Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 6
TÓMSTUNDIR
NMUKffóW
i HlAVllíj'Uj'jI
UMSJÓN: EGILL EGILSSON
Tómstundaiökun landsmanna er margvísieg. Meðal
þeirra hæfileika, sem fá aö njóta sín aö loknu hefð-
bundnu dagsverki, er sköpunargáfan. Vikan leit inn
til fólks sem leyfir eigin hugmyndaauögi og sköpunar-
gleöi aö njóta sín hvenær sem færi gefst.
Þennan hatt, sem Dagbjört Snæbjörnsdóttir ber, gerði Rósi
hattari úr laufblöóum eftir hugmynd Fillippíu fatahönnuöar
viö kjól sem hún hannaði.
Rósberg Hólmsteinsson:
H¥llí
Éli
UÖftÚNA
Rósi hattari segir að fyrir sér
sé hattageröin fyrst og
fremst spurning um tilfinn-
ingu.
Rósberg Rúnar Snædal
Hólmsteinsson er kallaður
Rósi hattari. Hann er 26 ára
Akureyringur sem fluttist 17
ára hingað suður á bóginn.
Hann hóf þegar að vekja á
sér athygli fyrir sviðsbúninga
og leikmyndir sem hann
hannaði fyrir ýmsa leikhópa
áhuga- og atvinnumanna.
Rósi er þó betur þekktur fyrir
frumlega hatta sína og sem
stendur stundar hann nám í
hattagerð í Danmörku. Þeir,
sem til hans þekkja, telja
hann haldinn fullkomnunar-
áráttu í því sem hann tekur
sér fyrir hendur.
Hvers vegna hattagerð?
„Vegna þess að hattagerð er
í mínum huga Ijóðform. Hver
hattur er eins og ný Ijóðlína.
Ég geri hattana úr bólstrara-
böndum, ull, lopa og trjá-
greinum svo eitthvað sé
nefnt en þetta eru allt saman
módelhattar. Fyrir mér er
hattagerðin fyrst og fremst
spurning um tilfinningu þótt
hægt sé að læra undirstöð-
una. Ég stefni að þvl að gera
betur í dag en í gær,“ segir
Rósberg Rúnar Snædal
Hólmsteinsson.
Jón Valur Guómundsson: FYRSTA SKÖPUNAR
víhií wtuihi mmm dúmnAizos
Alls kyns hönnun hefur lengi veriö Jóni Val hugleikín. Því
valdi hann þá leiö aö gera sinn eigin hljómtækjastand.
Jón Valur Guðmundsson er
26 ára. Hann er flatböku-
meistari að aðalstarfi en
hugsuður í hjáverkum. Þeg-
ar Jón Valur er ekki að þeyta
flatbökum á sinn listilega
hátt ver hann tíma sínum
annað hvort í bóklestur eða
þá hann hlustar á góða tón-
list. Hann telur skóla lífsins
æðstan menntastofnana og
hefur ekki fleiri orð um það
þegar spurt er um skóla-
göngu. En hvers vegna
hannaði hann hljómtækja-
stand sjálfur í stað þess að
kauþa einn slíkan út úr þúð?
Jú, hann hefði getað valið þá
leið en alls kyns hönnun hef-
ur alltaf verið honum hug-
leikin. Því ákvað Jón Valur
aö hanna sitt eigið eftir efn-
um og ástæðum.
Hljómtækjastandurinn er
gerður úr stálplötum sem
eru settar saman með fjór-
um 30 millímetra stálteinum
á hverri hæð. Þeir voru síð-
an snittaðir og ryðvarðir.
„Þetta er fyrsta sköpunar-
verkiö fyrir utan dúfnakof-
ana, sem maður smíðaði á
sínum yngri árum, en von-
andi ekki það síðasta," segir
Jón Valur sem nú stefnir á
nám í hönnun erlendis.