Vikan - 21.03.1994, Blaðsíða 63
SKOP
Þau voru nýgift þegar
hann sagði við hana: „Nú
erum við gift þannig að þú
verður alltaf að segja mér
allt.“ Jú, hún hélt að það
væri kannski möguleiki en
sá síðan gaiia á gjöf Njarð-
ar: „En ég veit bara ekki
allt!“
„Ætli þú getir hafa móðgað
kærastann hennar Gunnu
okkar. Hann hefur ekki látið
á sér kræla í nokkrar vikur,"
sagði frúin við mann sinn.
„Það getur ekki verið. Hans
hefur þó ekki orðið vart síð-
an ég sendi honum sím-
reikninginn fyrir nokkru,"
svaraði karl að bragði.
„Hvað myndirðu segja ef
ég kyssti þig beint á
munninn?" spurði unga
stúlkan strákinn sem hún
var með á föstu. „Hva, ætli
ég myndi fara að haida
einhverja ræðu á meðan á
því stæði," sagði hann þá.
Og við höldum áfram með
hjóna- og kærustuparasög-
ur. Hann spurði hana hvort
hún vildi heldur; verða pipar-
mey eða giftast bjána. „Ég er
hrædd um að ég geti bara
ekki svarað þessu bónorði
þínu svona samstundis," var
svarið.
„Strákurinn hefur farið í
veskið mitt og tekið úr því
alia peningana," sagði
pabbinn sótsvartur af
bræði. „Af hverju gæti það
ekki hafa verið ég,“ svar-
aði mamman sem sam-
stundis fór í vörn fyrir
drenginn sinn. Og ekki
stóð á svarinu: „Af því að
þá hefði eitthvað lítilræði
orðið eftir!“
Blindur maður gekk betlandi
um. „Gefið blindum pening,
þó ekki væri nema hundrað-
kall.“ Maður, sem hann
mætti, svaraði: „En þú ert
ekki blindur nema á öðru
auganu.“ Blindi maðurinn
hugsaði sig um og sagði síð-
an: „Jæja, hafðu það þá
bara fimmtíukall!"
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
•QBUUB BUUBJBJ
-H?u jnjsunjðj 9 *nu|j?M j Jn||nj jb6u3 g uuijjoi) uuund?>|s jbuuv 'p 'OIJJOn nuuo>njjB>|
6ubjpubh 'G 'JnuuQ 6uju>j>jBd!jjB>j z 'JjujJOij jiujphsjuui j. ijpubjbjjíjjb ma jBÖUiJÁajg
STJÖRNUSPA
HRUTURINN
20. mars - 20. apríl
Þú lendir í aðstæðum sem
krefjast skjótra ákvarðana. Þú ættir
ekki að verða í vandræðum með slíkt
því að þú ert ekki óvanur því að þurfa
að vera fljótur að hugsa. Þú munt
þurfa að treysta á innsæið í stað þess
að halda þig eingöngu við staðreynd-
irnar. Ekki er allt sem sýnist.
NAUTIÐ
21. april - 21. maí
Góður vinur þinn, sem er
verulega peninga þurfi, leitar á náðir
þínar. Það er ekki í þínu valdi að
hjálpa honum í bráð því að vandi
hans krefst langtíma ráðgjafar og
áætlunar. Reyndu að gefa honum
góð ráð eigi að síður sem þú getur
byggt á eigin reynslu.
TVÍBURARNIR
22. maí - 21. júní
Þér líkar vel í vinnunni eða
skólanum og það gefur þér mikið. Þú
ert því einstaklega upptekinn af því
sem þú ert að fást við og notar inn-
sæi þitt og sköpunarhæfileika til hins
ýtrasta. Yfirmenn þínir í vinnunni (eða
kennararnir í skólanum) verða þessa
áskynja og gefa þér byr undir báða
vængi.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Það rfkir andlegt stríð á
vinnustað þínum, eða bekknum f
skólanum, og allir keppast um að
vinna það. Ef þú lætur sem ekkert sé,
tekur ekki þátt og forðast að láta aðra
hafa áhrif á þig, gætu málin farið að
snúast þér i hag og þú jafnvel orðið
sigurvegari. Hvað sem öllu Ifður virð-
ist þú eiga spennandi daga framund-
an.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Þú ert fremur latur og væru-
kær þessa dagana og auðvitað hefur
hver og einn leyfi til þess öðru hverju.
Þú ættir samt að taka þér eitthvað
ákveðið og áþreifanlegt fyrir hendur
þegar vinnu eða skóla sleppir og lyfta
þér svolítið upp. Gott ráð væri að
heimsækja gamla vini sem þú hefur
ekki haft samband við lengi.
VOGIN
24. sept. - 23. október
Þú munt brátt komast að því
að ekki er alltaf auðvelt að gera öllum
til hæfis. Aftur á móti gætir þú spurt
þig þeirrar spurningar hvort það sé í
raun tilgangur lífs þíns að vera öðrum
til geðs. Enginn hefur haldið því fram
og því skaltu ekki taka það nærri þér
þó að einhverjum eigi eftir að mislíka
við þig. Það verður bara svo að vera.
SPORÐDREKINN
24. október - 23. nóv.
Atvinna þín eða nám krefst
athygli þinnar núna meira en oft áður.
Þú ættir ekki að láta það koma þér á
óvart né vaxa þér í augum. Það trufl-
ar þig þó að nú krefjast sum verkefnin
þess að þú hugsir hlutina upp aftur
og reynir að koma betra skipulagi á
sitthvað. Slíkt veitir þér nauðsynlega
þjálfun.
BOGMADURINN
24. nóv. - 21. desember
Stjörnurnar eru þér mjög í
hag þessa dagana. Af þeim sökum á
þér eftir að vegna vel á hverjum þeim
vettvangi sem þú beinir kröftum þín-
um og áhuga að á næstunni. Þú
munt ekki þurfa að hafa mikið fyrir
hlutunum til að fá þá til að ganga upp
- það mun koma af sjálfu sér.
STEINGEITIN
22. des. - 20. janúar
Óvænt útgjöld krefjast þess
að þú þurfir að leita nýrra leiða til
tekjuöflunar um sinn. Það reynist
engin önnur leið út úr vandanum en
sú að bæta við sig vinnu og við það
verður þú að sætta þig. Þú munt
finna ráð, sem kemur þér að gagni,
en gættu þess að aðrir nái ekki að
notfæra sér þennan tímabundna
vanda þinn.
VATNSBERINN
21. janúar -19. febrúar
Það eru bjartir dagar fram-
undan í lífi þínu. Áhugi þinn mun að
einhverju leyti beinast inn á nýtt svið
sem mun veita þér spennandi við-
fangsefni til að glíma við. Þetta mun
meðal annars opna fyrir þér mögu-
leika til að sameina vinnu þfna og
áhugamál, það hagnýta og hið
ánægjulega. Gott fyrir þig.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þér finnst tilveran grá um
þessar mundir og lítið drífa á daga
þína. Staðreyndin er samt sú að það
eru ekkert færri eða ómerkilegri hlutir
að gerast núna fremur en endranær.
Þér finnst það bara vegna þess að þú
hefur kosið að draga þig inn í skel
þína um stundarsakir. Um leið og þú
kemur út úr henni fara hlutirnir að
gerast.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Það er ekki á hverjum degi
sem draumar rætast en slíkt mun ein-
mitt gerast hjá þér á næstunni. Loks-
ins mun þér takast að gefa þér tíma til
að gera hluti sem þú hefur ætlað að
láta verða af árum saman en aldrei
fyrr haft tækifæri til. Það setur svo
punktinn yfir i-ið að þetta mun reyast
ennþá skemmtilegra en þú áttir von á.
3. TBl. 1994 VIKAN 63
STJORNUSPA