Vikan - 23.09.1993, Side 66
LEIKSTJORINN MARSHALL HERSKOWITZ
mér að komast inn í hugar-
heim barnsins. Ég sá að það
var spennandi og krefjandi
hlutverk fyrir leikstjóra að finna
sjónræna túlkun á þessum
veruleika. Sagan er hlaðin til-
finningu og virkaði mjög sterkt
á mig. Það er mikið hugrekki
fólgið í frásögninni af nei-
kvæðari hliðum fjölskyldulífs-
ins og það hafði aðdráttarafl
fyrir mig. Ég hef líka mikinn á-
huga á lífskraftinum, ævintýr-
um götunnar og þeim marg-
flókna veruleika sem fólginn er
í mannlegum samskiptum.
Það eru ákveðnir leikstjórar
sem ég dái - eins og Robert
Altman, Richard Lester og
Frank Capra. í þeim marg-
breytilega heimi sem þeir
skapa á hvíta tjaldinu er fullt af
alls konar fólki að gera ýmsa
skrítna og fyndna hluti, jafnvel
í bakgrunni sögusviðsins svo
maður tekur varla eftir því.
Kvikmyndagerð af þessu tagi
hefur haft mikil áhrif á mig.“
AÐ NÁ FRAM RÉTTUM
VIÐBRÖGÐUM
ÁHORFENDA
- Þú segist hafa lesiö kvik-
myndahandritiö áöur en þú
last söguna. Hvaö viltu þá
segja um gagnrýnina sem
birtist í The New Yorker - aö
þú hafir rifiö söguna í tætiur
og látir öll viökvæmari atriði
hennar eiga sig?
„Ég hef margt um það að
segja,“ segir Marshall og hef-
ur greinilega mislíkað um-
rædd gagnrýni. „Ég vildi að
gagnrýnandinn hefði talað við
mig en það er kannski ekki
hlutverk þeirra. Hann dregur
ályktun sem mér finnst mjög
ósanngjörn - en hann ályktar
að við höfum breytt handritinu
út frá sölusjónarmiöi. Það
sem honum yfirsást var að við
breyttum handritinu frá sög-
unni af listrænum ástæðum
en ekki viðskiptaástæðum.
Ég tel að það fyrirfinnist
viðfangsefni sem er svo óaðl-
aðandi eða truflandi að það
komi í veg fyrir að áhorfand-
inn geti einbeitt sér að sög-
unni sem verið er að reyna að
segja. Sem dæmi má taka ef
verið er að gera stríðsmynd
og sýnt nákvæmlega það sem
gerist á vígvellinum - þá
mundu áhorfendur ganga út
af sýningu myndarinnar. Það
skiptir ekki máli hvað verið
væri aö reyna að segja, jafn-
vel þótt reyna ætti að koma til
skila hörmungum styrjalda,
það mundi kafna í því sem
sæist á tjaldinu.
í okkar tilfelli held ég að
sagan um mann sem reykir
stöðugt maríhúana og son
hans, sem stelur grasinu til
eigin neyslu, hafi allt aðra
merkingu en fyrir tuttugu árum
þegar sagan var skrifuð. Það
mundi kalla á allt önnur við-
brögð frá áhorfendum en þær
tilfinningar sem ég vildi ná
fram hjá þeim gagnvart þess-
ari fjölskyldu. Þegar ég segi á-
horfendur þá er ég ekki að tala
um milljónir manna heldur
hvern þann sem er að horfa á
myndina, hvort sem það er
vinur minn eða einhverjir ó-
kunnugir. Fólk mundi sýna
mjög sterk og röng viðbrögð
og það mundi fæla það frá
þeim stað sem ég vil fara með
það í frásögninni. Þetta er list-
ræn ákvörðun að mínu mati og
það sama á við um kynferðis-
lega þætti sögunnar. Sagan er
mjög opinská og í henni er
fjallað um kynferðisleg sam-
skipti á milli tólf ára krakka. í
fyrsta lagi væri ekki hægt að
mynda þau atriði því bæði
kennari og félagsráðgjafi fylgj-
ast með upptökunum. Börn fá
ekki einu sinni að vera við-
stödd þegar verið er að kvik-
mynda nektarsenur, svo ekki
sé minnst á það sem krakk-
arnir voru að gera í bókinni.
Viðbrögð áhorfenda yrðu líka
allt önnur en ég hafði ( huga,
þannig að þeir yrðu allt annars
staðar tilfinningalega á viðkom-
andi stöðum í sögunni heldur
en ég vildi að þeir væru.
Á þessum forsendum ver ég
fyllilega þær breytingar sem
við gerðum. Það sem gagn-
rýnandinn er í rauninni að
segja er að við höfum gert
þetta aö sætri og væminni
mynd í stað þess grófgerða
sem er í bókinni. Ég hef fylgst
með viðbrögðum áhorfenda
jafnt sem mínum eigin við-
brögðum og myndin er ekki
síður gagnrýnd fyrir að vera of
myrk og fjalla um mikið af erf-
iðum málefnum. Ég held að
umræddur gagnrýnandi skjóti
verulega framhjá þegar hann
heldur því fram aö við höfum
gelt söguna í myndinni."
RIFIST VIÐ
DANNY DEVITO
- Hver var helsta breytingin
við aö gera kvikmynd I staö
sjónvarpsþáttar?
„Ég lærði kvikmyndaleik-
stjórn og hef nálgast allt sem
ég hef gert hingað til fyrir
sjónvarp eins og um kvik-
myndagerð væri að ræða. Á
margan hátt var þessi breyt-
ing auðveld og mikill léttir
vegna þess að nú fékk ég
tækifæri til að gera miklu dýr-
ari hluti og meiri tíma til að
koma þeim í framkvæmd. Það
sem mér fannst þó athyglis-
vert var að það voru að sumu
leyti meiri hömlur á mér held-
ur en þegar ég var að gera
þættina Á fertugsaldri. Ég var
framleiðandi sjónvarpsþátt-
anna og átti mjög sérstakt
samstarf við sjónvarpsstöðina
sem ég var að vinna fyrir. Þar
reyndu menn ekki að segja
mér hvað ég ætti að gera og
gagnrýndu ekki það sem ég
var að gera. Ég hef haft ein-
stakt sköpunarfrelsi og sjálfs-
forræði við vinnu mína fyrir
sjónvarp. Við kvikmyndagerð
þarf maður að eiga við kvik-
myndaverið, framleiðandann
og aðalleikarann - það eru
fleiri sem hafa völd en ég er
vanur og það reyndist mér
erfiöara að eiga við.“
- Hvaö um samstarfið viö
Danny DeVito? Hann er sjálf-
ur reyndur kvikmyndaleik-
stjóri, hafði það erfiöleika í för
meö sér?
„Nei, ég var varaður við
honum," segir Herskowitz
kíminn. „Þeir erfiðleikar urðu
ekki að veruleika. Eina skiptið
sem við vorum andstæðrar
skoðunar var áður en mynda-
tökur hófust en sá ágreiningur
snerist um handritið. Það
vandamál leystist en var at-
hyglisvert að því leyti að ég
vildi gera hlutverk hans veiga-
meira. Hann vildi hins vegar
halda því eins og það var í
sögunni, að vissu leyti til
stuðnings við hlutverk stráks-
ins sem er miðpunktur sög-
unnar. Jafnvel á meðan við
vorum að rífast var ég snort-
inn á því hégómaleysi sem
hann sýndi. Hans afstaða
miöaðist við sjónarhorn kvik-
myndaframleiðandans og
hann hafði mjög ákveðnar
hugmyndir um hvernig mynd-
in ætti að vera þrátt fyrir að
þessi afstaða bitnaði á þeim
tíma sem hann sést á tjaldinu.
Eftir að tökur hófust og hon-
um varð Ijóst að ég hafði á-
ætlun og vissi hvað ég var að
gera treysti hann mér fullkom-
lega og var mjög samvinnu-
þýður. Ég held að hann hafi
rifist minna við mig en flestir
aðrir leikarar en hann er
svona „getur gert allt náungi".
Það skiptir ekki máli hvað
hann er beðinn um aö gera,
honum tekst það og að sumu
leyti hélt hann verndarhendi
yfir mér.“
HRIFINN AF
SNORRA STURLUSYNI
- Var Danny DeVito efstur á
óskalistanum hjá þér fyrir hlut-
verkiö?
„Það var þegar búið að
velja hann áður en ég tók að
mér leikstjórnina þannig að
sem betur fer losnaði ég við
þær vangaveltur. Ég var mjög
spenntur fyrir að vinna með
honum og fannst hann eins
og sniðinn í hlutverkið."
- Þú ert rithöfundur en
kaust ekki aö gera mynd eftir
þínu eigin efni.
„Ég var ekki tilbúinn með
neitt handrit til kvikmyndafram-
leiðslu. Fyrsta myndin sem ég
gerði átti að vera um Hróa hött,
eftir handriti eiginkonu minnar.
Þú minnist þess sennilega, en
þetta var 1990, að það voru
þrjár ef ekki fjórar myndir um
Hróa hött á forstigum fram-
leiðslunnar. Þegar Kevin
Costner ákvað að gera sína
mynd ákváðum við að draga í
land. Þetta var aðeins mánuði
áður en við ætluðum að byrja
að taka myndina þannig að öll
undirbúningsvinna var að baki
og því finnst mér að sumu leyti
sem Jack the Bear sé önnur
myndin sem ég geri.“
- Hvaö er á döfinni hjá þér
á kvikmyndasviöinu?
„Ég er að skoða ýmsa
möguleika í því sambandi.
Þótt flest sem ég hef fengist
viö hingað til hafi fjallað að
mestu um mannleg samskipti
hef ég áhuga á að gera
margs konar myndir. Ég hef
lengi verið spenntur fyrir að
gera stórar myndir sem gerast
á mismunandi tímum í mann-
kynssögunni og það var
helsta ástæðan fyrir þv( að ég
gerðist kvikmyndagerðarmað-
ur í upphafi."
- Hvaða tímabil í mann-
kynssögunni ertu aö tala um?“
„Miðaldir í Noröur-Evrópu,
frá 500 eftir Krist til 1100. Það
eru til margar athyglisverðar
sögur frá þessum tíma og ég
hef meðal annars skoöað
mikið af íslendingasögunum í
þessu sambandi. Ég er mjög
hrifinn af sumum Konunga-
sögunum og því sem talið er
að Snorri Sturluson hafi skrif-
aö. Ég vona að ég fái tækifæri
til að heimsækja ísland fljót-
lega en þaö er óvíst hvort
kvikmyndagerðin færi fram
þar þótt af yrði. Mynd af þeirri
stærð sem ég hef hug á að
gera krefst mikils fjármagns
og það er erfitt að fá kvik-
myndaverin til að leggja út í
slíkt fyrirtæki."
Það væri gaman ef draum-
ur Marshalls Herskowitz yrði
aö veruleika en þangað til
verðum við að láta okkur
nægja að sjá Jack the Bear
en þar sýnir hann að hann er
veröugur fleiri verkefna. □
VIKAN 19.TBL. 1993