttir. Þjálfun á snerpu: Hér er miðað að því að þjálfa snerpu og lipurð vöðva, sina og liðamóta. Aukin snerpa og viðbragðs- flýtir kemur auðvitað að góðu gagni við aðr- ar tegundir þjálfunar, einkum varðandi sam- hæfingu og hraða. Allar teg- undir leikfimi gagnast vel, einnig sund, skokk, hjólreiðar og dans. Það segir sig sjálft að engin ein tegund líkamsþjálfunar beinist eingöngu að einu markmiði. Oftast er um að ræða sameiningu tveggja eða allra markmiða en fyrir flest venjulegt fólk (þ.e. þá sem þurfa að vera í góðu formi til þess að takast á við hvers- dagsleikann en ekki endilega til að stunda íþróttir) er besta líkamsþjálfunin sú sem leiðir til aukins þols, vegna þess að þá er um leið veitt viðnám gegn alls kyns sýkingum og sjúkdómum og líkaminn er betur í stakk búinn til að bregðast við áföllum. Þetta gerist á mismunandi hátt á mismunandi stöðum í líkam- anum. HVAO GERIST ÞEGAR VIÐ ÞJÁLFUM LÍKAMANN? Hjartað verður styrkara og stærra. Með réttri þjálfun verður hjartað fært um að hleypa meira blóði í gegnum sig og fækka slögum. í hvíld eru slög á mínútu yfirleitt um 80 en með góðri þjálfun geta þau farið niður í 60. Með því að fækka slögum á mínútu er hjartanu gert kleift að veita meira blóði til slagæðanna í hverju slagi og með því verða slagæðarnar sveigjan- legri og safna síður í sig fitu. Þannig minnkar hættan á kransæðastíflu og hjartaáföll- um. Öndunarfærin styrkjast og eflast. Vel þjálfuð lungu geta tekið inn mikið súrefni og veitt miklu súrefni til líkamans. í hvíld andar venjuleg mann- eskja að sér um einum lítra af súrefni en í þrekæfingum er unnt að auka súrefnisinntöku allt upp í 100 lítra á mínútu! Þannig hreinsast lungun líka betur og súrefnisflæðið gegn- um lungun út í líkamann verð- ur skilvirkara og meira. Með þessu aukna súrefnis- og blóðflæði fá vöðvarnir meiri og betri næringu og verða styrkari og þéttari. 19.TBL. 1993 VIKAN 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.