Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 62
NAM
hvað allir hlutir hafa verið
rofnir úr samhengi við aðra
tíma og aðstæður. Stað-
reyndin er nefnilega sú að
við eigum heilmargt sameig-
inlegt með kynlóðum liðinna
alda og auðvelt er að benda
á samsvaranir við menningu
nútímans."
LIFANDI MIÐBÆR
- Hvernig líkar þér að búa
í Reykjavík?
„Hún er mjög ólík heim-
kynnum mínum í Oklohoma
þó ekki sé nema vegna þess
að hér er svo miklu færra
fólk. Engu að síður hefur
mér virst borgin mjög lifandi
og skemmtileg. Það er svo
margt sem safnast saman í
miðbænum - öll þessi kaffi-
hús til dæmis setja mikinn
svip á miðborgarlífið. Þarna
er líka allt fullt af hvers kyns
verslunum og þetta gerir það
að verkum að fólk kemur í
miðbæinn og glæðir hann
lífi. Heima í Bandaríkjunum
er fólk farið að forðast mið-
bæ borganna - þar hafa
myndast verslunar- og
menningarkjarnar út um allt.
Af þessum sökum þykir mér
Reykjavík einkar lífleg og
skemmtileg borg.“
- Ferðu út að skemmta
þér?
„Já, ég geri svolítið af því.
Einkum sæki ég þá Rósen-
bergskjallarann og Bíóbarinn.
Ég hef mjög gaman af að
fara út á meðal fólks. Þó á ég
svolítið erfitt með að venjast
þeim sið hér að fólk fer helst
aldrei út að skemmta sér fyrr
en eftir miðnætti um helgar. í
Bandaríkjunum á maður að
venjast því að fólk fari út ekki
seinna en á milli 9 og 10. Ég
skil aftur á móti ástæðuna fyr-
ir þessu - að fólk fær sér f
nokkur glös heima áður en
það fer út á staðina til þess
að þurfa ekki að versla eins
mikið þar vegna þess hvað
vínið er dýrt."
NORN Á
SNÆFELLSNESI
- Hefurðu ferðast eitthvað
hér innanlands?
„Ég fór vestur á Snæfells-
nes í vetur ásamt nokkrum
íslenskum félögum mínum
úr Háskólanum. Það var
haldið samkvæmi á Hótel
Búðum. Ég skemmti mér
mjög vel en mér þótti and-
rúmsloftið þar sérkennilegt.
Konan sem rekur hótelið gaf
sig út fyrir að vera norn, ég
skildi ekki allt sem hún var
að segja eða gera nema það
að hún var svolítið að reyna
að hræða okkur ungu menn-
ina sem þarna vorum stadd-
ir. Hún var mjög furðuleg. Ég
var tiltölulega nýkominn til
landsins þegar þetta var og
vissi ekki alveg hvernig ég
átti að taka þessu.
Ég hef líka farið til Hvera-
gerðis með nokkrum kunn-
ingjum mínum. Þar á meðal
er kona sem hefur verið leið-
sögumaður á sumrin. Hún
ætlaði að sýna okkur sér-
stakan hver uppi í fjöllun-
um. Við lögðum gangandi
af stað en fundum ekki leið-
ina því að áin sem hún sór
fyrir að hefði verið þarna í
sumar var farin veg allrar
veraldar."
- Hvað hyggstu fyrir í ná-
inni framtíð?
„Ég verð hér fram í ágúst.
Ég kom rétt eftir verslunar-
mannahelgina í fyrra og mig
langar til að upplifa hana áð-
ur en ég held heim á leið.
Ég hef áhuga á að leggja
fyrir mig gerð heimildakvik-
mynda. Ég hef hugleitt það
um nokkurt skeið að gaman
væri að gera heimildamyndir
um víkingatímann til dæmis
og heiðinn sið á Norðurlönd-
um. Það hefur bæst svo mik-
ið við þekkingu manna á síð-
ustu árum, meðal annars á
sviði fornleifafræðinnar. Mál-
visindi og þekking á þróun
tungumála gefur manni æ
betri innsýn í hvernig fólk
hugsaði og talaði fyrr á öld-
um. Það gæti verið verðugt
og spennandi verkefni að
safna þessari þekkingu
saman á einn stað og gera
sér þannig í hugarlund
hvernig hlutirnir voru í raun
og veru.“ □
/ þÖÓÐ SEC.ÖA F 'öRi/þ POF- fó'öuK. DRoPi /A'ftLms TÓaJaJ SJÍTT noiTr EF/di loTu/i ZSL. STfíPo/R /VORaJ jiMft - &iL-
-Wi Á ■um mÁ V 1 /
■ |i' 7 / Y
m | 'fi LiTi/JhJ !r> Z ÓAM5T. DRiT
l/Ei-Ð- itdrVfíR 'ORíLÖ Tfl LA / >
/ STflHT- RáKri karl- FU(*lA (l/TÓ7ÁEi5i KE-dR ÚTTBKT TflUT \/ ,/ \ / t/ > / > ,/
Rödö 'ÖSKju V > ./ 1/ 1r
itTUM, SPAB4 1 \ > V fíUÐ 5fíM~ T ó’K. 3
5KEMMÍ) BfluG.uK L6L6.Ö s > y > 5 S'fí FMSTt
/ Z J / s~ k 'ÓM
Lausnarorð siðustu gátu: PÁLAR
62 VIKAN 3. TBL. 1994