Vikan


Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 23

Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 23
VlÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: sem fylgir erfðum og sé hluti af náttúrunni. Maður sér þetta fyrirbæri örugglega hjá öðrum dýrategundum?" Hvar liggur þá vandinn? „Mér finnst þessi hlutur eins eðlilegur og hægt er að hugsa sér. Mér finnst í raun aðrir vera óeðlilegir. Ég skynja mig alls ekki sem haldna einhverju óeðli.“ Hvað finnst þér um þjóðfé- lagsstöðu samkynhneigðra nú á tímum? „Mér finnst við alls ekki vera inn í heildarmyndinni. Það er hreinlega ekki gert ráð fyrir okkur." Myndi þig til dæmis langa til að giftast? „Nei, alls ekki. Það er ekki mjög ofarlega í huga mínum en auðvitað gæti það verið inni f myndinni og það er bagalegt að hafa ekki rétt til að gera það sem mann lang- ar til og eitthvað sem gerir ekki neinum mein. En það koma ýmis önnur mál inn í þessa umræðu eins og til dæmis erfðaréttur, tryggingabætur, sambúðar- skráning, samnýting skatt- korts, fjölskylduafsláttur ým- iskonar og svo framvegis. Tryggingafyrirtæki hafa verið mjög jákvæð en margir aðrir aðilar eiga töluvert í land með að bæta sig að þessu leyti.“ Hver er aðalhindrunin af hálfu kerfisins í sambandi við ykkur? „Eg get nefnt þér dæmi. Anna lenti í umferðarslysi og þurfti á félagslegum bótum að halda en litið var á það mjög alvarlegum augum með tilliti til bóta að hún væri f sambúð en það var bóta- greiðanda verulega til tekna. Um leið og slíkt horfir öfugt við verður sambúðaraðilinn allt í einu ósýnilegur og litið er á hann sem einstæðan. Ég hefði til dæmis getað notað hennar skattakort þegar hún var frá vinnu en það var ekki til í dæminu! Þetta er svona smá saga um hvernig þeir, sem eru á mörkum hins skilgreinda kerfis, verða fórnarlömb hentistefnu. KYNLÍF LESBÍA Mikið af samkynhneigðu fólki hefur upplifað ótrúleg- ustu hluti, á kynlífssviðinu sem öðrum, sem mætti halda að þyrfti margar mannsævir til. Það er til ótrúlegur fjöldi af skemmtilegu og spennandi fólki innan þessa geira sem er að gera eitthvað óvenju- legt; fólki sem fer aðrar leiðir og vinnur oft óhefðbundin störf sem oft á tíðum eru mjög skapandi. Ég sé ekki eftir einu ein- asta augnabliki sem ég hef upplifað f þessum heimi samkynhneigðarinnar sem mér finnst mjög spennandi og skemmtilegur.“ Nú velta því sjálfsagt margir fyrir sér hverskonar kynlífi lesbíur lifa og talað er um allskyns hjálpartæki ást- arlífsins. Eru gervilimir til dæmis ekki eitthvað sem til- heyrir karlímyndinni og virk- ar óspennandi fyrir lesbíur? „Nei, það myndi ég ekki segja. Það er frekar litið á slíka hluti sem krydd í tilver- una. Hjálpartæki eru notuð af öllum en það er útbreiddur misskilningur að önnur kon- an þurfi að leika karl til að þær geti notið kynlífs. Hvernig svo sem allir þessir hlutir eru framkvæmdir þá er það upplifunin með konunni sem skiptir höfuðmáli og lík- amar beggja eru í flestum til- fellum alveg nægjanlegum „tækjum" búnir til að stunda fullkomið kynlíf. Sagt er að heilinn sé nú einu sinni mikil- vægasta kynfærið. Ef fólk heldur að eiginlegar samfar- ir, undir teppi í myrkri, sé það eina sem kynlíf snýst um þá er þeim mikil vorkunn. Mín sannfæring er sú að karl og kona geti lifað fullkom- lega ánægjulegu kynlífi án þess að hafa nokkurn tím- ann samfarir. Svona að lokum, þá finnst mér hræðilegt þegar fólk er að dæma einhverja hluti fyr- irfram án þess svo mikið sem gera tilraun til að kynna sér málin áður. Það eru mjög jákvæð mál að gerast í heiminum al- mennt þar sem fólk í topp- stöðum er að koma fram og viðurkenna kynhneigð sína og mér finnst það mikill styrkur að finna að maður er ekki einn í sínu horni. Það er mjög mikilvægt að hafa sterkar fyrirmyndir því það gefur manni aukinn kjark til að standa upp, bæði fyrir sjálfan sig og aðra, og geta verið eins og maður er, án þess að glata sjálfsvirðing- unni, og verið um leið sterk- | ari fyrirmynd fyrir aðra. □ Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík sími: 39990 Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari, Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir, Halla R. Ólafsdóttir. Þjáist þú af — vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka, gigt, tognun eða viltu bara grennast. Trimm-form getur hjálpað. Bjóðum einn prufutíma. VERÐ FRÁ 6000 KR. SNYRTISTOFU ARBÆJAR HRAUNBÆ 102 - SÍMI 68 - 93 - 10 HULDA HARSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 $5 62 61 62 OPIÐ MANUD. - FÖSTUD. KL. 9-18. LAUGARD. KL. 10-14. 1 RAKARA- <t HARqRE/ÐSLUSTVFA HVERFISGÖTU 62 101 REYKJAVlK 3. TBL. 1994 VIKAN 23 NAFNSPJOLD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.